Fálkinn - 28.06.1961, Side 32
rekið hafði talsvert frá, bendingu um
að koma.
Það lagðist upp að okkur, og gestur-
inn hvarf jafn skyndilega og hann hafði
komið. Litlu síðar gekk skipstjórinn
út á brúarvænginn og tilkynnti, að þetta
væri þá í lagi og bað okkur margfald-
lega að fyrirgefa ónæðið. Stýrimaður-
inn kom nú hlaupandi og rétti okkur
fulla flösku af sjóhvítri nýmjólk.
Og undir háværum blessunarósk-
um skipverja lónaði varðbáturinn út
úr víkinni og hvarf fyrir nesið. En
skipverjar á Voninni slógu sér á lær
og héldu niður í lúkar til að undirbúa
kaffigildi með nýmjólk og molasykri.
Atli Magnússon.
Kætumst -
Frh. af bls. 19
að ganga með slitróttum og krampa-
kenndum rykkjum.
í broddi fylkingar koma steinaldar-
mennirnir, berfættir að gömlum sið, og
er mesta furða hve vel þeir bera sig.
Eru þeir íklæddir skinnum og draga
vopn sín á eftir sér. Eftir þeim koma
ýmsar frægar persónur úr mannkyns-
sögunni. Má þar meðal annarra nefna
Hinrik VIII., sem unir sér vel í hópi
fagurra meyja. Ekki langt undan má
sjá þýzka lífverði í gráum frökkum, með
hakakrossinn á ermunum. Sjálfur Hitler
kemur svo í bíl á eftir og heilsar fólk-
inu á sinn vanalega hátt. Lestina rak.
svo nútíma djass-hljómsveit, sem
skemmti fólkinu með átakanlega fögr-
um leik sínum.
— Deginum lýkur á öllu friðsamlegri
hátt en hann hófst.
Minnist fólk sjálfstæðís síns og frelsis,
rheð ættjarðarsöngvum og í töluðu orði.
Því þrátt fyrir glens og glaðværð, sem
ríkir þennan dag, er það þó þessi til-
fínning djúprar gleði yfir fengnu frelsi,
sem hrærist í hjörtum allra Norðmanna
17. maí.
Kvenþjóðin -
Frh. af bls. 23
þar til hliðin er 14 cm. Sett á prj. nr.
2, og 7 1. teknar jafnt úr á prjónin-
um, prjónið brugðningu. Eftir IV2 cm
er prjónuð gataröð eins og á bakinu,
og eftir 1 cm eru felldar af 20 1. hvoru
megin. Geymið 8 fremstu 1. hvoru meg-
in á öryggisnálum. Setjið þessar 23 1.
sem eftir eru á prj. nr. 2%, aukið út
1 1. hvoru megin fyrir saumfari: prjón-
uð ein mynsturrönd, 2 1. sl., ein mynst-
urrönd, 2 1. sl., ein mynsturrönd í 7 cm.
Prjónið því næst 1 cm breiða brugðn-
ingu. Fellt af. Látið hinar 8 1. af ann-
arri öryggisnælunni á prj. nr. 2, aukið
í eina lykkju fyrir saum, prjónið brugðn-
ingu, eftir 8 cm er aukalykkjan tekin
úr og eftir 24 cm til viðbótar fellt af.
Hitt bandið prjónað eins.
Sokkarnir: Fitjið upp 48 1. á prj. nr.
2V2 og prjónið 7 cm brugðningu, þá
er prjónuð gataröð, prjónið næstu um-
ferð brugðna allar 1. Geymið 16 1. hvoru
megin, á 16 1., sem eftir eru er prjón-
uð ein mynsturrönd, 2 1. sl., ein mynst-
urrönd í 5 cm. Látið nú fyrstu 16 L,
sem geymdar voru, á prjón nr. IV2,
takið upp 15 1. meðfram annarri hlið
miðstykkisins, setið 16 1. frá miðstykk-
inu á prjóninn, takið upp 15 1. með-
fram hinni hlið miðstykkisins og að
lokum hinar 16 L, sem geymdar voru.
