Fálkinn


Fálkinn - 03.02.1964, Blaðsíða 21

Fálkinn - 03.02.1964, Blaðsíða 21
Hvalur 7 siglir inn Hvalfjörð með óvenjulegan feng, sjö hvali. Þrír hvalanna eru á tekin árið 1961 og segir frá þessari veiðiferð í greininni. Nú er öldin önnur í þessum efnum. Farið er eftir ströngustu reglum um veiðarnar og þótt fátt eitt sé vitað um lífshlaup þessara stærstu íbúa hafanna, er fylgzt með því að ofveiði höggvi ekki óbætanleg skörð í stofninn. Það var á sunnudegi seint í mai. Mannfjöldi niðri á Ægis- garði og kvöldsólin glampaði á sléttan hafflöt hafnarinnar og nýmálaða hvalfangarana, sem lágu í röð vestan við garð- inn. Fjöldi fólks á bryggjunni, stemmning í loftinu. Klukkan nákvæmlega níu er skipun gefin; Sleppa! og hvalveiði- skipin leggja frá landi hvert af öðru, þau snúa fyrir framan bryggjuhausinn og taka skriðið út úr hafnarmynninu um leið og þau kveðja með eimblístrun- um. Hvalveiðivertíð sumarsins er hafin. Skipin hafa samflot fyrsta spölinn. Þau fara á sömu ferð út Flóann og laust að Engey taka þau stefnu fyrir Snæfells- nes. Áhafnirnar ganga til hvílu, nema vaktin, því nú verður ekki slakað á unz haust gengur í garð og vertíð lýkur, en þangað til munu skipin ösla þessa sömu leið um sólbjartan dag eða úrvals nótt eftir að hafa fært feng að landi. Fyrir nokkru barði ég upp á hjá Friðrik Elí Gíslasyni, skip- stjóra á Hval 7 og bað hann að segja mér eitthvað um hval- veiðar. Hann er að ljúka við að byggja nýtt og glæsilegt ein- býlishús og var að spónleggja hurðir í fataskápana. Það fór svo, að ekki var smíðað meira þetta kvöld, heldur rabbað um veiðiskap. — Ég byrjaði á hvalveiðun- um vorið 1951, þá nýkominn úr Stýrimannaskólanum. Skip- stjórinn, sem jafnframt var skytta, eins og tíðast er á hval- veiðiskipunum, var norskur maður. Þetta var manni fram- andi veiðiskapur. Ég hef verið til sjós alla tíð, bæði á bátun- um og á togara en hvalveiðar eru allt annað og það þarf mikla sérhæfingu til þess að stunda þær veiðar með árangri. Maður þarf að læra að þekkja tegundir og að sjá hve stórir hvalirnir eru. Það er t. d. bann- að að skjóta langreyð sem er undir 50 fetum og meðan leyft var að skjóta bláhveli máttu þeir ekki vera minna en 65 feta. Nú hefur bláhvalur verið friðaður í nokkur ár til reynslu. Það var álitið að mjög væri gengið á stofninn. Einnig er stranglega bannað að skjóta svokölluð mjólkurhveli, þ. e. hvalkú með kálf. Það kem- ur fyrir að þetta hendir og þá hinni hlið skipsins. Myndin var venjulega undir þeim kringum- stæðum, að kálfurinn hefur orðið viðskila við móðurina eða drepist af einhverjum ástæð- um, því það eru fleiri en menn- irnir á eftir þessum greyjum. Ef þetta hendi erum við auð- vitað skyldugir til að koma með þá að landi en fáum ekkert fyrir. — Hvenær skaust þú fyrsta hvalinn? — Það var haustið 1951. Norski skipstjórinn sem var með skipið, fór heim til sín áður en vertíð lauk. Það var fenginn skipstjóri til þess að fara út með skipið, en ég var skytta í þessari ferð. Hafði ekki siglingatíma til þess að vera skipstjóri í þessari ferð. Þarna fékk ég minn fyrsta hval, 70 feta bláhval. Auðvitað var maður taugaspenntur, því Framhald á bls. 39. FÁLKINN 21

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.