Fálkinn - 06.07.1964, Síða 28
Beatles
B'iamh af bls 21.
Honum líkaði klippingin vel
og við hlógum okkur máttlaus
yfir henni. Hinir urðu stórhrifn-
ir. Beatles-hárgreiðslan hafði
haidið innreið sína.
— Stuart teiknaði meira og
meira, með eða án lita. Hann
skrifaði einnig nokkrar gaman-
sögut’, sem hann las upp fyrir„
mig og reif svo í agnir.
Astrid og Stuart voru stöðugt
saman. Þau fórnuðu hvert öðru
hverri fristund. Það var eins og
þau grunaði, að eitthvað hræði-
legt væri í vændum.
Stuart spilaði alltaf öðru
hvetju með hinum, en stöðugt
sjaldnar og sjaldnar. Og árið
1960 voru þeir aðallega fjórir,
sem héldu hópinn í spila-
mennskunni, Pete Best, George
Harrison, John Lennon og Paul
MacCartney. Svo tóku þeir
nýjan mann í hópinn, söngvar-
ann Tony Sheridan frá Liver-
pool.
Heilsu Stuart fór hrakandi.
Hann fékk allskyns grillur, sem
hræddu Astrid. Hann trúði
henni fyrir því að hann væri
hræddur um að hann væri með
krabbamein. Hann hætti að
borða eins og hann þurfti og
köstin urðu' verri. Dag einn
féll hann saman á götu. Hann
reyndi að stunda nám sitt
áfram, en sjúkdómurinn ágerð-
ist og hann varð æ meira rúm-
fastur.
AstricJ, sem nú er 25 ára
heldur áfram: — Hann þjáðist
af óskaplegum höfuðverk, og
ég fór að leita til lækna og
sérfræðinga. Þeir gátu ekki
sagt mér, hvað væri að. Bítl-
arnir fóru um stund aftur til
Englands. í apríl, 1962, áttu
þeir að koma fljúgandi aftur til
Hamborgar, og byrja að
skemmta í hinum nýopnaða
Stjörnuklúbbi. Stuart var hérna
hjá mér. Hann hlýtur að hafa
farið fram úr um miðja nótt.
Ég fann hann meðvitundarlaus-
an á gólfinu og hringdi á
sjúkraliðið.
Við ókum á fullri ferð til
spítalans. Stuart varð æ fölari.
Þegar þangað kom leit einn
læknanna á hann á börunum
og sagði mér, að hann væri
dáinn. Síðar fékk ég að vita,
að blóð hafði safnast á heila
hans.
— Ég var lömuð. í margar
klukkustundir sat ég og starði
á vegginn. Lífið hafði flogið frá
mér. Móðir Stuarts kom til að
sjá lík sonar síns.
Astrid ragði Bítlunum sjálf
fréttina við komu þeirra. —
John, sem var bezti vinur
Stuarts, tapaði sér næstum því.
Paul og Pete grétu. George og
móðir Stuarts og ég féllumst í
faðma.
voru samstundi3 & leið upp
stjörnuhimininn. Síðan hafa
Bítlarnir tvisvar skemmt I
Hamborg. Þeir munu aldrei
gleyma þessari borg og þeim
minningum, sem þar hafa
Dauði Stuarts hafði áhrif á
líf þeirra allra. The Beatles létu
enn verr en fyrr, eins og til að
reyna að breiða yfir það, sem
hafði gerzt. Og þessir ungu
drengir urðu fullorðnir á einni
nóttu. Þeir fundu sinn stíl og
brennzt í huga þeirra.
— Nú sef ég í herbergi Stu-
arts, segir Astrid. Það er svart,
vegna þess að mér líkar svart,
en það hefur ekkert með sorg-
ina vegna Stuarts að gera. í
horninu stendur gítarinn hans.
Stundum á nóttunni fannst mér.
hann vera hér, Þetta skal allta|,
verða herbergið hans og ekkerí
skal breytast. i
Og í herbergi við hliðina
geymir Astrid málverk og
teikningar Stuarts, sum þeirra
hálfkláruð. í vor var sýning &
þeim í Liverpools Walker Art
Gallery. Astrid safnar öllum
blaðaúrklippum um The Beat-
les en það er bara eitt andlit,
sem hún sér: Andlitið sem
vantar.
— Ég hef betri bústað fyrir
minninguna um Stuart en svart
herbergi, segir hún. — Það er
hjarta mitt.
Eins og fyrr segir hafa Bítl-
arnir og Astrid ávallt haldið
vináttu sinni og hún ferðast
oft til Liverpool og til Englands
og hittir þá félaga. Þeir taka
henni alltaf eins og einum af
sér, enda eiga þeir henni og
móður hennar margt að launa
frá því er svartast var í álinn
— og þeir hafa ekki gleymt
því. Og Astrid hefur einnig nóg
að bíta og brenna. Hún hefur
miklar tekjur af ljósmyndum
sínum, einkum af þeim félög-
um, og hún þarf ekki að vinna,
nema þegar henni sýnist.
Kvikmyndir
Framhald af bls. 26.
tímann, áður en Guðmundur
gat tryggt sér myndina endan-
lega, svona snemma! Má vissu-
lega segja, að hér sé um mikla
framför að ræða og vonandi
feta fleiri kvikmyndahús í fót-
spor Tónabíós í þessum málum,
en nóg um það.
Við höfum séð blaðaumsagn-
ir manna, sem séð hafa hluta úr
7 j
hinni nýju mynd Bítlanna á
prufusýningum og tónninn í
þeim umsögnum kom okkur á
óvart. Þeir fullyrða nefnilega,
að Bítlarnir geti „LEIKIГ og
séu meira að segja afbragðs
gamanleikarar. Sumir taka svo
djúpt í árinni að segja, að þeir
séu nýir Marx-bræður. Þótt
varlegast sé að taka svo há-
stemmt lof þeirra, sem hafa
orðið þeirrar velvildar aðnjót-
andi að sjá myndina, of alvar-
lega, þá vekja ummæli þeirra
óneitanlega forvitni. Og það
skyldi þó aldrei eiga eftir að
liggja fyrir virðulegum eldri
borgurum að standa í biðröð-
um ...
Handritið að myndinni er
skrifað af Alun Owen, sem hef-
ur skrifað fjölmörg sjónvarps-
handrit og hefur hlotið verð-
laun tyrir þann starfa sinn.
Hann hefur byggt myndina upp
28
FÁLKINN