Fálkinn - 28.12.1964, Qupperneq 8
HVAÐ SKEÐl
HOROSKOP ANNO DOMINI 1965
Svo sem önnur Herrans undanfarin hefst ár þetta á sam-
hringingu kaþólskra í Landakotinu, að hvurri endaðri vor
signaði útvarpspáfi, Hans Margfaldleiki Vilhjálmur Þ. G.
(ylfabróðir) býður nýju ári í bæinn, eftir að hafa því
gamla um bakdyrnar útsparkað. Er þá mikill söfnuður
vors páfa og þó fjölmennastur meðal framliðinna. Hefst
svo janúar með almennri þynnku, móralskri kortslútningu
og vaxandi rukkarahræðslu en febrúar verður honum að
því einu leyti skárri, að hann hefur færri daga.
Anno Domini 1965 verður merkilegt ár og jafnvel ekki
laust við tákn og stórmerki. Seint á útmánuðum sjá nokkr-
ir menn óljúgfróðir Lagarfljótsorminn, og verður svo bylt
við feiknleik hans að af þeim rennur og hverfur ormur-
inn. Hækkar sýn þessi dagleiguna fyrir veiðistöngina uppí
milljón og fá færri en vilja — en enginn orminn, sem þá
hefur verið lagður á allt gullið í bankaútibúinu á Egils-
stöðum, og þýðir skiplausum útgerðarmönnum ekki þangað
að koma. Litlu síðar lendir Marzfar í Skagafirði og spur
kaptuginn eftir Birni á Löngumýri en Björn lýsir yfir
því, að hann tali ekki við
geimskip.
Það gerist í maí seint að
Gylfi Þ. hefur drauma
þunga í Kongóreisu, er hann
ræður fyrir stjórnarslitum
hér heima; rís hann þá upp
við dogg og skipar sjálfan
sig bankastjóra án banka
en Helga Sæm dr. i. h. c. —
doktor in honoris cratie —
og verður síðan etinn án
servíettu og borðbæna af
kollega sínum. Verður það
upphaf mælskulistar í því sótsvarta Kongó, og endalok
mannáts, því að þar eftir gefa svartir sér ekki tíma til
að tyggja. Afleggjast þá og mikið til utanfarir hérlendra
ráðherra, svo að fjármálaráðherra leggst út milli jökla í
þann mund sem skattaskráin verður framlögð. Forsætis-
ráðherra bregður sér samt í aðkallandi skyndireisur eftir
að hafa látið stimpla 1 diplomatpassa sinn að hann sé óætur.
Sildveiði bærileg fyrst, en spillist fljótt fyrir velmeinta,
en misráðna leit Jakobs fiskifræðings. Vildi hann gerast
mellufær í síldarsprokinu, að hann gæti ginnt torfurnar
i nætur, jafnvel afvegaleitt norður á Siglufjarðarmið með
loforðum um Rússlandsferðir og stefnumót bak við rósa-
runna; en sú tilraun snýst á öfugan máta og síldin lærir
talstöðvarsprokið. Axla þá Einar og kó sín skinn til Moskvu
austur, bregða Bressnéf á hljóðskraf og plata hann um
milljónrúbblnalán til niðurlagningar á rauðátu. Hinsvegar
hafnar Bréssnéf málaleitan Sjobegga afa, varðandi lán til
niðurlagningar á vatnaskrímslum. þar sem sovéttið hefur
gert fimm ára áætlun um að verða sjálfu sér nógt í þeim
efnum. En Sjobeggi afi er þá í Kreml til að vera við-
staddur upphafninguna á guðinu Stalin úr þeirri helgi-
spjalladós, hvar í sá illi bandarikjaleppur Krússi
hafði það niðurlagt og í túngarðsholu innstungið.
Það sumar verða kerlingabækur flestar skrifaðar á íslandi,
og skáldalaunum úthlutað á þéttprentaðan hektara, sam-
kvæmt uppmælingu trúnaðarmanna Búnaðarfélagsins, en
útgefendur gjalda ritlaun í gólfábreiðum, húsgögnum og
búsáhöldum allt niður í hraðsuðuketil. Gerast þá hús-
bændur húsfreyjur, en húsfreyjur svo ritglaðar, að þær
skrifa samtímis sína bókina hvorri hendi til að hafa undan
innstreymi andagiftarinnar og standa þó á blístri, en það
ákvæði verður í skólalöggjöfina upptekið, að telpum skuli
einnig kennt að skrifa með tánum. Þá verður aftur tekið
að skrá handrit á skinn á íslandi, því að margur karlmað-
urinn fær sína hrygglengju útskrifaða kvenlegum skáld-
verkum, sumir hverju ofan í annað og með ýmsum rithönd-
um; getur og enn farið svo, þá er útlendir taka aftur að
grafa upp skinnhandrit á íslandi að öldum liðnum, að
örðugt reynist að ákveða höfundana, þó að flest verði vitað
um eigendur skinnsins. Lagður verður kjölur að fljótandi
farmanna- og fiskimannahöll, hvarí verður Hótel Veiðisaga
— verður þar allt á floti allstaðar, enda bar komið fyrir í
reykháfnum. Þá verða hótel svo mörg, að gera verður þar
lokrekkjur með slagbröndum, svo að stjórar steli ekki sof-
andi gestum úr rúmum hver frá öðrum; verða þá engir
húsnæðislausir í borginni nema borgarbúar og þykir fram-
för. Þá gangast búnaðarsamtökin fyrir enskunámskeiðum
uppi á heiðum að sumarlagi — fyrir Lundúnalömb. Sú
fregn flýgur fyrir að Filipus drottningarmaður muni
skreppa hingað aftur að skoða fleiri skrýtna fugla, hvað
verður til þess að blaðamenn láta sauma sér skriðbuxur.
Hafinn útflutningur á fegurðardrottningahunangi á vegum
Einars og þykir prímavara. Þá verður öll framræzlufram-
kvæmd í sveitum stöðvuð í bili, þar eð skurðgröfur allar
verða notaðar til að grafa fyrir veiðiám. Hafin framleiðsla
gervistórlaxa úr plasti og verður þá veiðilegt að líta í
mörgum hylnum, þó að dræmt taki.
Undir haustið færist fjör í flesta hluti. Sökum sívaxandi
samkeppni veitingastaðanna verða upp teknar nektarsýn-
ingar — en þykja hversdagslegar, slík verður skattapín-
ingin. Þá hefst ný bókmenntagrein á íslandi, því nú taka
draugar að skrifa
sjálfsævisögur og
þykja merkilegar..
taka síðan að skrifa
skáldsögur og yrkja
atómljóð — gef-
ur menntamálaráð
út skáldsögu eftir
Stokkseyrar-Dísu í
mörgum bindum,
en Leirulsekjar-Fúsi
verður fastaskáld í
Lesbók Moggans.
Loks taka draugar
að mála abstrakt og
8
FALKINN