Fálkinn


Fálkinn - 03.02.1964, Blaðsíða 18

Fálkinn - 03.02.1964, Blaðsíða 18
Hann hét Steve Miklos þó annað nafn hefði verið ritað í gestabók hússins. Hann hafði tekið sér gistingu und- ir þessu falska nafni klukkan þrjú um nóttina og nú — eftir tíu stunda svefn — sat hann við lítið borð við gluggann og lagði kapal. Giugginn sneri mót götunni og stöku sinnum leit hann upp og gægðist út á göt- una sem myndaði eina hliðina á torgi nokkru í þorpi einu. Gatan var hvít og brennheit í sumarsólinni. Hann hafði tekið spilastokkinn úr annarri töskunni, sem hann hafði borið upp klukkan þrjú um nóttina. Taska þessi stóð opin á stól þannig að hann átti hægt um vik að taka út henni það, sem hann þarfnaðist, í henni var lítið annað en nokkur fataplögg og snyrtiáhöld, þau allra nauðsynlegustu. Hin taskan var miklu minni og stóð á gólfinu nálægt rúminu, harðlæst og lokuð. í þeirri tösku voru eitt hundrað þúsund dal- ir í seðlum. Það var ekki að ófyrirsynju, sem hann gægðist öðru hvoru niður á götuna. Hann átti von á heimsókn. Hann hafði mælt sér mót við kven- mann þennan dag en stundin hafði ekki verið fastákveðin svo hann gat ekki vænzt þess að hún birtist ein- mitt í því að hann gægðist út á göt- una, — ef hún þá léti sjá sig á ann- að borð. Ástæðan til þess að hann lét skrá sig undir dulnefni á þetta gistihús klukkan þrjú um nótt og hafði mæl sér mót við þennan kvenmann var engin önnur en peningarnir i tösk- unni. Nóttina áður hafði hann tekið peningana úr annars manns peninga- skáp og konan, sem hann átti von á, var annars manns kona. Pening- arnir og konan höfðu tilheyrt sama manninum og þessi maður var hvor- tveggja í senn voldugur og hættu- legur. Steven Miklos, sem þarna sat og lagði kapal var hvorki voldugur né hættulegur. Hann var ekki einu sinni sériega greindur samkvæmt þeim mælihvarða sem lagður er á gáfur manna. Hins vegar var hann glæsi- legur maður og kvennagull mikið. Til þess að fullvissa sig enn frek- ar um að hann væri glæsilegur mað- ur og mikið kvennagull, þá reis hann á fætur og gekk inn í baðherbergið. Hann kveikti ljósið fyrir ofan hand- laugina og skoðaði sig gaumgæfilega í speglinum og virtist njóta þessarar athafnar til fullnustu en í raun og veru leit hann á friðleik sinn með nokkurs konar hálfkærings ánægju og þakklæti. Hann var langt frá því að vera hégómlegur og mat útlit sitt fyrir það eitt hvaða aðstöðu það veitti honum. Hann slæddi greiðu upp úr bakvasanum og þvældi henni gegnum dökkt hrokkið og gljáandi hárið. Lokkarnir hringuðu sig upp jafnótt og þeir losnuðu úr greiðu- tönnunum. Þegar hann hafði greitt 18 FÁLKINN sér skamma stund, þá gekk hann aftur að orðinu við gluggann. Spilin höfðu verið lögð með hárfínni nákvæmni í síðasta kaplinum, sem þó hafði ekki gengið upp. Hann safnaði saman spilunum á ný og stokkaði þau af slíkri íþrótt og leikni að ekki fór á milli mála að hér var á ferð- inni maður. sem kunni að handleika spil. Og þessu var einmitt þannig varið, hann hafði í rauninni haft ofan af fyrir sér með fjárhættuspili. Hann sat með spilastokkinn í vinstri hendi, tilbúinn að leggja nýjan kapal þegar hann leit út um gluggann og hann sat áfram í þessari stellingu næstum því eins og hann hefði verið dáleiddur með spilastokkinn snyrtilega í vinstri hendi og hægri höndin hvíldi yfir þeirri vinstri, því að langferðavagn hafði einmitt num- ið staðar við gangstéttina framan við gistihúsið, sem jafnframt var eins konar áfangastaður og út úr bílnum steig kona. Hann sá grilla í nælonskjört undir stuttu pilsinu þegar hún steig ofan úr þrepinu niður á gangstéttina. Hún tók tvö skref meðfram vagninum og stóð þar með tign- arlegri fyrirlitningu meðan bílstjórinn handlangaði farangur hennar inn í gisti- húsið. Konan fylgdi honum eftir. Hún bar sig tiginmannlega, hvelfdi barminn og beitti löngum grönnum fótleggjunum með útsmognum höfðingsbrag — og bar með sér að hún var einmitt það glæsikvendi, sem hún var í raun og veru. Hún hafði vanizt ýmsum munaði, þægilegu ríkmann- legu lífi, þessi kona sem Steve Miklos beið eftir. Hann hafði risið á fætur og hallaðist upp að glugganum meðan hún fylgdi bíl- stjóranum eftir inn í anddyri gistihússins og hann fann að hann var að komast í uppnám. Þetta var óvenjulegt og dálítið trufl- andi, því að öðru jöfnu var hann heldur kaldranalegur og fráhrindandi gagnvart kvenfólki, jafnvel þótt hann leyndi því og þessi viðbrögð hans gagnvart þessari einu konu, sem var frábrugðin öllum öðr- um, varð til þess að honum þótti hann standa uppi nakinn og viðkvæmur. Hann fann hjá sér sterka löngun til að fara þegar í stað niður til móts við hana, en það hefði verið gagnstætt áætluninni, sem hafði verið skipulögð út í ýstu æsar. Svo 'hann lét fallast niður á stólinn á ný og fann greinilega til hjartsláttar. Hún átti að panta herbergi og borga fyrirfram eins og hann hafði borgað tvo daga fyrirfram. Hún mundi bera því við að hún færi árla næsta morgun og vildi ekki tefja sig á því að gera upp um leið og hún færi. Þegar hún kæmi upp á herberg- ið sitt, mundi hún — að hæfilegum tima liðnum hringja á skiptiborðið og biðja um samband við Steve Miklos, vitaskuld undir því nafni, sem hann var innritaður. Þegar þau hefðu komizt að herbergis- númerinu, mundu þau hittast á öðru hvoru herberginu. Þar til að því kæmi urðu þau að þreyja biðina sitt í hvoru lagi. Hann reis á fæt- ur á ný. kveikti í sígarettu og lagðist á bakið upp í rúmi, saug djúpt að sér og blés frá sér þykkum reykjarstrók- um sem liðuðust upp í loftið og leyst- ust upp. Meðan hann beið þess að hún hringdi rifjaði hann upp fyrir sér tildrögin til þess að hann var nú stadd- ur hér. Hún hét Hanna Archer og var gift manni, sem hét Hugo Archer. Hann hafði mörg járn í eldinum og yfirvöldin grunaði meira en þau vissu um ýmislegt, sem hann tók sér fyrir hendur. Eitt af fyrir- tækjum hans var eins konar sambland af veitingahúsi og spilavíti. Þar var hægt að snæða úrvalsmat við lágværan hljóð- KVENNAGULL Í KAUPBÆTI SpennancSi sakamáiasaga

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.