Fálkinn - 03.10.1962, Page 14
Í RÍKI NASSERS
I
—1908, er þarna nokkuð neðar, er sá,
að byggja uppistöðu fyrir flóðavatnið,
svo að það megi nota til áveitu og
þannig breyta hálfri annarri millj. ekra
af gróðurlausri auðn í frjósamt akur-
lendi, sem brýn þörf er á fyrir örtvax-
andi fjölda íbúanna sem þegar eru um
27 milljónir talsins. Með þessari stíflu
hverfur einnig flóðahættan, sem ógnað
hefur Egyptum allt frá fyrstu tíð. Rækt-
að land mun aukast um 30%.
Rafstöð verður reist í sambandi við
stífluna og verður hún, eins og stíflan,
hin afkastamesta í heimi, mun fram-
leiða um 10 millj. kwst. árlega og hver
kwst. aðeins kosta 5 aura, hvað okkur
var sagt, að væri lægsta verð í heimi.
Til samanburðar má geta þess, að kwst.
í Kaíró kostar nú 2 kr. og í Reykjavík
79 aura. Yfirleitt voru allar tölur í sam-
bandi við stífluna hinar mestu eða
stærstu í heimi og minnti það mig á
ágæta landa mína. Báðir hafa vafalaust
rétt fyrir sér.
Hæð stíflugarðsins frá núverandi
vatnsyfirborði við stífluna á að nema
111 metrum. Stíflugarður þessi mun
mynda yfirstöðuvatn sem orðið getur
um 130 þús. millj. rúmmetrar (ef ein-
hver skyldi geta gert sér slíkt magn
í hugarlund), en magn þetta er fjórum
sinnum meira en í Boulderstíflunni
frægu í Bandaríkjunum, sem er enn
hin stærsta í heimi. Stöðuvatn það, sem
myndast, verður hvorki meira né minna
en 500 km. langt og 8 km. að jafnaði
á breidd eða 4000 ferkm. 350 km. lengd
hins nýja vatns verður í Egyptalandi, en
150 km. í Súdan og hefur egypzka
stjórnin þegar greitt Súdan 50 millj.
punda fyrir landsmissinn þótt stíflan
komi Súdanbúum þó að ýmsu leyti að
góðum notum.
Þannig mætti lengi halda áfram að
þylja tölur um stórkostleika þessa tröll-
aukna mannvirkis, sem án alls efa er
nú hið mesta, sem nokkurs staðar er í
byggingu á hnettinum. Það er því ekki
að undra, þótt Egyptum þyki mikið til
stjórnar Nassers koma, en honum og
byltingunni 1952 þakka þeir fyrst og
fremst, og það með réttu, framkvæmd
þessa aldagamla draums Egypta.
Síðan á dögum hinna fornu faróa hef-
ur ekkert sambærilegt gerzt í sögu þjóð-
arinnar, enda hefur landið lengstum
síðan verið undir erlendum yfirráðum
í einhverri mynd, líbískum herrum,
rómverskum keisurum, arabískum kalíf-
um, tyrkneskum soldánum og nú síðast
Frökkum og Bretum. Meira að segja
Napoleon kom þar við, þótt skamma
stund það væri.
Þegar við komum að stíflunni var
verið að grafa í gegnum háa hæð fyrir
rennu, sem beina á fljótinu í gegnum
orkuverið fyrirhugaða. Þar sem þessi
risastóra renna er dýpst ofan frá hæðar-
brún, er hún um 192 metrar og var nú
ógrafið um 30 metra niður í bergið.
Fjöldi stórvirkra véla var þarna að
verki við að bora eftir sprengiefni, en
daglega er öll önnur vinna lögð niður í
eina klukkustund meðan sprengt er, og
verða þá allir að víkja af svæðinu.
Fjölmargir vörubílar, semBbera 25 tonn,
voru þarna, nokkrar 250 tonna skurð-
gröfur, jarðýtur og loftpressur, allt af
rússneskum uppruna. Innan um allar
þessar stórvirku vélar var svo urmull
af verkamönnum, en á þeim virtist
enginn hörgull. Allt var þetta stóra at-
hafnasvæði upplýst og var það tilkomu-
mikil sjón. Þess má geta, að daglega er
flutt á bílunum um 25 þús. tonn af
graníti, en uppgröfturinn úr rennunni
einni mun nema um 12 þús. rúmmetrum.
í rafstöðinni verða 12 túrbínur og verða
Fjöldi stórvirkra vinnuvéla eru notaðar
við byggingu Assuanstíflunnar, og eru
þær allar rússneskar.
þrjár teknar í notkun 1965 en allt á
mannvirkið að vera fullgert um 1970.
Að lokinni byggingu rennunnar og
raforkuversins verður fljótinu beint þar
í gegn og hefst þá fyrst að ráði gerð
stíflugarðsins mikla yfir Níl. Stíflugarð-
urinn verður um 111 metrar á hæð,
1 km. að neðan, þar sem hann verður
breiðastur, en að ofan verður hann 32
metrar og verður lögð þar tvíbreið ak-
braut. Alls verður garðurinn um 3,5
km. á lengd, en þá taka við nægilega
há fjöll á báða bóga til að mynda hið
500 km. langa stöðuvatn.
Landið með Níl fyrir ofan Assúan
er mjög hrjóstrugt, undirlendi lítið og
íbúar því tiltölulega fáir, „aðeins“ um
50 þús. til súdönsku landamæranna, eins
og okkur var sagt. Hérað þetta, sem
nefnist Núbía hin lægri og var stundum
fyrr á öldum voldugt ríki og skeinu-
hætt Forn-Egyptum, fer nú allt á kaf
í vatn auk landssvæðissins í Súdan, þar
sem um 40 þús. manns búa.
Núbíumenn eru sérstök þjóð og tala
eigið tungumál. Hús þeirra eru einnig
öðruvísi en annarra Egypta, oft hvít-
máluð og skreytt einkennilegum æva-
fornum táknum, sem mönnum hefur
reynzt erfitt að skilja. Þeir eru yfirleitt
dekkri á hörund en Egyptar og fleiri
menn þar svartir en í hinu eiginlega
Egyptalandi, þótt töluvert sé af hörunds-
dökkum mönnum þar.
Hinum egypzku Núbíumönnum verð-
ur nú komið fyrir á svæði nokkru fyrir
neðan Assúan. Verða þar byggð fyrir
þá þorp á sléttum eyðimerkursandinum,
en honum verður, þegar hin nýja áveita
kemst í notkun, breytt í frjósama akra
og aldinlundi, þannig að íbúarnir fái
betra land en þeir búa nú á. Ólíklegt
er samt að Núbíumenn gangi fúsir til
landsskiptanna.
Á þriðja degi héldum við félagar á
Framh. á bls. 28.
Lifskjör almennings eru mjög bágborin í Egyptalandi. Verkamenn við Assuan-
stífluna fá t. d. aðeins 30 pjastra eða um 35 krónur á dag og einn líter af mjólk
að auki, og una menn sér vel við það.
14 FÁLKINN