Fálkinn


Fálkinn - 10.04.1963, Side 21

Fálkinn - 10.04.1963, Side 21
minntist á skíðaíþróttina hér áðan og nú er skíðalandsmótið fyrir dyrum. Við skulum því setja sem svo, að Jón Jóns- son og Guðmundur Guðmundsson keppi um fyrsta sætið í skíðagöngu. Guð- mundur brýtur skíðið sitt og Jön sigr- ar, og segjum, að ég lýsi þessu nákvæm- lega eins og það gekk fyrir sig. Þá get ég búizt við, að Jón komi bálreiður á minn fund og spyrji, hvort ég hafi ver- ið að gefa í skyn, að hann hafi sigrað bara af því að Guðmundur braut skíð- ið sitt! Setjum hins vegar svo, að ég hafi ekki sagt frá því, að Guðmundur braut skíðið sitt. Þá kemur hann bál- reiður til mín og spyr hvað það eigi að þýða að segja ekki frá því, að hann hafi brotið skíðið sitt og þar af leiðandi tapað! —- Nú má enginn skilja orð mín svo, að ég sé að kasta rýrð á íþrótta- mennina okkar, heldur vildi ég sýna með þessu dæmi hversu erfitt getur ver- ið að segja frá svo að öllum líki. — Eru ekki utanferðir þínar í sam- bandi við íþróttamót orðnar nokkuð margar? — Jú, þær eru orðnar æði margar, svo margar, að ég er eiginlega orðinn hálf leiður á þeim. Ég er víst búinn að koma til flestra landa í Vestur-Evrópu. Austur fyrir járntjald hef ég hins veg- ar aldrei komið, nema hvað ég fór einu sinni yfir til Austur-Berlínar — á eigin ábyrgð. Það er margs að minnast úr öllum þessum ferðum og mér kemur fyrst af öllu í hug Evrópumeistaramót- ið í Brússel 1950. Það er tvímælalaust eftirminnilegast allra móta sem ég hef séð. Þarna vorum við, kotríkið, eins og stórveldi. Hugsið ykkur, að Rússar fengu einn Evrópumeistara, en við tvo. Svíar fengu einn, Norðmenn einn og Finnar einn að mig minnir. — Einhver eftirminnilegasti knattspyrnukappleik- inn sem ég hef séð erlendis, var leikinn í ferð, sem ég fór með Akurnesingum um Þýzkaland. Þetta var gífurlega erf- iður leikur. Það var þrjátíu stiga hiti og glampandi sólskin. í hálfleik stóð leikurinn 1—0 fyrir Þjóðverja, og ég hef aldrei séð örþreyttari og aumari menn en Akurnesingana í hléinu. Þeir lágu hér og þar og okkur þótti gott, ef þeir mundu bara lifa leikinn af, hvern- ig svo sem hann færi. En svo undarlega brá við, að leiknum lauk með jafntefli 1—1. Ég held, að frammistaða okkar manna hafi sjaldan komið mér meir á óvart. — Einhvern tíma fórstu til Bandaríkj- anna. — Já, það var stórfengleg ferð að því undanskildu, að ekkert varð úr landsleiknum, sem átti að verða aðal- markmið ferðarinnar. Móttökurnar voru óvenju glæsilegar. Við bjuggum á beztu hótelum, máttum sjálfir ákveða á hvaða veitingahúsum við borðuðum. Við lék- um reyndar nokkra leiki, en þar var fremur um sýningu að ræða en keppni. Við lékum til dæmis við Vörubílstjóra- félagið í Philadelphiu, og þeir höfðu 30 til 40 menn eins og tíðkast í amerísku knattspyrnunni og skiptu stöðugt um. Einnig lékum við í New York við fót- botlameistara frá ísrael, og setninðar- athöfn þess leiks er einhver sú lengsta og einkennilegasta athöfn, sem ég hef orðið vitni að. Hún hófst með því að ísraelsmönnum var afhentur að gjöf heill strætisvagn og vagninum var stillt upp þarna inni á vellinum. Að loknum endalausum ræðuhöldum voru þjóð- söngvarnir sungnir. — Þjóðsöngvar ísrael og Bandaríkjanna voru sungnir með miklum glæsibrag, en loks kom okkar þjóðsöngur, sunginn af einni ein- ustu manneskju: Guðmundu Elíasdótt- Framh. á bls. 38. FÁLKINN 21

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.