Fálkinn


Fálkinn - 09.11.1964, Page 6

Fálkinn - 09.11.1964, Page 6
Perry Mason Bretlandís og Zsa Gabor Um þessar mundir er hin kunna kvik- myndaleikkona Zsa Zsa Gabor að undir- búa málssókn á hendur dóttur Lord Mar- cow Hannah. Sá sem sér um málið fyrir Zsa Zsa heitir David Jacobs og er sagður eins konar Perry Mason þeirra í Bretlandi. Hann er vel þekktur lögfræðingur og margir hans viðskiptavinir eru í hærri klassanum ef svo má segja. David er auð- ugur maður að því að sagt er, gengur alltaf mjög vel klæddur, hefur sex einka- ritara og þrjá bílstjóra. Og nú eru menn að velta því fyrir sér hvort hinn ungi lögfræðingur muni ekki verða ástfanginn af Zsa Zsa og eftir því sem við vitum bezt er hún ekki gift um þessar mundir. sá bezli Maður nokkur, sem vann hjá þekktri lieild- verzlun hér í borginni, kom að máli við yfir- mann sinn og bað um tveggja daga frí. — Hvað œtlarðu að gera með það? spurði yfirmaðurinn. — Ég œtla að gifta mig. ■— Hvers vegna gerðirðu það ekki í sumarleyfinu? — Ég tímdi ekki að eyða því í svoleiðis. Óspektir á hljómleikum The Rolling Stones Við höfum iðulega heyrt um óspektir, yfirlið > og allt þess háttar varðandi Bítlana þegar þeir halda hljómleika. En það eru fleiri en Bítlarnir sem valda yfirliðum og óspektum á hljómleik- um. Margir eru þeir sem telja The Rolling Stones betri hljómsveit en Bítlana og víst er að þeir eiga marga aðdáendur ekki síður en Bítl- arnir. Nú einhverju sinni í haust héldu The Rolling Stones hljómleika í Top Ten Club í Manchester að viðstöddum 3500 áhorfendum. Á þessum hljómleikum fór allt í bál og brand eftir því sem við höfum fregnað. Hljómsveitin mætti ekki á réttum tíma og áheyrendur fóru að ókyrrast. Þá var tekið til þess ráðs að spila nokkrar hljóm- plötur og sagt að hljómsveitin væri komin en væri að stilla hljóðfæi'in. Ekki varð þetta nóg til að lægja óánægjuna í áheyrendum því þeir kölluðu af öllum lífs og sálar kröftum „We Want The Stones.“ Og svo þegar hljómsveitin loksins kom fór allt í bál og brand. 70 voru fluttir á slysavarðstofu til læknisaðgerðar og tvær lögreglukonur slösuðust einnig þegar þær voru að stilla til friðar. Meðfylgjandi mynd er tekin á hljómleikun- . um meðan lætin stóðu sem hæst og sjáum við hér lögreglu fjarlægja einn af ólátaseggjunum i meðan Mick Jagger syngur. Hin sænsk-ameríska kvikmyndaieikkona Ann Margaret var í sumar suður á Spáni sem raunar margar fleiri stjörnur. Hún umgekkst all náið einn nautabana þarna suðurfrá en það endaði allt með ósköpum. Leikkonan reiddist eitthvað við nauta- banann og klóraði hann allan í andlitinu svo að blóð lagaði úr. Annars var Ann Margaret að leika í kvikmynd þarna suður frá og kemur hún líklega á markað- inn nú í haust. Ekki vitum við gjörla um hvað þessi mynd fjallar en mótleikari Ann er Garner McKay. Kvikmyndin mun heita „Pleasure Seakers" og birt- um við hér mynd af tveimur aðalleikurunum Ann Margaret og Gardner McKay. 6 FÁLKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.