Fálkinn - 20.05.1960, Page 15
FALKINN
15
svaraði hún. — Eiginlega hefur mér
aldrei fundist nafnið Harry sérlega
fallegt! Og svo kinkaði hún glað-
lega kolli til hans og fór fram í
varðstofuna, en hann hélt áfram
inn í sjúkrastofuna. Hann brosti
ennþá og útlitið lýsti nákvæmlega
því sem hann var: bráð-ástganginn
ungur maður.
— Lítið þið á hann! sagði Ging-
er. — Hann er tapaður! Jæja, hún
er vel þess virði að hann verði svona
í andlitinu. Ljómandi stelpa!
Bill breikkaði brosið enn.
— Já, það er alveg áreiðanlegt!
tautaði hann.
En enginn nema hann vissi að
hann var ekki að hugsa um stúlk-
una sem þeir héldu ■„ að væri
draumastúlkan hans.
★
Flengríöandi
draugur
Kínversku knaparnir og gegn-
ingamennirnir við kappreiðabraut-
ina í Lukkudal við Hongkong hafa
síðustu mánuði orðið fyrir allskon-
ar óþægindum af ríðandi draug.
Þeir halda því fram að þetta sé
franski knapinn Marcel Samarcq,
sem gengur svona ljóslogandi aftur.
Hann datt af baki og hálsbrotnaði á
skeiðvellinum 2. janúar. — En það
er meiri slæðingur á vellinum en af
Marcel einum. Árið 1918 brunnu
nær 2000 Kínverjar eða tróðust
undir til bana, er áhorfandapall-
arnir við skeiðvöllinn brunnu. —
Knaparnir halda því fram, að meiri-
hlutinn af þessu fólki hafi gengið
aftur og geri þeim ýmiskonar óleik.
Knöpunum þykir leitt að búa við
þessa reimleika, ekki síður en sjó-
mönnunum, sem Stokkseyrardraug-
urinn ásótti forðum, og hafa nú
leitað til Búdda-munka og presta
og beðið þá um að særa burt allan
draugafansinn. Brugðist munkar og
prestar vel við, reistu altari við
BEÐIÐ EFTIR HJÁLP. — Hér sést ein af þeim mörgu fjölskyldum, sem heimilislausar
urðu í jarðskjálftunum hörmulegu í borginni Agadir í N.-Afríku á dögunum. Hér hefur auð-
sjáanlega ekki verið um annað að ræða en sitja og bíða þess að einhver aðstoð bærist.
■-V'
9
íí
í;
í;
;;
í;
44
;;
;;
;;
44
«
;;
o
o
;;
«
4444444444444
tfr tííri Oeröld
,,"]\/i"arquis de Cuevas“ er heims-
ItJ- frægt nafn. En réttu nafni
hét maðurinn George de Piedra
Blanda de Guana de Bustilley
Teheran. Hann fœddist í þennan
heim í Chile fyrir sjötíu árum.
Faðir hans, ríkur aðalsmaður
spánskur, var bankastjóri þar.
Marquis de Cueva hefur ausið
Greifinn —
ógrynnum fjár í danslistina, Hann
er svo óhagsýnn og viðutan, að
ekki þarf annað en hann kaupi
dagblað eða sendi símskeyti til
þess að hann lendi í ótrúlegustu
ævintýrum og öngþveiti. En hann
er mikill tilfinningamaður og
kyssir alla, sem honum lízt vel á,
hvort heldur karla eða konur.
Enda er hann kallaður „kyssandi
greifinn“ í Englandi.
Hann kvartar mikið undan því
að hann sé orðinn gamall, og það
þarf ekki nema smávegis kvef til
þess að hann haldi, að nú eigi
hann að fara að deyja: Fyrir
nokkru hafði hann boðið tólf vin-
um sínum í miðdegisverð. Þegar
gestirnir komu, tóku tveir hágrát-
andi þjónar á móti þeim og fóru
með þá inn í svefnherbergið. Þar
lá greifinn undir tjaldhimni í
rúminu sína. Bjarma lagði á fölt
andlit hans, frá blaktandi Ijósum
í fjórum kertastjökum úr gulli.
