Fálkinn


Fálkinn - 10.04.1963, Qupperneq 7

Fálkinn - 10.04.1963, Qupperneq 7
Háttvirti Fálki! í síðasta blaði Fálkans var beðið um þessa vísu í „Póst- hólfinu“, en þið könnuðust ekki við hana. Því miður veit ég ekki deili á höfundinum, en vísan er svona: Ég verð færður í fangelsi á morgun í framtíð að búa þar einn. í kring eru járngrindur kaldar, en koddinn minn hrufóttur steinn. S. S. Kæri Fálki! í 10. tölublaði Fálkans bið- ur Billý um textann sem byrjar þannig: Ég var færður í fangelsi að morgni. Viltu birta textann fyrir þessa Billý, en textinn er svona: „Yfir höfin vill hugurinn sveima og heim til þín ástfólgna mær það er sárast að sjá þig ei lengur af söknuði hjarta mitt slær. Ég var færður í fangelsi að morgni til framtíðar búa þar einn og í kring eru járngrindur kaldar og koddinn minn hrufóttur steinn. Ef væri ég með engilsins vængi þá vendi ég helsinu frá. Þá flygi ég í míns ástvinararma og ánægður dæi ég þá.“ Guðlaug Oddgeirsdóttir, Hvolsvelli. Við þökkum bréfriturum og vonum að Billý geti notast við eitthvað af þessu. Ef ein- hverjir kynnu þetta lengra eða öðruvísi væri gaman að fá frá þeim línu. Hvort á að borga? Pósthólf Fálkans! Ég er nítján ára gömul og hef gert lítið af því að fara út með strákum að skemmta mér. Um daginn bauð einn mér út og af því að stelpurn- ar sem ég er með voru ekki í bænum tók ég boðinu. Nú er ég þannig gerð að ég vil alltaf borga fyrir mig sjálf ef ég fer út. Ég hef ágæta vinnu og ég sé ekki ástæðu til þess að aðrir séu að borga fyrir mig þar sem ég er ein- fær um það. Jæja. Nú förum við út að skemmta okkur þetta laugardagskvöld og þeg- ar á að fara að gera upp borð- ið vil ég borga minn hlut. Hann varð fúll við og vildi ekki heyra það nefnt. Svo ekur hann mér heim og þegar ég vil fá að borga minn hluta í bílnum þá verður hann bál- reiður og hálf rak mig út. Mér fannst þetta ákaflega leiðinlegt því þetta er skemmtilegur strákur. Hann hringdi í mig næsta laugar- dag og vildi bjóða mér út en ég gat ekki hugsað mér að fara með honum. Hvað finnst ykkur um þetta? Ein í vandræðum. Svœr: Oklcur finnst þetta mjög merkilegt þar sem kvenmaöur á í hlut. Þaö er ástœöulaust hjá þér aö fara ekki út meö strák- um, þú skalt bara gera honum Ijóst aö þú vilt greiöa þinn liluta. ÞiÖ getiö liæglega gert þaö wpv eftir á. Svo er allt í lagi aö láta kauöa borga fyrir ykkur bœöi. Kurteisi. Kæra Pósthólf. Mig langar til að skrifa þér og spyrja þig um eitt efpi sem mig langar til að fá svar við. Er það kurteisi að hvíslast á til dæmis í strætisvögnum eða á skemmtistöðum? Það er eki svo sjaldan sem fólk ger- ir þetta og það fer ákaflega í taugarnar á mér. Getur verið að þetta sé kurteisi? Óli. Svar: Nei, þaö þykir ekki kurteisi aö vera mikiö meö hvlslingar. En þaö getur komiö fyrir aö fólk sé aö ræöa um þau efni í strœtisvagninum sem þaö vill ekki aö allur vagninn heyri og þess vegna hvíslast þaö á. ÞaÖ þarf ekki endilega aö vera aö tala illa um þig þótt þaö hvislist á. Hins vegar geta venjúlegar samræöur oröið aö hvisli á skemmtistaö ef hljómsveitin er hávaöasöm sem þær eru nú oft- ast. Þú skalt reyna aö venja þig af spéhrœöslu. 