Fálkinn


Fálkinn - 10.04.1963, Side 10

Fálkinn - 10.04.1963, Side 10
BESSI — Það er skömm að því að hafa ekki stiga hérna. Hann er góður leikari hann Bessi. — Já, hann er það. — Ég þekkti hann þegar hann var strákur. Duglegur strákur hann Bessi. En ekki þýddi mikið að banna honum. Ef hann tók eitthvað í sig var ekki að orðlengja það, að hann kom því í fram- kvæmd. Þessar minningar höfðu greinilega örvandi áhrif á gamla manninn og hann fékk sér aftur í nefið. Það er tilkomu- mikið að fá sér í nefið. Fyrst er klútur- inn tekinn úr vasanum og maður snýtir sér og tekur fram hornið og slær því í hnéskelina og setur annaðhvort á hand- arbakið eða milliliðalaust í nefið. Þetta er fyrsti þáttur. Annar þáttur er að setja niður hornið og þurrka sér um 10 FÁLKINN nefið með klútnum. Þá nær leikurinn venjulega hámarki með einhverri spak- legri setningu. Hún kom líka. —r- Ég fór í leikhúsið um daginn og sá barnaleikritið. Þetta er gott leikrit. Ég heid að það hafi uppeldislegan til- gang að fara með börnin í leikhúsið. Nú voru þeir hættir að mynda og Bessi klifraði niður af stallinum og við gengum niður stíginn niður að bílnum. Við ókum vestur í Hljómskálagarð og töluðumst lítið við á leiðinni að öðru leyti en því, að við spurðum Bessa um bílinn. Hann sagði, að þetta væri góður bíll. Hann settist á bekkinn hjá Bertel og á eftir fór hann að styttu skáldsins. — Hann er orðinn svolítið grænn, hann Jónas, sagði hann og horfði á styttu skáldsins. — Og svo fuglarnir að ofan. — Já, styttur verða oft hvítar í koll- inn. Þegar við höfðum snúizt í kringum styttu skáldsins héldum við uppí garð- inn við hús rannsóknarlögreglunnar við Fríkirkjuveg. Þar er styttan Móðurást — af strák og stelpu í faðmlögum. í kuldanum virtust þau vera enn inni- legri. — Það er nú bara hvort ég fæ að vera með. — Þú reynir. — Já, en ég fer ekki að stofna til slagsmála hér. Við héldum í garðinn niðuraf gamla Kennaraskólanum. Sólin var að ganga bak við ský og það kólnaði óðum. Klukk- an var að verða hálf fimm. Pomona stóð þarna nakin með ávexti sína í höndunum. Strákar voru í Indíánaleik í næsta húsagarði. — Ég þori ekki mikið hérna, sagði Bessi. Ég er feiminn við hana þessa og sjáið alla bílana á Hringbrautinni. Þeir stoppa og fara að horfa á. — Við skulum fara uppað trjánum, sagði ljósmyndarinn. Ég ætla að taka forsíðuna. Það var orðið skrambi kalt þarna í garðinum. Þeir fundu góðan trjábol og Bessi setti sig í stellingar. — Á ég að brosa mikið? — Dálítið. — Mér er kalt. — Ég verð fljótur. Þetta tók dálítinn tíma og það var gaman að fylgjast með andlitinu á hon- um hvernig hann brosti. — Þú þarft ekki að brosa, — ég er búinn að taka. — Brosið er frosið. Það þiðnar með kvöldinu. Ég er orðinn of seinn niður í útvarp. Nú drepa þeim mig þegar ég kem. Er þetta ekki nóg fyrir ykkur? — Nei, við þurfum að fá þig á morg- un líka. Hvenær ert þú laus. — Verðið þið eins lengi? — Nei. — Þá skal ég fórna kaffitímanum. Hringið klukkan þrjú. Bessi hélt niður í útvarp en við fór- um uppá blað. Föstudagur 22. marz 1963. — Ekki takið þið myndir af Bessa í dag, sagði ritsjórinn og horfði á regnið falla á trén í garðinum fyrir utan. Það hummaði í Ijósmyndaranum. Ég þagði. Hann hélt sig við rigninguna fram að kaffi og ég hringdi í Bessa á tilsettum tíma. — Ha, sagði hann. Það er rigning. Þið hafið kannski ekki veitt því athygli. Ég eyðilegg fötin mín á þessu. Svo verð- ur mér kalt. — Þetta tekur ekki langa stund. — Jæja, það er bezt að vera laus við ykkur. Við hittum hann á planinu og við fundum fljótt að það lá vel á honum þrátt fyrir rigninguna. — Hvert höldum við í dag? — Vestur á tjarnarbrú.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.