Prjónið 2V2 cm breiða brugðningu. Fell-
ið af 32 1. hvoru megin, prjónið 1V2 cm
breiða brugðningu með 1. sem eftir eru.
Takið 1 1. úr hvoru megin 1 annarri
hvorri umferð, þrisvar sinnum. Fellt af.
Frágangur: Saumið saman ermarnar
á peysunni og undir hendi. Brjótið háls-
líninguna tvöfalda, saumið hana fasta
á röngunni, látið 2 efstu hnappagötin
standast á. Varpið kringum hnappagöt-
in, saumið hnappana í.
Saumið hliðarsaumana á buxunum.
Takið upp 90 1. á prj. nr. 2 í kringum
hvora skálm, og prjónið 4 cm breiða
brugðningu. Fellt laust af. Brjótið
brugðninguna tvöfalda og faldið hana
á röngunni. Saumið böndin við smekk-
inn og festið þeim að aftan.
Sokkarnir saumaðir saman. Snúið
snúrur, sem dregnar eru í gataraðirnar
á buxunum og sokkunum.
Geysimargar ráðningar bárust við verðlaunagetraun FÁLK-
ANS „Hvar hefurðu komið“, en frestur til að skila lausnum
rann út fyrir nokkru. Langmestur hluti lausna var réttur, en
staðirnir, sem birt var mynd og ofurlítil lýsing á, voru þessir:
1. Seyðisfjörður.
2. Akranes.
3. Selfoss. (Myndin var af Ölvusárbrú).
4. Grundarfjörður.
5. ísafjörður.
6. Bolungavík.
7. Sauðárkrókur.
8. Hofsós.
Fyrir nokkru var dregið úr réttum lausnum, og sú heppna
er SVALA KRISTJÁNSDÓTTIR, Baldursgötu 9, Reykjavík.
Verðlaunin, sem hún hlýtur, er hringferð kringum landið með
m.s. Esju.
Klukkan sextán -
Frh. af bls. 15
Hann sat stífur í stólnum. Hann sá stóra vísinn á klukk-
unni raunverulega hreyfast, í örstuttum rykkjum frá svarta
15:57 punktinum að 15:58 punktinum. Hann sá, hvernig bil-
ið minnkaði, hann sá visinn yfir punktinum. Og svo fór vís-
irinn að nálgast 15:59 punktinn.
„í fyrstunni,“ sagði hr. Crangle, „munu blöðin ekki trúa
því. Jafnvel þótt breytingarnar verði í sjálfum ritstjórnar-
skrifstofunum, munu blaðamennirnir ekki trúa því. Það
gera þeir ekki fyrst á eftir. En svo, þegar þeir sjá, að það
hefur komið fyrir alla, sem að almanna dómi eru vondir,
þá munu þeir skilja ætlunina."
Klukkan sýndi 15:59.
„Mikil saga,“ sagði hr. Crangle. „Mikill blaðamatur. Og
enginn mun vita, að ég gerði það, Pet, engir nema þú og ég.“
Oddur stóra vísisins var kominn hálft mínútubil fram hjá
15:59 punktinum. Hr. Crangle var með hjartslátt. Augun
32
voru galopin, varirnar snertust ekki. Hann hvíslaði: „Eng-
inn mun vita það.“
Endi stóra vísisins bar í punktinn efst á klukkuskífunni.
Vekjaraverkið fór af stað. Hr. Crangle fann til mikillar ólg-
andi orku, eins og vatn væri að brjótast í gegnum stíflugarð,
hann fann þungt högg, eins og hann væri lostinn þrumu-
fleygi. Hann lokaði augunum.
„Nú!“ sagði hann þýtt og hlunkaðist niður örmagna.
Með því að ganga út að glugganum og horfa niður í mann-
þröngina á gangstéttunum hefði hann getað séð, hvort það
hefði tekizt eða ekki. Hann fór ekki að glugganum. Hann
þurfti þess ekki. Hann vissi.
Vekjarabjallan hætti að hringja.
Pet reigði höfuðið og leit á hann með auga, sem var eins
og fægður steinn.
„Net,“ sagði hann.
Þegar hr. Crangle teygði höndina upp að búrinu, vantaði
um 50 cm til að hann næði því.
FALKINN