Fálkinn - 25.10.1961, Síða 31
brotið hann, og vita hvort henni hefði
ekki snúist hugur. En hann frétti brátt,
að nú hefði hún látið allmikið ofan, því
að hún var þunguð og vildi barnsfaðir
hennar ekkert með hana hafa. Fór hann
brátt á fund Guðrúnar sólar og vildi
giftast henni og gangast við barni
hennar. En foreldrar hans og þó sér-
staklega móðir hans þvertók það alveg,
og kvað það ekki ná nokkurri átt, að
hann kvæntist stúlku, sem væri þung-
uð eftir annan mann, og allir vissu, að
hann gæti ekki verið valdur að þunga
hennar. Varð svo ekki meira úr sam-
bandi milli hans og Guðrúnar. Hún
giftist síðar lítilsgildum manni og lifði
við armóð.
Eftir heimkomuna settist Jón að á
Hólum og stundaði talsvert lækningar
á milli þess sem hann blótaði Bakkus.
Orð fór mikið af lækningum hans og
leitaði fólk til hans við ýmsum mein-
um og kvillum. Sagnir eru til af lækn-
ingum hans og eru þær fremur þjóð-
sögukenndar.
í Miklabæ í Óslandshlíð bjó efnaður
bóndi, Hann var sullaveikur og þjáðist
mjög af veikinni. Hann leitaði til Jóns
um lækning meina sinna. Mælt er að
Jón hafi tekið bónda vel og skoðað hann
eftir beztu getu. Að skoðuninni lokinni
fékk hann bónda meðul nokkur, sem
hann átti að nota í hálfan mánuð, en
koma að þeim tíma liðnum aftur og
og láta vita, hvaða áhrif lyfin hefðu.
Að hálfum mánuði liðnum kom bóndi
aftur og hafði ekkert batnað. Lét Jón
hann þá fá aðra tegund af lyfjum, kvað
þau myndu eyða meinlætunum, ef það
væri á annað borð mögulegt. Bónda
batnaði heldur af þessum lyfjum og
minnkaði fylli hans. En þegar kom fram
á veturin versnaði honum aftur og sótti
í sama far og áður um veikindi hans.
Leitaði bóndi þá enn á ný á fund Jóns.
Jón tók honum vel sem fyrr, en lét hann
hverfa meðalalausan heim til sín. En
kvaðst bráðlega koma til Miklabæjar
og athuga hann betur,
Þegar liðið var mjög á góu, bjóst Jón
til ferðar og kvaddi með sér Ólaf Hóla-
ráðsmann. Stefndu þeir ferð sinni til
Miklabæjar og var þeim fagnað vel er
þangað kom. Jón tók bónda á eintal
í stofu og gætti þess vandlega, að enginn
heyrði á mál þeirra. Hann tjáði bónda,
að hann væri þangað kominn til að
bjóða honum tvo kosti annað hvort að
hætta við allar lækningar við hann eða
að hann gerði á honum holskurð. Kvað
hann áhættu af aðgerðinni allmikla,
og yrði bóndi að hætta á hvort hún
tækist eða ekki. Bóndi tók seinni
kostinn.
Þar næst kvaddi Jón Ólaf bryta til
aðstoðar og bjó út borð á miðju gólfi,
svo að hægt var að ganga allt í kring-
um það, Lagði hann síðan bónda á borð-
ið og hóf undirbúning að aðgerðinni.
Gaf hann bónda lyf nokkur, svo hann
féll í ómeginn. Að því loknu tók hann
upp hnua sína og risti sjúkling sinn
á kviðinn. Siðan tók hann glerílát lítið
og jós úr bónda miklu af vatni að undr-
un sætti Þegar hann þóttist hafa ausið
nóg af vatni úr bónda, saumaði hann
kvið bónda saman aftur, og bar lyf að
vitum hans og leysti band af litla
fingri hans, sem hann hnýtti fyrir að-
gerðina. Bóndi raknaði brátt við og
hafði holskurðurinn tekizt vel. Hag-
ræddi hann bónda í rúmi í baðstofunni
og hjúkraði honum í þrjá sólarhringa.
bóndi komst brátt á fætur og til fullrar
heilsu og kenndi aldrei framar sulla-
veiki.
