Fálkinn


Fálkinn - 10.04.1963, Blaðsíða 13

Fálkinn - 10.04.1963, Blaðsíða 13
dreifðar og fátíðar. Það gátu liðið vikur og mánuðir, áður en báturinn næði landi, og á þeim tíma myndum við vera dauð úr hungri og þorsta. Ég mókti og féll litlu síð- ar í léttan óværan svefn. Er sólin reis úr hafinu og lit- aði himininn í austri eldrauð- an, opnaði ég augun og æpti. Þarna sat systir Sonja í botni björgunarbátsins og maulaði skipskexið og drakk vatn — svo djarfmannlega og eyðslugjarnt, að það gaf til kynna, að hún væri ekki enn komin í skilning um, hvað hafði raunverulega komið fyrir mig og hana, er við misstum sambandið við hina björgunarbátana. Ég skreið á augabragði fram í bátinn og safnaði vistunum að mér. Mér til skelfingar sá ég, að systir Sonja hafði borðað fleiri daga skammt af skipskex- inu og drukkið næstum fjórða hluta af vatns- skammti okkar. Ég bölvaði og gerði henni skiljanlegt, hvað biði okkar: Ferðalag á sjónum nætur og daga, auðveld bráð fyrir fyrsta og bezta storminn, á leiðum utan venjulegra skipaferða, sjóðandi heitt á daginn, ís- kalt á nóttunni, vítissultur, vítisþorsti. Á meðan leit ég yfir matarþirgðirnar. Ég reiknaði út, að með litlum skammti gætum við haldið það út í átta sólarhringa. Systir Sonja sat bara í botni bátsins og brosti sínu föla og milda brosi. Biblían lá í kjöltu hennar. Hin fal- legu bláu augu hennar hvíldu á mér og lýstu við- kvæmni og umburðarlyndi. Augljóst var, að hún áleit, að ég hefði of miklar — ónauðsynlegar — áhyggjur. — Guð mun hjálpa okkur! sagði hún. — Verið ekki hræddir. Það var eitthvað fagurt og áhrifamikið í hinu barna- lega trausti á, að Guð myndi grípa í taumana. Ekki eina sekúndu var hún í vafa um, að hinn mikli meistari myndi áður en leið á löngu draga skip inn á leið okkar, þann- ig að hún — án umtalsverðra tafa — gseti haldið áfram ferð sinni til Galapagoseyj- anna. Guð hafði sent hana í trúboðsferð — til að kynna boðskap kristindómsins hin- um heiðnu íbúum. Hún var tæki í hendi meistarans og hún átti ekki að deyja fyrr en hann hefði náð markmið- inu með þessu tæki. Systir Sonja talaði mikið þennan morgunn á hinu auða hafi, tvisvar skoraði hún á mig, að taka þátt í bæn Ég neitaði. Ég var önnum kafinn við að róa. Ég hafði ekki misst þá von, að komast norð-norð-austur inn að strönd Suður-Ameríku. Systir Sonja varð fámælt- ari og fámæltari eftir því, sem sólin hækkaði sig og nálgaðist hvirfilpunkt. Hún þjáðist í brennandi hitanum, og svitinn draup af andliti hennar og hinum mögru, vel- hirtu höndum. Hún horfði stöðugt út á hafið til að finna skipið, sem hinn mikli meist- ari myndi láta verða á leið okkar. En dagurinn leið og skipið sýndi sig ekki. Er við, þegar myrkrið skall á, krup- um saman í botni björgun- arbátsins, var vonleysis- svipur á hinu bólgna og sól- brennda andliti systur Sonju. hún grét hljóðlega og þrýsti biblíunni um leið að brjósti sér. Skipið kom ekki í ljós næsta dag, ekki heldur þriðja daginn. Og fjórða dag- inn gáði systir Sonja ekki lengur að neinu skipi. Hún lá örmagna og kvalin í botni bátsins, andlit hennar og hendur voru logbrennd af hinni miskunnarlausu sól, munnur hennar var hert lína með þurrum hrufum og hrukkum og augu hennar voru döpur og sljó. Ég var sjálfur í svipuðu ásigkomu- lagi. — Systir Sonja! stundi ég, þegar ég um miðjan dag rétti henni dagskammtinn af skipskexi og vatni. — Ég vil gjarna taka þátt í bæn núna! Það fór hrollur um mig, Framh. á bls. 33. • ÁLKINN 13

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.