Fálkinn - 25.10.1961, Page 7
REYNIÐ
%
ar, var í viðskiptaerindum og
gekk það allt greiðlega. Eitt
var það þó sem mér fannst
athugunarvert og einkenni-
legt í svo menntuðum bæ að
vera, hvað bæjarbúar gera
gys að blessuðum sveita-
manninum, sem þjóðin á svo
mikið að þakka. Hvers eigum
við sveitamenn að gjalda?
Erum við eitthvað öðruvísi en
annað fólk? Eða hvers vegna
brosir fólk svona undurfurðu-
lega þegar það sér okkur?
Ég segi nú ekki annað en það,
hvar væru þessir broddborg-
arar staddir, ef þeir fengju
ekki smjör, mjólk og kjöt frá
okkur? Ég er anzi hræddur
um að þeir væru illa á vegi
staddir. Þeir fengju þá alls
ekki slátur á haustin né smjör
um jólin.
Með þökk fyrir birtinguna.
Sveitakarl.
Svar.
Þið eigið skilið allt gott,
en því miður er fólk alltaf
svo ótugtarlegt, að það lief-
ur gaman af því að brosa og
hlæja aö náunganum og óförum
hans, einkum þó ef maðurinn
er eitthvað þSruvísi í hátt en
hinir heimskingarnir.
Afbrýðisemi.
Kæri Fálki. — Ég á kærasta,
sem er svo hræðilega afbrýð-
issamur og þess vegna langar
mig til þess að spyrja ykkur
um leið og ég óska blaðinu
alls góðs í framtíðinni: Hvað
er eiginlega afbrýðissemi?
Gógó.
Svar.
Hvimleiöasta tegund af eigin-
girni.
Röng tölublaðamerking.
Ég safna Fálkanum og líkar
blaðið vel, en mér þykir það
undarlegt að síðast hefur kom-
ið fyrir röng tölublaðaskrán-
ing. Síðasta tölublað var nr.
42 en samkvæmt mínum út-
reikningi á það að vera nr. 41.
Safnari.
Svar:
Þetta er rétt hjá yður, en
því miður gerði prentvillupúk-
innt sá hinn leiSi og Ijóti
fjandi, okkur slœman griklc.
BlaSið átti aS vera nr. 41. —
Biðjum viS hér meS afsökun-
ar á þessum mistökum.
HITUIM
Ofninn með bláa loganum
er ótrúlega sparneytinn
og alveg lyktarlaus.
5 lítrar af steinolíu
gefa 16 klukkustunda
stöðugan hita.
Grængráir, eða rjómagulir
De Luxe og krómaðir.
ALADDIN INDUSTRIES LTD., ALADDIN BUILDING
GREENFORD, ENGLAND.
Nú er farið að kálna
KLÆBIÐ HÖItMX VEL
KULDAÚLPUR á drengi, margar gerðir
DRENGJAJAKKAR með loðkraga og lausri hettu
DRENGJABUXUR, allar stærðir og gerðir
SÍÐAR DRENGJANÆRBUXUR
MITTISBLUSSUR, margar gerðir og allar stærðir
Hinar vinsælu prjónapeysur frá Iðunni
VERZLUMN STAKKUll
Laugavegi 99,
gengið inn frá Snorrabraut
BLATT
SKILAR
HVITASTA ÞVOTTI
X-OMO 100/EN-2445