Jón Bergmann gleymdi aldrei Guð-
rúnu sól. Fyrsta ástin varð honum
þungur harmur, sem olli honum óham-
ingju svo að honum varð lífið óbæri-
legt, þrátt fyrir það, að aðstaða hans
væri hin bezta til frama og veraidar-
gengis. Eftir að honum var meinað að
eiga Guðrúnu sól féll hann í þunglyndi
og lá við geðtruflun. Móðir hans og
móður afi höfðu fengið aðkenning að
slíkri veiki. Ekki bætti það úr, að móðir
hans vildi koma honum í farsælt hjóna-
band, og láta hann ganga að eiga hefð-
armey við hans hæfi, sem hann hvorki
vildi heyra né sjá. Jón var stórbilaður
maður eftir heimkomuna og þungar
raunir af völdum misheppnaðar ástar
og svalls námsáranna í Kaupmanna-
höfn. Þar kom að hugarvíl sótti svo á
Kærii Astró.
Ég les alltaf þætti þína og
hef gaman af. Ég er fædd í
Reykjavík klukkan 1.50 að
nóttu til. Síðar fluttist ég
ásamt foreldrum mínum út á
land í smáþorp, þar sem ég bý
enn. Ég verð í 3. bekk í Gagn-
fræðaskólanum í vetur. Ég hef
unnið í frystihúsi í sumar.
Mér finnst gaman að fara á
böil og fer oft. Ég hef verið
i sveit og þar var strákur, sem
fæddur er 1944, og er ég aga-
lega hrifin af honum. Ég hef
verið slæm í augunum og hef
þurft að fara suður til Reykja-
víkur til læknis. Nú langar
mig að vita eitthvað um fram-
tíðina og þá helzt ástamálin.
Vinsamlega birtið ekki neina
fæðingardaga og ár. Nú bíð ég
með óþreyju eftir svari.
Með fyrirfram þakklæti,
Lóa.
Svar til Lóu.
Þú fæddist þegar sólin var
0° 15’ í merki Nautsins. Þú ert
því að nokkru gædd hæfileik-
um þessa merkis, sem helzt
eru dugnaður við öflun ver-
aldlegra fjármuna. Samt er
margt fólk fætt hér sérstak-
lega næmt fyrir litbrigðum og
tónum, en helzta einkennið er
ákveðni. Samt sem áður eru
höfuð einkenni þín mörkuð af
stöðu mánans í Bogmanns-
merkinu og staða hins rísandi
merkis er einnig þar. Þú ert
því gefin fyrir heimspekileg-
ar hugleiðingar og trúarlegar
og ættir að vera talsvert góð-
um hugrænum gáfum gædd.
Þessar afstöður gera þig glað-
lynda og létta í skapi og þér
ætti að sækjast skólanámið létt.
Langskólanám mundi verða
þér til mikilla heilla, en ég
reikna ekki með að af því
verði hjá þér, þar sem margt
bendir til þess að þú munir
finna maka þinn nokkuð
snemma.
Um hjúskaparmálin er ým-
islegt að segja, t.d. bendir
margt til þess að þú munir
verða tvígift, þar sem Tví-
buramerkið er hnígandi við
fæðingu og er því ráðandi yf-
ir sjöunda húsi, sem stendur
fyrir makann. Kynni þín af
fyrri manni þínum hefjast
skömmu eftir nítjánda af-
mælisdag þinn, en það er ým-
islegt sem þú verður óánægð
með í fari hans og sérstak-
lega að þér mun finnast hann
standa í vegi fyrir frama þín-
um og þar af leiðandi mun
hjónabandið leysast upp og
nokkru síðar muntu giftast
öðrum manni, sem þér fellur
betur og þú velur af betri
þekkingu og reynslu.
Á þrítugasta til þrítugasta
og sjöunda aldursári verður
þér meira umhugað um heils-
una heldur en önnur ár. Þessi
ár verða líka öðrum fremur ár
vinnu og erfiðis hjá þér, en
þrítugasta og níunda árið
mun marka tímamót í líf-i
þínu, með hliðsjón af annarri
giftingu. — Augnsjúkdómur
þinn virðist vera þess eðlis
að hann hverfi á löngum
tíma.
Árin frá tvítugu til þrítugs
verða mjög ánægjuleg ár að
mörgu leyti. full af skemmt-
unum, frístundum, börnum
og gleði. Þetta er vafalaust
ánægjulegasti þátturinn i lífi
þínu.
Þegar þú ert átján ára mun
þér áskotnast mjög margt frá
vini, sem þú munt þó ekki
tengjast. Hann er eldri en þú
og er vel efnum búinn.
Þegar þú ert þrjátíu og sex
ára liggur fyrir þér löng sjó-
ferð til annarra landa, ásarnt
nýjum vini þínum, sem þú
svo stofnar síðar til hjóna-
bands með.
FÁLKINN
31