Fálkinn - 03.02.1964, Page 32
RITHANDAR
LESTUR
Þessi skrift ber með sér, að þér séuð frekar hæglynd,
en eigið samt til með að vera nokkuð slæm á taugum.
Þér virðist vera nokkuð skapmikil og ákveðin.
Mér virðist þér hafa nokkuð miklar áhyggjur um þessar
mundir, sem ekki er gott að greiða úr.
Þér virðist nokkuð trúuð kona og hafið ánægju af léttri
tónlist.
Mér virðist þér hafa alist upp eins og á tanga. Á hægri
hönd er maður kemur beint að tanganum, gæti maður
séð vík eða bogadregna strandlengju og með henni eins
og hús á stangli. Ef maður færi með strandlengjunni, sæi
maður eins og þröngan dal á vinstri hönd, sem er girtur
fjallgörðum á tvo vegu.
Þér virðist hafa átt heima vinstra megin við gilið, eða
nær sjávarsíðunni.
Þér virðist umgangast mikið um þessar mundir dökk-
hærðan ungan pilt og skolhærða yngri stúlku.
Eins og ég sagði áðan, þá virðast hvíla yfir yður áhyggj-
ur sem erfitt væri að ráða bót á, en ég held yður væri
betra að standa á móti þeim heldur en snúa við þeim baki.
Þannig færi allt betur en á horfist.
Það gæti orðið bústaðaskipti hjá yður á næstunni en ég
kæti trúað að það yrði allt í lagi.
Ég gæti trúað að þér lentuð í smá orðaskiptum við konu
á líku reki og þér, bráðlega.
Það virðist hafa smá eftirköst en ekkert til að óttast.
Þér virðist dálítið slæm í höfði og fáið stundum aðkenn-
ingu af svima. Nokkuð slæm í baki og eins og færist yfir
yður máttleysi eða eins og viljaþrekið vilji bresta, en ég
vona að það lagist bráðlega.
Svo vona ég að þetta verði yður að einhverju liði.
Kær kveðja.
Ó.S.
HVAÐ GERiST I NÆSTU VIKU ?
Hrútsmerkiö (21. marz—20. avríl).
Þér ættuð að fara gætilega í fjármálunum um
þessar mundir og ekki að hleypa yður í þær skuld-
bindingar, sem þér ráðið ekki við. Leggið áherzlu
á umgengni við vini og heimilisfólk.
Nautsmerkiö (21. avríl—21. maí).
Ef þér hafið verið að bíða eftir rómantikinni
þá munuö þér verða áþreyfanlega var við hana
í þessari viku. Þér skuluð samt fara rólega 1
sakirnar og ekki ana í neina vitleysu.
Tvíburamerkiö (22. mai—21. iúní).
Þér eruð um þessar mundir of mikið á báðum
áttum og þér ættuð að reyna að taka einhverja
ákvörðun í málinu. Og þó þér gerið einhverja
vitleysu skuluð þér ekki láta hugfallast heldur
byria á nyjan ieik.
Krabamerkiö (22. iúní—22. júlV.
Þér virðist bera einhvern ótta í brjósti þessa
dagana en sá ótti er alveg ástæðulaus. Þér skuluð
reyna að rifa yður upp úr þessu þunglyndiskasti
og horfa biörtum augum á framtíðina. Það
skaðar aldrei.
LjónsmerkiÖ (23. iúlí—23. áaúst).
Það eru einhverjir erfiðleikar heima fvrir um
þessar mundir og þér ættuð að leggja aílt kapp
á að leysa þá og það auðvitað á sem heppileg-
astan hátt. Farið gætilega í fiármálunum.
Jómfrúarmerkiö (2U. áaúst—23. sevt.).
Þér afkastið ekki nógu miklu um þessar mund-
ir. Verið ekki að tvínóna við hlutina heldur
reynið að koma þeim í verk. Um þessar mundir
eru heppilegar afstöður á vinnustað og bær ættuð
þér að notfæra vður.
Voaarskálamerkiö (2í. sevt.—23. okt.).
Þér ættuð að reyna að gera yður einhvern daga-
mun um þessar mundir og vita hvort það mundi
ekki bæta skapið. Leiti gamall vinur yðar eftir
hjálp i þessari viku þá gerið fyrir hann það sem
þér getið.
Svorödrekamerkiö (2i. okt.—22. nóv.).
Þér ættuð að sinna áhugamálunum meira en
þér hafið gert hingað til. Nú eru mjög heppilegar
afstöður til þessara hluta og það ættuð þér að
notfæra yður. Dveljið ekki mikið að heiman um
þessar mundir.
Boaamannsmerkiö (23. nóv.—21. des.).
Það er til gott ráð, sem hljóðar eitthvað á þá
leið að hugsa fyrst og framkvæma síðan. Þetta
ættuð þér að hafa hugfast í þessari viku einkan-
lega ef um stórmál er að ræða.
Steinaeitarmerkiö (22. des.—20. ianúar).
Þessi vika gæti komið yður á óvart með ýmsum
hætti og þér ættuð að reyna að notfæra yður
þá möguleika sem hún býður upp á. Persóna, sem
þér hafið ekki veitt mikla athygli til þessa mun
koma vður nokkuð á óvart.
Vátnsberamerkiö (21. ianúar—18. febrúar).
Þér ættuð að fara í smáferðalag um helgina
ef þess er kostur. Farið í smáferðalag út í sveit
og vitið hvort það verður vður ekki til góðs. Far-
ið gætilega í fiármálunum.
Fislcamerkiö (19. febrúar—20 marz).
Þér eruð mjög spenntur um þessar mundir
varðandi samband yðar við eina ákveðna persónu.
Ef þér eruð nógu dugandi þá náið þér árangri
annars ekki. Sýnið nú hvað í yður býr og verið
duglegir.
32
FALKINN