Fálkinn - 28.12.1964, Qupperneq 25
AlfSTURBÆJARBÍÓ
SÝNIR:
Söngleikir njóta mikilla vinsælda um þessar mundir og á
hverju ári koma nokkrir nýir fram á sjónarsviðið og víkja
þeim eldri úr vegi. Sumir verða þó sígildir og njóta stöðugra
vinsælda.
Við höfum ekki alveg farið á mis við þessa söngleiki. Hér
hafa verið sýndar kvikmyndir byggðar á vinsælum söngleikj-
um svo sem „Oklahoma" og „The King and 1“ og fleiri. Þá
færði Þjóðleikhúsið upp fyrir nokkrum árum söngleik, sem
sagður er nr. 1, „My Fair Lady“.
Nýjársmynd Austurbæjarbíós verður að þessu sinni „The
Music Man“ en hún er byggð á samnefndum söngleik. Þessi
söngleikur var frumsýndur á Broadway fyrir réttum sjö árum
og varð mjög vinsæll og var sýndur nokkur hundruð sinnum
eins og vinsælum söngleik sæmir.
Söngleikurinn gerist árið 1911 og segir frá sérkennilegum
sölu- og ævintýramanni, prófessor Harold Hill. Verður sú
saga ekki rakin hér nánar.
Textinn og tónlistin er efti'r Meredith Wilson.
Robert Preston hét sá, sem fór með aðalhlutverkið, prófesssor
Harold Hill, þegar leikurinn var frumsýndur. Hann fór með
þetta hlutverk 883 sinnum og hlaut góða dóma fyrir flutning
sinn. Preston hefur lengi verið í sviðsljósinu og leikið í fjöl-
mörgum kvikmyndum.
Með aðalhlutverkið fór Marian Paroo, en það hlutverk er
leikið af Shirley Jones í myndinni. Shirley er ein af upp-
rennandi kvikmyndaleikkonum vestan hafs og munu margir
minnast hennar úr myndinni „Elmer Gantry“ sem Austur-
bæjarbíó sýndi á þessu ári. Fyrir leik sinn í því hlutverki hef-
ur hún hlotið margháttuð verðlaun.
Leikstjóri myndarinnar heitir Morton DaCosta.
Tom Jones ...
inn Square viðurkenndi að það
hefði verið í góðu skyni gert,
en þó ekki orðið fuglinum til
neins góðs, þar sem það varð
bani hans. Þrættu þeir um
þetta nokkra hríð, unz Western
landeigandi greip frammí fyrir
þeim.
„Hvernig stendur á því, að
þið hafið hvorugur minnst neitt
á það, sem mér finnst þó mest
um vert í þessu sambandi —
hugrekki hins piltsins og það
riddarabragð hans, er hann
lagði sjálfan sig í hættu til að
sefa harm dóttur minnar. Þó að
ég sé ekki lærður maður, veit
ég að það lýsir sönnum dreng-
skap og göfgi, hvað sem öðru
líður. Hans skál ... og muna
skal ég honum þetta svo lengi
sem ég lifi!“
„Smáatriðin valda oft dýpst-
um áhrifum," lét einn af fræg-
ustu óskmögum ástarinnar sér
um munn fara. Og víst er um
það, að uppfrá þessu bar Soffía
að sama skapi hlýjan hug til
Tom Jones og henni var kalt til
fóstbróður hans, Blifil unga.
í sannleika sagt, var Soffía
enn ung að árum, þegar hún
þóttist þess fullviss, að enda
þótt Thomas Jones væri ofsa-
fenginn og sæist litt fyrir, þá
mundi vandfundinn betri
drengur í raun og mundi hann
engum bregðast nema sjálfum
sér. Aftur á móti mundi Blifil
ungi, þrátt fyrir alla sína still-
ingu og hæversku, fá'um eða
engum reynast vel nema sjálf-
um sér, sökum eigingirni sinn-
ar og sjálfselsku. Hún dáði því
Tom Jones, en fyrirleit Blifil
löngu áður en hún vissi merk-
ingu þessara orða.
Soffía dvaldist í þrjú ár hjá
frænku sinni, og bar sjaldan
saman fundum hennar og þess-
ara tveggja leikbræðra henn-
ar allan þann tíma. Þegar hún
sneri heim aftur til föður síns,
var hún orðin þroskuð stúlka,
sem hann fól öll húsmóður-
störf og lét sitja fyrir enda
borðsins við máltíðar, en Tom
Jones var þá orðinn tíður gest-
ur á heimili hans, eins og áður
er frá sagt.
Ekki veitti Tom Jones æsku-
leiksystur sinni sérstaka at-
hygli, að því er séð varð, en
sýndi henni þó meiri virðingu
en stúlkum almennt.
Soffía var öllum stúlkum hæ-
verskari og saklausari, en fjör-
mikil stúlka og ákaflega glað-
lynd, og kom það aldrei eins
greinilega í Ijós, og þegar hún
var návistum við Tom Jones.
Hefði hann ekki verið eins ung-
Framhald á næstu síðu.
FLUGELDAR
Aldrei fjölbreyttara úrval
ELD-
FLAIIGAR
Skiparakettur
Stjörnurakettur
Skrautrakettur
- danskar-
SÓLIR — GULLREGN — SILFURREGN
VAX-UTIBLYS — VAX-GARÐBLYS,
loga y2 og \y2 klukkustund.
Hentug fyrir unglinga.
VERZLUN 0. ELLINGSEN
ÍVWD-
BLYS
Jokerblys
Bengalblys
Stjörnublys
Stjörnugos
Stjörnuljós
FÁLKINN 25