Fálkinn


Fálkinn - 03.02.1964, Blaðsíða 23

Fálkinn - 03.02.1964, Blaðsíða 23
* * Þegar drottningin er á opinberum ferðalögum er ljósmyndurum að sjálfsögðu ekki mein- að að taka af henni myndir og Perkins verður að sitja á sér. mikið fyrir Perkins alla jafna. Þó situr hann oftast í framsæti drottningarbifreiðarinnar, og ef ekki þar þá í næsta bíl fast á eftir. íhugul augu hans fylgj- ast með öllum hreyfingum við- staddra, og það er sagt, að hann sé mjög fljótur að þrífa til byssunnar, sem hann geymir í litlu hulstri, sem hangir um öxl hans innan undir jakkan- um, og að hann sé mjög hitt- inn... Perkins er enginn nýgræðin- ur i starfinu. Áður en hann var til þess settur að gæta lífs og lima Elísabetar drottningar hafði hann haft þann starfa að vernda móður hennar, og líf- vörður hjá brezku konungs- fjölskyldunni hefur hann verið í tvo áratugi. Eðlilega eru miklar varúðar- ráðstafanir viðhafðar, þegar drottningin er á ferli. Sjaldan munu þær hafa verið jafn mikl- ar og síðastliðið sumar, þegar grísku konungshjónin heim- sóttu Bretland, en eins og flestum er enn í fersku minni voru þá mikil uppþot og kröfu- göngur í Lundúnum, sem land- flótta Grikkir og aðrir, er vildu mótmæla stjórnarfarinu í Grikklandi, sem til þessa hef- ur ekki þótt um of lýðræðis- legt, stóðu fyrir. Þegar drottn- ingin og maður hennar buðu grísku konungshjónunum í Aldwych-leikhúsið, voru hvorki meira né minna en 5000 ein- kennisbúnir lögreglumenn að störfum, auk fjölmargra óein- kennisbúinna. 1000 lögreglu- menn voru í næsta nágrenni sjálfs leikhússins. Þegar bif- reið drottningarinnar renndi upp að leikhúsinu og hún steig út, vatt hár og herðabreiður maður sér út úr framsæti bíls- ins og var, áður en nokkur átt- aði sig á, kominn á milli drottn- ingarinnar og mannfjöldans. Áður en menn þeir, er báru kröfuspjöldin höfðu almenni- lega áttað sig og aðeins sáralít- ið „baulað“ gekk drottningin inn um dyrnar — og enn var Perkins á milli hennar og mannfjöldans, eins og skjöld- ur. Ekki er ósennilegt, að hann hafi brosað feginsamlega, þeg- ar drottningin var komin inn. Þótt almennt sé ekki reikn- að með því að launmorðingjar ógni lífi Bretadrottningar, eins og fyrr segir, eru lífverðir hennar samt þrautþjálfaðir menn. Þeir hafa allir lært jap- anska glímu, eru góðar skytt- ur og fljótir að grípa til vopn- anna og læknar fylgjast stöð- ugt með heilsu þeirra. En Perk- ins og menn hans eru viðbúnir fleiru en morðárásum. Hvert sem drottningin fer í ferðalag fer Perkins á undan henni. Hann kannar leiðirnar, sem hún á að fara, hann talar við starfslið viðkomandi gisti- og veitingahúsa og hann ákveður, hvar menn hans eiga að standa vörð, þegar hennar hátign kemur. Og þótt drottningin fari aðeins í leikhúsið, kemur Framh. á bls. 36. FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.