Fálkinn - 25.10.1961, Blaðsíða 37
BLACK
HORSE
KARL-
MANNA-
REIDHJOL
28"
ORNINN,
SPÍTALASTÍG 8, SÍMI 14661
Skakki hællinn
Frh. af bls. 28.
um, sem reyndi að komast undan. En
eltingarleikurinn stóð ekki lengi. Þeir
náðu í flóttamanninn, handsömuðu hann
og fóru með hann á stöðina.
— Kæri herra Marini verkfræðingur,
sagði Greiber. Takið þér nú af yður
gleraugun og skeggið, svo að við getum
talað þeim mun betur saman. Um þjófn-
aðinn á Adlon, til dæmis .. .
Marini gafst upp. Hann játaði á sig
hótelþjófnaðinn. Hann hafði ætlað sér
að komast burt frá Berlín í sínu nýja
gerfi.
— En, stamaði hann . .. hvernig í
ósköpunum gátuð þér þekkt mig. Mér
fannst mér hafa tekizt svo ágætlega að
dulbúa mig. Og þetta bragð mitt, að
haltra, taldi ég óbrigðult til að villa
yður.
Þá hló Greiber fulltrúi.
— Nei, hann var að vísu óhaltur prúði
maðurinn gamli, sem kom út úr port-
inu. En samt var það stinghalti fótur-
inn á honum Marini verkfræðingi, sem
kom upp um yður. Þegar ég skyggði
gestina á Adlon sat ég í lágum stól og
komst ekki hjá að sjá fótabúnað þeirra.
Vegna þess að þér höltruðuð hafði vinstri
skó'hællinn slitnað mikið, og auk þess
höfðuð þér svartar öklahlífar. Þegar ég
stóð við portið og sá svörtu öklahlií-
arnar gráhærða mannsins fór mig að
gruna margt. En vissu mína fékk ég,
þegar ég sá hve vinstri hællinn var
slitinn. Það var þessi hæll, sem kom upp
um yður... ★
CITROEN
Frh. af bls. 33.
bíllinn er hlaðinn, og má einnig, með
litlu handfangi undir mælaborðinu,
hækka bifreiðina úr 6,5” normalhæð í
9” og 12” hæð, og aka henni þannig,
ef ástand vegarins gefur tilefni til.
Þetta er einnig notað í stað lyftu, ef
skipta þarf um hjól.
Citroen-bifreiðir hafa löngum verið
framarlega í þolaksturskeppnum um
heim allan, og má nefna til gamans, að
sami maðurinn, Paul Coltelloni, verk-
smiðjueigandi frá París, vann, á árinu
1959, eftirtaldar þolaksturskeppnir
(írallies) í Citroen ID-19:
Monte Carlo Rally
Acropol Rally
Coupe des Alpes
Adriatic Rally
Liege-Rome-Liege
Marath.
Viking Rally
Deutschland Rally
1. án stærðarflokk.
1. í stærðarflokki
1. i stærðarflokki
1. án stærðarflokk.
1. í stærðarflokki
1. í stærðarflokki
1. í stærðarflokki
Fyrir sigra sína í þessum keppnum
var hann útnefndur „Þolakstursmeistari
Evrópu 1959“ (Rally Champion of Eu-
rope 1959). Einnig má geta þess, að í
nýlega afstaðinni keppni sem kallast
„Liege-Sofia-Liege Marathon“, og er
5500 km, var röð efstu bílanna þessi:
1. Citroen DS-19
2. Porsche
3. Citroén ID-19
4. Mercedes-Benz
Af 85 bílum, sem þátt tóku í keppni
þessari, komust aðeins 8 á leiðarenda,
en vegalengdin er ekin á um 90 klukku-
stundum.
Helztu gerðir Citroén-fólksbifreiða,
sem nú eru fáanlegar, eru þessar:
ID-19 5 manna, 4ra cyl. vél, vatns-
kæld, 1911 cm3, 69 bremsuhestöfl, 4ra
gíra, 2., 3. og 4. eru samstilltir (syn-
chronised), fjöðrun „hydro-pneumatic“
(vökvi og gas), sjálfvirk jöfnun á hæð
frá jörðu (6,5”) og handstilling í 9” og
12” hæð; felgur festar með einni ró;
diskahemlar að framan, skála- að aft-
an; miðstöð og loftræsting; farangurs-
geymsla 17,7 rúmfet, þyngd 1125 kg,
benzíneyðsla 9—10 1 pr. 100 km, há-
marksraði 140 km klst.
DS-19 er, auk þess sem að ofan er
talið, útbúin vökvastýri, vökvahemlum
(power-brakes), 83 bremsuhestafla vél,
sem gefur 150 km hámarkshraða; sjálf-
virkri kúplingu, vandaðra sætaáklæði
o. fl.
AMI-6 4ra manna. 2ja cyl. vél, fjór-
FALKINN 37