1 HrútsmerkÍÖ (21. marz—20. aprll). Það er allt undir yður sjálfum komið, hvernig bessi vika verður. Það mun ekki skorta tækifæri, en vandinn er sá að koma auga á þau og grípa gæsina begar hún gefst. Ef þér hafið einu sinni fundið stef- ið, þá er hægur vandi að semja iagið. Nautsmerkið (21. apríl—21. maí). Þau verða ekki svo fá, vandamálin, sem verða á vegi yðar þessa viku, en með heilbrigðri skynsemi og örlitlum kiókindum ætti að vera hægt að leysa öll þau stærstu. Annars gerist ekkert stórfenglegt í vik- unni og ekkert, sem er sérstaklega spennandi. Tvíburamerkið(22. maí—21. júní). Á laugardag eða sunnudag gerist atvik, sem gerir það að verkum, að hjarta yðar mun slá hraðar en það á vanda til. En allt. fer vel. Endirinn verður sá, að framtíðarhorfur yðar verða glæsilegri en þær hafa nokkurn tíma verið áður. KrabbamerkiS (22. júní—-22. júlí). Það verða gerðar til yðar miklar kröfur í þessari viku. Þér skuluð ekki hika við að taka að yður vanda- samari verk og meiri ábyrgð en þér hafið gert áður. Á heimilinu verður ofurlítið uppistand, en ef satt skal segja, hreinsar það bara loftið og verður til góðs. Ljónsmerkið (23. júlí—23. áqúst). í þessari viku verða stjörnurnar yður mjög hag- stæðar. Yður mun takast prýðilega að samræma ólík sjónarmið og aðstæður. Þér dettið ofan á gullvæga lausn á langvinnu deiluefni og vandamáli, og þetta mun gera líf yðar sólskinsbjart og skemmtilegt f náinni framtíð. Jómfrúarmerkið (24. ágúst—-23. september). Þér hafið kynnzt manni, sem þér munuð hagnast á, ekki beint. peningalega, heldur í sambandi við fyrir- greiðslu og góð sambönd. Þetta verður því einstak- lega gleðirík vika, fleytifull af glæstum fyrirheitum og björtum vonum. Vogarskálarmerkið (24. september—23. október). Fyrri helmingur vikunnar verður heldur erfiður og leiðinlegur. Þér verðið ásakaður um tillitsleysi gagn- vart manneskju, sem þér viljið síður en svo illt. Þetta veldur yður sárri líðan. Síðari hluti vikunnar verður ólíkt bjartari og skemmtilegri. Sporðdrekamerkið (24. október—22. nóvember). Eitthvað, sem á rætur sínar að rekja til fortíðar yðar, grípur skyndilega inn í líf yðar á nýjan leik. Þetta kemur örlitlu róti á hug yðar og tilfinningar um skeið, en reynið að sýna stillingu og rósemi. Á sviði ástarmálanna cr þetta mjög hagstæð vika hjá yður. Bogamannsmerkið (24. nóvember—22. desember). Einn af meðlimum fjölskyldunnar hefur mikla þörf fyrir að vera í nánari tengslum við yður en hingað til. Þér skuluð ekki slá hendi á móti vinarhótum hans, heldur sýna honum alla þá vinsemd og trúnað, sem þér getið. Það mun borga sig síðar meir. SteingeitarmerkiS (22. desember—20. janúar). Einhver, sem þér hafið treyst. um of mun ef til vill valda yður miklum vonbrigðum. Fyrst í stað mun yður falla þetta mjög þungt, en ekki skuluð þér láta hugfallast, heldur læra af reynslunni. Það er vara- samt að treysta of mikið á aðra en sjálfan sig. VatnsberamerkiS (21. janúar—19. febrúar). Þetta verður óheillasöm vika: Fjölmargir óheilla- vænlegir aðilar munu leitast við að draga yður á tálar. Yður skal því ráðlagt að beita öllum viljastyrk yðar og skapfestu til þess að koma í veg fyrir óáran og vitleysu. FiskamerkiS (20. febrúar—20. marz). Stjörnurnar segja, að þér hafið nú um skeið farið gáleysislega með peninga yðar og tíma. Þetta kemur yður rækilega í koll í þessari viku og beztu dagarnir til þess að kippa þessu í lag eru fimmtudagur og föstudagur. Mjög óvænt og skemmtilegt atvik kemur fyrir yður á laugardag, atvik, sem kitlar hégóma- girnd yðar ofurlitið. fXlkinn 7

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.