Fálkinn - 28.12.1964, Síða 5
Þá vil ég byrja á því að
segja, að kurteisi hér almennt
hefur hrakað mjög á seinni
árum. Hverju þetta er að kenna
veit ég ekki og hef ekki ætlað
mér að kenna þar neinum um,
hvorki foreldrum' né skólum
eins og nú er víst tízka. En
þetta með hnignunina er stað-
reynd. Menn bjóða vart góðan
dag lengur, né heilsa þeim
mönnum, sem þeir þekkja á
götum. Og allir eru orðnir dús,
þótt það sé sjálfsögð kurteisi
að þéra bráðókunnugar mann-
eskjur. Og þegar maður fer að
hitta einhvern að máli á opin-
berum skrifstofum, er undir
hælinn lagt, að manni sé boðið
sæti. Það mætti nefna mörg
dæmi í þessa áttina, en ég læt
þetta nægja. Vil aðeins að end-
ingu koma fram með þá uppá-
stungu að kurteisi verði ein af
skyldunámsgreinum í skólun-
um.
Með þökk fyrir birtinguna.
Jóst.
Svar:
Þaö munu margir vera á sama
máli og bréfritari aö kurteisi al-
mennt sé mjög aö fara aftur hér
á landi nú á dögum eins og svo
mörgu ööru. Þessi tillaga aö kenna
kurteisi i skólum hefur víst oft
komiö fram áöur og eittlivaö mun
liún þar kennd þótt liún sé ekki
lögfest skyldunámsgrein. Þá eru
þaö þéringarnar. ÞaÖ mál er nú
nokkuö viökvœmt hjá mörgum.
Þaö var mikiö rœtt liér í Póst-
hólfinu ekki alis fyrir löngu og
slciptust menn i tvo hópa.
Annars munu flestir á þvi aö
þaö sé sjálfsögö kurteisi aö þéra
ókunnuga og mun þaö vera hin
almenna regla. Annars er rétt í
þessu sambandi aö minnast á þá
skóla sem sprottiö hafa hér upp
seinni árin og lieita tízkuskólar. t
þeim er kennd kurteisi.
Götuvitar.
Háttvirta Pósthólf!
Varla líður svo dagur, að
maður lesi ekki í blöðunum
fréttir um umferðarslys og
þessum fréttum fjölgar stöðugt.
Það er alltaf talað um að eitt-
hvað þurfi að gera róttækt til
að koma í veg fyrir þessi hrylli-
legu slys af völdum umferðar-
innar, en því miður er sorglega
lítið gert.
Á mörg horn hér vantar
götuljós, umferðarljós eða götu-
vita eins og þeir eru kallaðir
hér. Og þeir, sem eru í notkun,
eru mjög gamaldags. Víða er-
lendis er hætt að nota slíka
hluti í þessum tilgangi. Þá er
þess og að gæta, að margir
þessara götuvita eru oft bilaðir,
og ég hef tekið eftir því, að
þeir eru jafnvel bilaðir dögum
saman. Ég minnist þess, að ég
las frétt um daginn þar sem
skýrt var frá að þennan um-
rædda dag hefðu orðið fleiri
árekstrar í Reykjavík en
nokkru sinni fyrr á einum
degi. Þá var sagt, að öll kurl
væru samt ekki komin til graf-
ar, þar sem lögreglan hefði
ekki komizt yfir að kanna allt
vegna fámennis. Að hafa lög-
regluliðið svo fámennt, mest
vegna þess að þeim eru ekki
greidd sómasamleg laun, er ó-
afsakanlegt með öllu.
Bílstj.
Svar:
Götuvitarnir eru kannski ekki
bilaöir dögum saman, en hitt er
annaö mál, aö þeir bila oft. Og
þaö er mjög slæmt aö lögreglan
skuli vera svona fámenn.
Hvað er annars
afbrýðisemi.
Kæri Fálki!
Ég er með strák sem er jafn-
gamall og ég. Við erum seytján
ára. Við höfum talað um það
að gifta okkur, en ekki alveg
strax. Hann vill kvænast strax,
en ég vil það ekki af því að
mig langar til að leika mér
meira áður en ég fer að eign-
ast börn. En þessi strákur, sem
ég er með, er svo hræðilega
afbrýðisamur. Ef ég brosi til
annarra stráka, tala við þá,
dansa við þá, eða geng með
þeim á götu, verður hann al-
veg hræðilega vondur og er í
fýlu lengi á eftir. Um daginn
varð hann svo vondur, að ég
hélt að hann mundi kannski
berja mig. Hann var heima hjá
mér er síminn hringdi. Hann
svaraði og þá var strákur að
spyrja um mig. Þessi strákur,
sem hringdi til mín, er bara
kunningi minn og gamall fé-
lagi. Það er ekkert milli mín
og hans sem hinn strákurinn
gæti verið vondur út af. Hvað
á ég að gera við þessari af-
brýðisemi? Hvernig á ég að
lækna hann af þessu? Hvað er
annars afbrýðisemi?
Svaraðu mér nú fljótt góði
Fálká.
E.
Svar:
Þú veröur aö venja hann af
þessu. Hvernig? Þaö er ekki gott
aö segja. Þú veröur aö finna þaö
út sjálf, en margar leiöir eru
sjálfsagt til.
Afbrýöisemi er leiöinlegt af-
brigöi af eigingi"ni.
Skólavörðustig 41. Sími 20235.
AGFA-rapid-filmur
Auðviíað cru faanlegar allar
gerðir af filinum ■
H AI*II>-m> mlavclar nar
Viðgerðir- og
varahlutaþjónusta
ÁRS ÁBYRGÐ
EINKA UMBOÐ
Margar gerðir af
sýningartjöldum
Sýningarlampar
Flestar gerðir
af litfilmum
35 mm—8 mm
svart-hvítar
allar stærðir
8 mm filmuskoðarar,
límarar — lím
Margar gerðir
af Ijósmyndavélum
8 mm tökuvélum
8 mm — 16 mm — 35 mm
70 mm sýningarvélum
fyrir heimili, skóla,
félagsheimili og
kvikmyndahús.
Transistor ferðatæki og
viðgerðaþjónusta
jLeiðbeinum meðhöndlun
á sýninga- og
tökuvélum
8—16 mm filmuleiga
Fullkomnasta
litskuggamynda-
sýningavélin
með innbyggðu
bendiljósi.
FALKINN
5