Fálkinn - 09.11.1964, Blaðsíða 41
Lifur með eplum
Veljið aflangt og ekki mjög djúpt eldfast mót. Hyljið
botninn í mótinu með þéttu lagi af flysjuðum eplum,
sem skorin hafa verið i báta. Hellið dálitlu af bræddu
smjöri yfir og setjið síðan mótið inn í heitan ofn
(um 200°).
Hreinsið meðalstóran lauk, skerið hann í þunnar sneið-
ar, sem steiktar eru í smjörlíki á pönnu.
Skerið lambalifur í þunnar sneiðar. á ská, hreinsið
burt allar æðar og himnur. Veltið lifrinni upp úr hveiti,
sem kryddað er með salti og pipar. Steikt upp úr vel
heitri feiti. Athugið að lifrin brenni ekki og harðsteikist
ekki um of.
Lauknum og lifrarbitunum raðað ofan á eplin, pannan
soðin út með 1 dl af vatni. Hellt í mótið. Borið fram
sjóðandi heitt með nýsoðnum kartöflum eða hráu græn-
metissalati.
Með kaffinu
tialop-kaka.
250 g smjöi’líki
125 g sykur
500 g hveiti
3 tsk. lyftiduft
1 tsk. kardemommur
3 egg
V\ 1 mjólk
Rúsínur, súkkat
Rifinn sítrónubörkur.
Smjörlíki, sykur og eggjarauður hrært
létt og ljóst. Hveiti og lyftidufti sáldrað
saman, hrært saman við deigið ásamt
mjólkinni. Þá er kardemommunum, ávöxt-
unum og í’ifna sítrónuberkinum hrært
saman við. Síðast er stifþeyttum eggja-
hvitunum blandað varlega saman við.
Deiginu er hellt í velsmurða ofnskúffu,
sykri stráð ofan á. Bakað við 175—200° í
um Vz klst.
Kokóskökur með cplum.
Mördeig:
100 g smjörlíki
1 msk. sykur
3 di hveiti
Vz tsk. lyftiduft
2 msk. mjólk.
Ofan á:
2 egg 2 dl sykur
4 dl kókósmjöl 2 msk. bráðið smjör.
Innan í:
3—4 epli.
Mördeigið: Hveiti og lyftidufti sáldrað á borð, smjörlíkið mulið
Framhald á bls. 42.
FÁLKINN 41