Fálkinn - 09.11.1964, Blaðsíða 28
Skúli Skúlason
spáir í stjörnurnar
Skúli Skúlason hefur nú tekið að sér að
gera vikulegar stjörnuspár fyrir lesendur
Fálkans, en hann hefur að undanförnu ann-
azt slíkar spár fyrir Vísi um nokkurt skeið.
Jafnframt heldur Skúli áfram að svara
bréfum lesenda blaðsins, en hann er sem
kunnugt er Astró. Bréf til hans skal stíla á
Vikublaðið Fálkann, merkt Astró.
HVAÐ GERIST ÞESSA VIKU
Hrúturinn, 21. marz—20. april:
ÝmisleKt varðandi sameginleK f.iármál
verður að likindum dregið fram í dagsljósið
þessa viku, og er því eins gott að hafa allt
á hreinu varðandi þau mál. Leitaðu ráða
hiá félaga þínum.
Nautiö. 21 avril—21. mai:
Þú ættir ekki að eyða of miklum tíma
eða peningum í skemmtanir þessa viku, en
reyndu að koma lagi á það, sem aflaga hef-
ur farið í skiptum þínum við annað fólk.
Tvíburarnir, 22. maí—21. júní:
Ef heilsan hefur ekki verið sem bezt
undanfarið, er nú ágætt tækifæri til að fá
úr því skorið, hvað amar að. Ok ef aðstæð-
ur leyfa, væri ferð í kvikmyndahús eða
leikhús um helgina ánæg.iuleg.
Krabbinn, 22. júní—23. júU:
Heppilegt að byrja nú á nýju tómstunda-
starfi, en varastu að láta ættingja þína eða
vini koma í veg fyrir, að svo megi verða.
Ekki mundi vera sem heppilegast að leggja
út í feí-ðalög.
Ljóniö, 2U. júlí—23. áaúst:
Nú er ágætt tækifæri til að koma ýmsu
því í lag varðandi heimilið og fjölskylduna,
sem betur hefði mátt fara að undanförnu.
Stutt ferðalag um helgina væri til ánægju,
svo fremi að það létti ekki pyngjuna of
mikið.
Meyjan, 2k. ápúst—23. sept.:
Reyndu að leysa sem haganlegast úr
persónulegum vandamálum þínum. Þér
gæti borizt skemmtilegt bréf og jafnvel
óvæntir peningar í vikunni. Starfsmenn
þínir gætu orðið þér nokkuð erfiðir.
Voain, 2h. sevt.—23. okt.:
Fjármálin verða ofarlega á baugi hjá þér
þessa viku. Það má jafnvel búast við, að
þú auðgist eitthvað, en um leið máttu búast
við, að nokkurrar öfundar muni gæta í þinn
garð.
Drekinn, 2h. olct.—22. nóv.:
Vertu ekki of eigingjarn. Vinir þinir
kunna að snúa baki við Þér af þeim sökum.
Farðu gætilega í fjármálunum, og stofnaðu
ekki til óþarfa skulda eða legðu ekki út í
vafasamar framkvæmdir.
Boaamaöurinn, 23. nóv.—21. des.:
Þú ættir að taka þér eins mikla hvíld og
þú hefur tækifæri til, því búast má við, að
þú verðir nokkuð viðkvæmur til heilsunnar.
Nágrannar þínir reynast þér kannski nokk-
uð erfiðir.
Steinaeitin, 22. des.—20. janúar:
Vonir þínar varðandi visst málefni munu
nú eiga fyrir sér að rætast, en bó kannski
ekki á þann hátt, sem þú hefðir helzt kosið.
Fjármálin eru ekki hagstæð nú sem stend-
ur.
Vatnsberinn, 21. janúar—19. febrúar:
Þér gæti boðizt tækifæri til að fá betri
stöðu í þjóðfélaginu, en gættu þess að of-
metnast ekki. Reyndu að láta fjölskyldu
þína n.ióta þess með þér, sem áunnizt hefur.
FiskamerkiÖ, 20. febrúar—20. marz:
Það eru miklar líkur til, að þér bjóðist
óvænt tækifæri til ferðalaga, og er sjálfsagt
að notfæra sér það, svo framarlega sem það
kemur ekki fram á atvinnu þinni. Þú færð
óvænta aðstoð frá vinum þínum.
28 FÁLKINN