„Dauðinn er kominn, —- ég mœtti
j? honum, í svörtum lafafrakka, og
hann sagði: Góðan daginn,
greifi-“ sagði de Cueva. •— „Og
hvað svo meira?“ spurðu gestirn-
ir. — „Ég sagði: Komdu sœll,
vinur minn! Og þá varð hann
hrœddur og tók til fótanna
Greifinn er orðinn hrumur og
að heita má kominn í kör. En þeg-
ar ballett-flokkur hans heldur
sýningar og vekur fögnuð, halda
honum engin bönd. Þegar frum-
sýning var haldin í Deauville
í Frakklandi fyrir nokkru, skaut
honum þar upp, og allir urðu
hissa, því að ekki var annað vitað
en að greifinn lœgi þungt hald-
inn í London. Hann hafði strokið
úr sjúkrahúsinu. Einu sinni kom
hann á frumsýningu, allur reifað-
ur og plástraður eftir að hann
lenti í bílslysi. — Ef honum þyk-
soooooooooooooooooooooooooo;
„Hvaða gagn œtli þið hafið af
þessari litlu fló í herbúðunum?“
kveinaði hann.
Ballett-ástríðan náði váldi á
greifanum fyrir 25 árum. En nú
er ballett-flokkur hans heims-
frœgur, og þó reynast tekjurnar
aldrei nógu miklar til að standa
undir kostnaðinum. Hann giftist
barnabarni Rockefellers gamla og
þess vegna héldu flestir, að hann
vœri mikill auðmaður. En Rocke-
feller hafði gleymt þessu af-
kvæmi sínu, þegar hann gerði
erfðaskrána, og hún fékk ekki
««ma vasapeninga í sárábœtur.
En þó að svona fœri um olíu-
kóngsauðinn, gat de Cueva ekki
neitað sér um lúxus og veizlu-
höld. Enn er vitnað til veizlu sem
hann hélt í Biarritz fyrir nokkr-
um árum. Þar drukku 2 konung-
ar, 66 prinsar og 32 hertogar á-
samt fleiri gestum, 2000 flöskur
og ballettinn hans
ir eitthvað að dansinum, eys hann
skömmunum yfir viðkomandi
dansara En hins vegar gerir hann
allt hugsanlegt fyrir þá. Ef þröngt
er í búi hjá ballettflokknum —
og það kemur stundum fyrir —
hikar hann ekki við að selja eitt-
hvað af málverkunum, sem hann
hefur erft — Rembrandt eða van
Byck — eða húsmign í París eða
New York, til að hlaupa undir
bagga. í marga daga var hann að
nauða á hermálaráðuneytinu í
París, til að fá sólódansara sinn,
Golovin leystan úr herþjónustu.
af kampavíni og átu 50 kíló af
styrjuhrognum. De Cueva stjórn-
aði þarna ballettsýningu sjálfur,
íklœddur gerfi Lúðvíks fjórtánda.
En þessi fjáraustur vakti hneykli
og páfinn sjálfur setti ofan i við
de Cueva.
En hjartað er gott, og hann
þorir að láta eftir sér það, sem
hann hefur gaman af, segja vinir
hans. — Dálœti lians á dansinum
er engin uppgerð, heldur ástríða.
Hann fœddist bara tvö hundruð
árum of SQÍnt, og ekki getur hann
að því gert, mann-greyið.
brautina og sungu bænir og brendu
reykelsi í þrjá daga. Það fylgir sög-
unni að þetta hafi hrinið á kin-
versku draugunum, en Marcel hinn
franski sé enn jafn baldinn og áður,
og muni það stafa af því að hann
skilur ekki kínversku.
Þegar inflúenzan gcisaði í Evrópu
fyrir nokkru, tók fyrirtæki eitt í
Vínarborg upp á því að setja upp
skilti, þar sem fólki, sem væri með
pestina, er bannaður aðgangur. Til-
kynningin er undirrituð: „Hinir
heilbrigðu“.
★
Siggi og Kobbi eru að veiða Þara-
þyrsling og allt í einu kemur þung-
ur dráttur á öngulinn hjá Sigga.
Þetta reyndist að vera stærðar lax.
Þeir horfa agndofa á fiskinn og
loks segir Siggi: — Heyrðu Kobbi,
ég held, að við verðum að sleppa
honum. Þetta er of dýr matur handa
okkur.