Fálkinn - 09.11.1964, Blaðsíða 31
að tala við þig, meistari. Ég
átti við stjórnendur getraun-
anna, tautaði Don Camillo um
leið og hann sofnaði.
2.
ÍIEFND
IK».\ €AMILLO§!
— Meistari, sagði Don Ca-
millo, — þetta er of langt geng-
ið, ég skal merja hann undir
hæl.
— Don Camillo, svaraði
Kristur hinn krossfesti yfir alt-
arinu, — þeir gengu líka nokk-
uð langt, þegar þeir krossfestu
mig, en mér tókst þó að fyrir-
gefa þeim.
— Já, en þeir vissu ekki,
hvað þeir voru að gera, sagði
Don Camillo. — Peppone vissi
það vel. Hann hafði augun opin
og á ekki skilið neina miskunn.
— Líttu nú í eigin barm,
Don Camillo, sagði Kristur.
— Hefurðu ekki verið heldur
harður við Peppone síðan hann
varð þingmaður?
Þessi spurning kom illa við
Don Camillo, og hann styggðist
við.
— Þú mundir ekki segja
þetta, meistari, ef þú þekktir
mig svolítið betur, andmælti
hann.
— Ég þekki þig nógu vel,
svaraði Kristur.
Don Camillo kunni sér hóf
á þessum stað. Hann kraup í
flýti á kné, krossaði sig, reis
svo hvatlega á fætur og gekk
út. En þegar hann kom út úr
kirkjunni, þrútnaði reiði hans
enn að mun. Honum hafði orð-
ið litið heim að dyrum prests-
hússins og séð, að einhver hafði
límt allstórt blað á vegginn við
dyrnar. Þar gat að lesa tilkynn-
ingu þá, sem var undirrót hinn-
ar upphaflegu gremju hans. Sú
saga var nú tveggja ára gömul.
Eitt sinn á myrku vetrar-
kvöldi, er Don Camillo var í
þann veginn að ganga til náða,
var drepið á dyr prestsseturs-
ins. Don Camillo sá þegar, að
þar var Peppone kominn, eins
og hann hafði raunar búizt við.
Presturinn bauð gestinum sæti
og rétti honum vínglas, sem
Peppone tæmdi í einum teyg.
Tvö glös þurfti tii viðbótar tii
þess að losa um málbein hans.
Loks slitnaði þó haftið:
— Ég þoli þetta ekki lengur.
Peppone dró allmikinn
böggul undan kápu sinni.
— Ég hef ekki getað sofið
rólegan blund síðan þetta kom
í hús mitt, sagði hann.
Þarna voru tíu milljón lír-
urnar aftur komnar, og Don
Camillo svaraði:
— Settu þær þá í banka.
Peppone hló við háðslega.
Þetta er léleg fyndni. Held-
urðu að kommúnistískur bæj-
arstjóri geti sett tíu milljónir
líra í banka án þess að segja,
hvernig hann hafi komizt yfir
þær?
— Breyttu þeim þá í gull
og grafðu það í jörð niður.
— Þá mundi ég ekki hafa
neitt gagn af þessum fjármun-
um mínum.
Don Camillo var orðinn mjög
syfjaður, en þó var þolinmæði
hans ekki alveg þrotin.
— Leystu þá frá skjóðunni,
félagi, sagði hann vinsamlega.
— Við skulum komast að
kjarna málsins.
— Jæja, þá það, faðir. Þú
þekkir vafalaust þennan fjár-
málamann, sem tekur að sér að
ávaxta annarra manna fé.
— Nei, ég þekki hann ekki.
— Jú, áreiðanlega. Hann er
af þínu sauðahúsi. Ég á við
manninn, sem hagnast vel í
skiptum við kirkjunnar fólk en
léttir svo á samvizku sinni með
því að gefa stórgjafir til kristi-
legs líknarstarfs.
— Já, ég held ég viti, hvern
þú átt við. En ég hef aldrei
átt nein skipti við hann.
— En þú getur auðveldlega
komizt i samband við hann.
Presturinn í Torricella er einn
umboðsmanna hans.
Don Camillo hristi höfuðið
þreytulega.
— Félagi, sagði hann. — Þó
að guð gefi þér góðan hlut
þarftu ekki endilega að krefj-
ast meira.
— Þetta kemur guði ekkert
við, faðir. Ég hafði heppnina
með mér, og nú vil ég njóta
góðs af því.
— Þá er málið augljóst.
Farðu til prestsins í Torricella
og biddu hann liðsinnis.
— Nei, það get ég ekki. Fólk
þekkir mig allt of vel til þess.
Ef fólk sér mig vera að snigl-
ast kringum prestssetrið í
Torricella eða hús fjármála-
mannsins, glata ég öllu áliti.
Hugsaðu þér það hneyksli, að
háttsettur kommúnisti eigi í
bralli við kirkjuna og hina
meiri háttar fjármálamenn. Ef
ég get haldið nafni mínu utan
við þetta, getur allt farið vel.
Framhald á bls. 33.
LEIGUILI G - ÁÆTLi A AfiU LLG
SJIJKKAFLIJG
HELLISSANDUR
PATREKSFJÖRÐUR
ÞINGEYRI
FLATEYRI
REYKJANES
GJÖGUR
HÓLMAVlK
REYKHÓLAR
STYKKISHÓLMUR
VOPNAFJÖRÐUR
TIL LEIGUFLUGS
HÖFUM VIÐ ÞESSAR
FLUGVÉLAR
BEECHCRAFT
BONANZA
(6 farþega)
DE HAVILAND DOVE
(9 farþega)
TWIN PIONEER
(16 farþega)
CESSNA 180
(3 farþega)
Leitið frckari upplýsinga á afgreiðslu
Flugþjónusta Björns Pálssonar
á Rcjkjavíkurllugvclli
Sími 21611 — 21612
BALLETTO - HRÆRIVÉLIN
Eins árs ábyrgð
Sími 1-33-33 • 1-16-20
er handhægasta
húshjálpin
F I S L É T T
BALLETTO
kostar aðeins kr: 1282,—
FALKINN
S)