Fálkinn


Fálkinn - 25.10.1961, Qupperneq 34

Fálkinn - 25.10.1961, Qupperneq 34
CAROLA Frh. af bls. 9. Ef móðir mín hefði átt fleiri börn, gæti hún ef til vill hafa fyrirgefið mér þá hneisu, sem ég hafði bakað þeim. En ég var einkabarn. Ég heyrði því hvíslað, að ég væri ekki sonur föður míns, heldur púka eins, er heimsótt hefði móður mína í líki eiginmanns hennar. Sumir sögðu meira að segja, að ég hefði fæðzt með horn á höfðinu og undir hárinu væru ör, þar sem móðir mín hefði brennt þau burt með glóandi járni. Ég var vanur að fara einn út í skóg- inn fyrir utan þorpið, til þess að ég sæi ekki sjálfan mig endurspeglast í augum annarra. í einmanaleik mínum lærði ég að þekkja hjarta mitt. Það sagði mér, að maðurinn væri einsamall, jafnvel þótt hann væri alltaf með öðru fólki, og að hjarta 'hans væri land, sem hann yrði að ferðast um einn síns liðs; en landamæri þess lands takmörkuðust eingöngu af hugsunum hans sjálfs, og þótt hann yfir- gæfi aldrei húsdyr sínar, gæti hann samt ferðazt til fjarlægra ríkja. Mig grunaði, að einhvers staðar að baki hins sýnilega veruleika byggi lög- mál: réttlátt, fagurt og óvefengjanlegt: og það myndi opinbera mér, það sem ég þráði að vita. Fólkið í þorpinu fór til kirkju og kraup frammi fyrir kross- inum til að kyssa fætur hins látna Krists, og stundum þegar litla kirkjan var tóm, fór ég þangað til að spyrja lávarð misk- unnseminnar, 'hvers vegna ég væri öðru- vísi en allt annað fólk. Það var auðvelt að trúa því, að Guð hefði skapað allt, sem fagurt er, en það var örðugt að skilja, hvers vegna sá hinn sami Guð, er elskaði styrk fjallanna og lét espitrén teygja sig mót himni, skyldi fangelsa sál í líkama eins og mínum. Ég vissi, að ég hafði sál, því að ég fann hana innra með mér, ákafa og lifandi. Þegar ég horfði út um augu mín, eins og horft er á landslag út um glugga, vissi ég, að -— Hvað munduð þér taka fyrir að mála eldhúsið mitt? 34 FÁLKINN það var ekki dvergurinn, sem sá, held- ur ép.Ekki Petruchio, heldur hið raun- verulega ,,ég“, sem komið hafði frá Guði í fjariægri fortíð og fara myndi aftur til hans í fjarlægri framtíð. Svo framarlega sem ég varð ekki á vegi föður míns, skipti hann sér ekki af mér og leyfði mér að sofa í hálminum í fjósinu, og á kvöldin, þegar skepnun- um var gefið, fékk ég skál með mat. Það er erfitt fyrir dverg að vinna fyrir sér, en mér tókst að fá starf við krána, þar sem ég hreinsaði hesthúsin og leit eftir múldýrunum. Kráareigandinn sagði, að þau myndu aldrei fara illa með mig, því að við værum afkvæmi sama föður, og ef hann sá eitthvað þeirra sparka í mig, þegar ég var að kemba því, fór hann að hlæja og sagði, að nú væru áflog í vöggustofu Satans. Þegar ég var þrettán ára, komu nokkr- ir efnaðir farandleikarar og voru um nótt í kránni á leið sinni til næstu borg- ar. Einn þeirra sá mig, þegar ég var að teyma áburðardýrin út í húsagarð- inn. Hann hlýtur að hafa spurt krár- eigandanna, hver ég væri, því að seint um kvöldið heyrði ég föður minn hrópa á mig. Ég hélt, að hann ætlaði að fara að berja mig rétt einu sinni, en hann sagði mér, að nú hefði hann loks fundið einhver not fyrir einkason sinn; hann hafði selt farandleikurunum mig fyrir tuttugu silfurpeninga. Ég skildi ekki, hvað þeir kærðu sig um mig, því að það var ekki fyrr en síðar, að ég komst að því, að farandleikarar fagna því alltaf að finna dverg, sem ekki er vanskap- aður á sál jafnt og líkama, til að þjálfa hann sem trúð. Fram að þessu hafði ég gert allt, sem mér var unnt, til að gleyma því, að ég væri öðruvísi en annað fólk; ég reyndi jafnvel að ganga alltaf í forsæl- unni, svo að skuggi minn þyrfti ekki að minna mig á sjálfan mig. Nú mátti ég aldrei gleyma, að ég var dvergur, því að það var orðin atvinna mín. Ég