Fálkinn - 07.02.1962, Side 16
CAROLINE Mathilde prins-
essa var aðeins þrettán og
hálfs árs gömul, þegar trúlof-
un hennar og Christians, krón-
prins af Danmörku og Noregi,
var opinberuð 8. janúar 1765.
Tildrög atburðar þessa voru
þau, að danska hirðin hafði
snúið sár til ensku hirðarinn-
ar til þess að ræða möguleika
á, að þessar tvær fjölskyldur
tengdust. Þessi atburður átti
sér engan stjórnmálalegan
bakgrunn, eins og þegar faðir
Christians krónprins, Friðrik
þáverandi krónprins, kvæntist
ensku prinsessunni Louise. Þá
höfðu stjórnmálin gripið í
taumana, og enski konungur-
inn hafði knúið fram gifting-
una.
Iijónaband hins tvítuga
krónprins, Friðriks, og hinnar
nítján ára gömlu prinsessu,
Louise, varð eins óhamingju-
samt og frekast er hægt að
hugsa sér. Það endaði með á-
takanlegum harmleik nóttina
milli 18. og 19. desember 1751,
er drottningin lézt í Kristjáns-
borgarhöll aðeins tuttugu og
sjö ára og eins dags gömul.
Hún var full örvæntingar og
ástæðan var sú, að konungur-
inn lagði lag sitt við götustelp-
ur og hafði gert það þau átta
ár, sem hjónaband þeirra
varði. Drottningin var vanfær
í fimmta sinn og 1 örvæntingu
sinni reyndi hún að eyða fóstr-
inu með þeim afleiðingum, að
henni blæddi út.
Louise drottning hafði verið
fyrirmyndar húsfreyja og
móðir.
Caroline Mathilde prinsessa
hafði ekki komizt hjá því að
kynnast því, hvernig hinni gáf-
uðu og fögru frænku hennar
hafði vegnað sem dansk-
norskri drottningu. Og nú var
hún sjálf sú næsta í röðinni,
sem þvinga átti í óæskilega,
danska og konunglega brúðar-
sæng.
Christian krónprins var að-
eins þriggja ára þegar móðir
hans lézt. Sem sex ára gamall
prins fékk hann svokallaða
eigin hirð og þar af leiðandi
fékk hann einnig eigin yfir-
hirðsiðameistara, sem átti að
annast um uppeldi hans, þar
sem konungurinn var ekki
sjálfur fær um að ala upp
einkason sinn og erfingja.
Val hirðsiðameistarans tókst
mjög illa til og mátti í raun-
inni teljast algjör mistök. Síð-
ar átti eftir að koma í Ijós
hversu örlagaríkar afleiðingar
þetta hafði. Hirðsiðameistari
krónprinsins hét Ditlev Rev-
entlow greifi og var hið mesta
hrottamenni. Meðferð hans á
krónprinsinum var svo viður-
styggileg, að henni verður
vart með orðum lýst. Yfirkom-
inn af reiði og sársauka eftir
meðferðina, hljóp prinsinn oft
eftir hinum löngu og krókóttu
göngum hallarinnar til þess að
ieita verndar hjá sjúpmóður
sinni, Juliane Marie. En hún
tók sárþjáðu barninu af skiln-
ingsleysi og lítilli mannúð.
Það er því sízt að undra
þótt Christian krónprins hafi
verið kominn með geðveiki á
byrjunarstigi, þegar hann varð
konungur 15. janúar 1766. —
Þetta var því hryggilegra, þar
sem hann hafði meðfædda eig-
inleika til þess að verða gáf-
aður og nýtur maður og mik-
ilsvirtur og dugandi þjóðhöfð-
ingi. Og það var ekki einasta
að þessi kornungi konungur,
sem ekki var orðinn seytján
ára ennþá, væri orðinn sinnis-
veikur, heldur var hann á
góðri leið með að verða jafn
glataður maður og hinn lálni
faðir hans, Friðrik 5., hafði
verið, en nokkrum árum áður
en hann lézt var ásigkomu-
lag hans orðið slíkt, að hann
gat varla látið sjá sig við
hirðina.
Það var einnig sitthvað
fleira í uppeldi prinsins, sem
hafði óheillavænleg áhrif. Allt
frá því að hann var sex ára
gamall, var hann látinn vera
afskiptalaus í öllum frístund-
um sínum með tveimur korn-
ungum hirðfélögum sínum,
Sperling, sem var systurson-
ur hirðsiðameistarans, og hirð-
þjóninum Kirchoff. Þetta voru
tveir óforbetranlegir þorparar,
sem þrátt fyrir æsku sína vissu
allt of mikið um og höfðu allt
of mikla reynslu í alls konar
spillingu og viðurstyggð á
sviði kynferðislífsins. Þegar
hinn siðlausi ungi greifi, Wil-
helm Conrad Holck, sem til-
heyrði sjálfum háaðlinum,
bættist síðar meir í hópinn
sem náinn hirðfélagi, þá var í
rauninni öll von úti um Christ-
ian krónprins.
Það virtist allt ætla að fara
nákvæmlega á sömu leið og
hjá Friðrik 5., sem einnig var
frá hendi náttúrunnar gædd-
ur miklum hæfileikum.
Við hirðina var ótölulegur
grúi af hirðfólki af öllum gráð-
Caroline Mat-
hilde og Christi-
an konungur af
Noregi og Dan-
mörku.
Sem sex ára
gamall krónprins
fékk Christian
eigin hirð og eig-
in hirðmeistara.
16
FALKINN