Fálkinn - 25.10.1961, Blaðsíða 25
Seinlegar en góðar ábætiskökur
Litlar aprikósutertur.
250 g hveiti
1 tsk lyftiduft
100 g smjörlíki
80 g sykur
1 eggjarauða
%—1 msk mjólk
100 g flórsykur
1 msk brætt smjör
Rommdropar
Aprikósur
Möndlur
Hveiti og lyftidufti sáldrað á borð,
smjörlíkið mulið saman við. Sykri
blandað í. Vætt í með eggjarauðunni
og örlítilli mjólk. Deigið hnoðað. Flatt
út, stungnar út kringlóttar kökur, sem
bakaðar eru Ijósbrúnar við 225°.
Kökurnar lagðar saman 3 og 3 • með
aprikósumauki eða eplamauki og þakt-
ar með f lórsykursbráð: Flórsykur
hrærður með bræddu smjöri og rommi
eða rommdropum. Hálf niðursoðin
aprikósa eða útbleytt þurrkuð sett á
hverja köku. Skreytt með möndlum
eða brytjuðu súkkulaði. Kökur þessar
er ljúffengt að leggja saman með
sítrónukremi og hylja með sítrónubráð.
Appelsínusmákökur.
250 g hveiti
250 g smjörlíki
75 g malaðar möndlur
125 g sykur
Appelsínubráð:
200 g flórsykur
3 msk appelsínusafi
Saxaðar möndlur
Möndlurnar afhýddar og malaðar.
Smjörlíkið mulið í hveitið, sykri og
möndlum blandað saman við. Hnoðað,
geymt á köldum stað. Flatt út, skorið
með kleinujárni í nál. IV2 cm breiðar
og 6 cm langar lengjur, sem bakaðar
eru við 225° í 5—6 mín. Kældar og
appelsínubráð smurt á þær, söxuðum
möndlum stráð yfir áður en bráðin
storknar.
Paradísarkransar.
300 g hveiti
200 g smjörlíki
2 eggjarauður
100 g sykur
Kornin úr vanillustöng
Venjulegt hnoðað deig, sem spraut-
að er í lengjur (í hakkavél t.d.). Mót-
aðir kransar, sem velt er upp úr eggja-
hvítu og gróft söxuðum möndlum. —
Bakað við 225° í 8—10 mínútur, þar
til þeir eru gulbrúnir.
Efst:
Parad ísark ransar.
I miðju:
Kóngahorn.
Neðst:
Appelsínusmákökur
Á síðunni hér á móti:
Að ofan: Slöngukaka.
Að neðan: Litlar aprí-
kósutertur.