varð að ganga í tvílitum klæðum, hálf- um rauðum og hálfum gulum, og krypp- an á mér var stækkuð með hrosshári, svo að hún sýndist enn afkáralegri. Ég gat ekki lengur falið mig fyrir fólki, til þess að það gerði ekki gys að mér; nú varð ég að gera allt, sem í mínu valdi stóð, til að koma því til að hlæja — og þangað til ég yrði nógu fyndinn til að koma því til að hlæja með mér, yrði ég að láta það hlæja að mér. Stundum reyndist mér ákaflega örð- ugt að muna eftir Guði, og ég fór að draga í efa rödd míns eigin hjarta. Hvernig átti ég að geta trúað á lávarð miskunnseminnar, úr því að engir fylgdu kenningum hans? — Nú á dög- um eru þeir menn fáir, sem gráta yfir sorgum annarra en sjálfra sín. Guð er takmarkalaus samúð; en jafnvel maður, sem á samúð í brjósti sínu, þarfnast einskis trúðar til að geta brosað, og hvers vegna hafði Guð þá gert mið að trúði? Jafnvel þótt sumt fólk væri mér gott öðlaðist ég ekki vináttu nokkurs manns, því að jafnræði verður að vera með vinum og enginn vill viðurkenna, að dvergur geti verið jafningi hans. Ég fór sjaldan til messu, en nú datt mér í hug, að í skriftaklefanum myndi presturinn, sem heyrði aðeins rödd mína án þess að sjá, að líkami minn væri vanskapaður, tala við mig eins og aðra menn. Ég fór því til kirkju og vonað- ist til að fá þar huggun og nýjan styrk. „Faðir, ég er ekki hingað kominn til að segja þér frá syndum mínum, ’heldur til að biðja þig að segja mér frá himneskum kenningum, svo að ég geti lært að forðast syndina í framtíð- inni. Ef trú mín á að vera staðföst, verð ég að vita svör við vissum spurning- um. Okkur er sagt, að réttvísi Guðs sé óskeikul, en við vitum, að lög mann- anna eru spillt og afbökuð, og svo virð- ist sem lögmál himnanna þræði sömu braut. Ef sérhver sál er hluti af Guði, þá hljóta allir menn að fæðast til jafnra réttinda og ættu að fá jöfn tækifæri til að þroska guðdómsneistann innra með sér. Hvers vegna fæðast þá sumir heilsulausir og aðrir vanskapaðir? Hvers vengna ganga sumir í loðfeldum á vet- urna, en aðrir eiga ekki nema tötra til að hylja með kuldafleiður sín? Og — það, sem er þó hálfu þýðingarmeira — hvers vegna er efniviðurinn í hjört- um manna, hann, sem stjórnar þó gerð- um þeirra og lífsviðhorfum, svona marg- breytilegur? Það getur ekki verið, að hann gangi í erfðir frá foreldrunum, því að vitrir menn hafa verið feður harðstjóra og syndarar heilagra dýr- linga, eins og öllum má vera ljóst.“ Presturinn svaraði mér: „Þú mátt ekki spyrja um þetta sonur, minn. Það er Guðs vilji.“ En ég hélt áfram: „Hver er tilgang- urinn með þessu skuggalífi? Sé Guð réttlátur, hvar er þá réttlæti hans? Ekki getur það verið hans vilji, að börn hans þjáist — eru þá þjáningar okkar sjálf- skapaðar og gleði okkar eigin umbun? Er það satt, að maðurinn fæðist aftur — ekki í himnaríki, heldur hér á jörð? Voldugt tré sér dagrenninguna verða að hádegi og dvína síðan aftur til sólar- lags mörg þúsund sinnum, áður en það nær fullum þroska, — þörfnumst við ekki jafnmargra fæðinga og dauðadaga, þar til við erum hreinsaðir af girndum holdsins og orðnir máttugir í anda?“ Ég hlustaði, en fékk ekkert svar, og þegar ég fór út úr skriftaklefanum, sá ég, að dyr prestsins stóðu opnar. Hann hafði ekki ‘hlustað á mig til enda. Ég gekk framhjá honum, þegar ég fór út úr kirkjunni; ég vissi, að það var sami presturinn, því að hann signdi sig, þeg- ar hann kom auga á mig, og hann fitj- aði upp á langt nefið, eins og hann fyndi lykt af villutrú. Um tíma reyndi ég að afneita Guði og hinum myrka bróður hans, Satan. Ég sá mannkynið aðeins með augum þessa heims og var blindur gagnvart raunveruleik andans. Ég vissi enn, að Guð hafði skapað jörðina, en ég hélt,

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.