Fálkinn


Fálkinn - 10.04.1963, Síða 8

Fálkinn - 10.04.1963, Síða 8
 Mcd Bessa i bor Það er óþarfi að kynna frekar mann- inn sem þið sjáið myndirnar af á næstu fjórum síðum. Hér á eftir segir frá því, þegar þessar myndir voru teknar. Fimmtudaginn 21. marz 1963. Klukkan var 14.55 þegar við hringd- um í Þjóðleikhúsið þennan dag og spurðum um Bessa Bjarnason og feng- um þau andsvör að hann væri nýfarinn af æfingu og væri sennilega að finna í Landssmiðjunni. Við hringdum þang- að. — Landssmiðjan, góðan dag. — Ætli hann Bessi Bjanrason sé staddur þarna? — Jú eitthvað af honum er hér. Gerið svo vel. Og áður en við gátum sagt takk eða spurt hvort hann væri í pört- um var stúlkan farin og við heyrðum hringja og svo svaraði dimm rödd. — Halló. — Bessi Bjamason? — Jú, það er hann. — Þetta er á Fálkanum, vikublaði. Okkur langar til að fá þig á forsíðu. — Þið eruð snjallir þarna í Fálkanum. YJckur dettur margt sniðugt í hug. -r- Og svo vildum við gjarnan fá af þér nokkrar myndir í viðbót til að skrey-ta innsíður blaðisns með. 8 FALKINN — Hvernig myndir eiga þetta að vera? — Okkur datt í hug að fá af þér nokkrar myndir við myndastyttur. — Ha? — Já við myndastyttur. Lízt þér ekki á þetta? — Heyriði? — Já. — Býr eitthvað undir þessu? Ég á við hver er meiningin? — Gott páskablað. — Það er einmitt það. Ég get komið með ykkur á fimmtudaginn kemur. Ekki fyrr. Ég er alveg upptekinn þang- að til. Og þar með hófust samningarnir. Við sögðumst þurfa að fá þetta helzt strax í dag, þetta mundi taka svona tvo tíma. Bessi sagðist ekki hafa tvo tíma aflögu. Hann sagðist vera að vinna þarna í Landssmiðjunni og svo væri út- varpið klukkan hálf fimm. Við fengum hann til að lofa okkur klukkutíma. Og svo mæltum við okkur mót við hann klukkan 15.30 við bakdyr Þjóðleikhúss- ins þar sem hann sagðist geyma bílinn sinn. Hann var kominn þangað á undan okkur og beið við bílinn, grænan Vaux- hall 1962, R-2615. Þeir stóðu þar saman Bessí ög "Gunnar Eyjólfsson. — Þú ert bara með pressuna í eftir dragi, sagði Gunnar og leit á mynda- vélarnar. — Já, sagði Bessi. — Er þetta fyrir Æskuna eða Unga ísland? — Fálkann. — Eru þeir að reyna að koma blaðinu á hausinn eða hvað? — Þú ert ekki leikstjóri núna, Gunn- ar. — Það held ég að verði hlegið í bæn- um. — Það þýðir ekkert að vera vondur Gunnar. Þú getur ekki alltaf verið í blaðinu, nú má ég. — Uss, þessir blaðamenn, sagði Gunn- ar og gekk í burtu. — Sko, nú er hann vondur af því að það er ég. Svona er þetta. Og Bessi brosti. Við stigum uppí bílinn og Bessi ók út af planinu. — Hvert á að aka? — Við skulum taka landnámsmann- inn fyrstan. Við gengum upp tröppurnar upp að landnámsmanninum þar sem hann stóð á stalli sínum eins og frá honum hafði verið gengið. — Hvað á ég að gera? spurði Bessi. — Brosa og vera svolítið kátur, sagði ljósmyndarinn.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.