Fálkinn - 10.10.1962, Blaðsíða 27
utrœtnr
Gulrótin hefur mikið næringarlegt
gildi. Hún er mjög auðug af A-fjörefni
og inniheldur auk þess töluvert magn
af af B- og C-fjörefni, kalki, magnesíum,
brennisteini og joði.
Hrá, annaðhvort fínt rifin eða press-
aður úr henni safinn, er hún blóðhreins-
andi og gefur okkur kraft og hreysti.
Hún er mjög holl fyrir augun vegna
A-fjörefnisins, varnar augnbólgum, nátt-
blindu og gerir augun og hörundið
skært og fallegt. Hún er góð við blóð-
leysi og er grennandi, þar eð hún örfar
meltinguna. Er holl fyrir bein og tenn-
ur.
Vanfærum konum er ráðlagt að borða
mikið af hráum gulrótum, einkum og
sér í lagi gulrótarsafa og það sama gildir
meðan barnið er á brjósti. Byrjið að gefa
ungbarninu gulrótarsafa þegar það er
6 vikna 1 tsk. á dag.
Hrár gulrótarsafi er ágætt fegrunar-
lyf. Ýmist má bera hann daglega á
hörundið með bómullarhnoðra, láta það
þorna og síðan bera krem á eða andlits-
vatn. Einnig er hægt að láta nokkra
dropa daglega saman við næringarkrem-
ið, blanda því saman í lófanum. í báðum
tilfellum fær hörundið vænan skammt
af A-fjörefni, sem hefur svo góð áhrif.
Það er fallegt að vefja herðatré með
hinum lituðu plastic bastþráðum, sem
fást í föndurverzlunum. Það er auðvelt
að nota þá, þar sem ekki þarf að leggja
þá í bleyti, svo börn ráða vel við þá.
Byrjið að vefja herðatréð eins og sést
á teikningunni, stingið þráðarendanum
undir fyrstu 3—4 vafningana (brotalín-
an). Leggið jafnframt 2—3 mislita
þræði eftir herðatrénu að endilöngu,
festið þá undir fyrstu vafningana.
Myndið svo ýmis mynstur á þann hátt
Framh. á bls. 28.
Góð rabarbarakaka
200 g. smjörlíki.
250 g. hveiti.
V2 tsk hjartarsalt.
1 egg.
125 g. sykur.
Rifinn sítrónubörkur.
20 möndlur.
1/2 kg. vínrabarabari.
Sykur.
Hveiti og hjartarsalti sáldrað á borð,
smjörlíkið mulið saman við. Egg og syk-
ur hrært vel ásamt sítrónuhýðinu og
möndlunum sem eru gróft saxaðar.
Deigið hnoðað, látið bíða í nokkrar
klst. á köldum stað. Deigið flatt út,
tertumót með lausum botni þakið að
innanverðu. Rabarbarinn hreinsaður og
skorinn í bita, sem velt er upp úr sykri.
Sett í mótið.
Búið til lok úr Va hluta af deiginu
og leggið það yfir rabarbarann. Kakan
smurð með eggi, söxuðum möndlum
stráð yfir. Bökuð við 175—200° í nál.
45 mínútur. Kakan borin fram volg með
þeyttum rjóma. Takið bara utan af kök-
unni, losið ekki botninn undan henni.