Fálkinn - 29.03.1965, Síða 25
Kólesterolið sem grunað
er um að eiga meginþátt í
æðakölkun og þar af leið-
andi í hinni skæðu krans-
æðastíflu telst fita, vegna
þess að það blandast ekki
vatni. Efnafræðilega er það
skylt alkóhóli. Það berst um
blóðið í tengslum við fitu-
og eggjahvítumólikúl. Eng-
inn getur án þess verið. Það
er ómissandi við myndun
D-vítamíns og hormóna m. a.
kynhormónanna, og lifrin
notar það einnig vað að
framleiða gallsýrurnar. Lík-
aminn býr því til allt það
kólesterol sem hann hefur
svo margþætta þörf fyrir,
en það eru aðeins einbeitt-
ustu grænmetisætur sem
komast hjá að bæta við sig
kólesteroli. Það er sérstak-
lega mikið af því í eggja-
rauðu, en líka talsvert í
öllum mjólkurafurðum og
kjöti.
Það var ekki fyrr en upp
úr síðari heimsstyrjöldinni
sem menn tóku að rannsaka
samhengið milli hjartasjúk-
dóma og mataræðis, eða öllu
heldur dýrafeitinnar. Því
hafði verið veitt athygli í
Hollandi og Noregi að mann-
dauði af völdum kransæða-
stíflu minnkaði stórum á
stríðsárunum, þegar skortur
var á þeim matvælum sem
áður voru nefnd. Þessar at-
huganir á samhengi milli
mataræðis, manndauða og
kólesterolsmagns í blóðinu
sem gerðar hafa verið í ýms-
um löndum, í Bandaríkjun-
um, Japan, ísrael, á Krít,
Hawaii og meðal Batúnegra
í Suður-Afríku, hafa leitt í
ljós að fólk sem neytir til-
tölulega lítillar fitu hefur í
senn lítið kólesterolmagn í
blóðinu og er síður hætt við
hjartasjúkdómum. Hvergi
er hvers konar fita jafn
mikill þáttur í almennu
mataræði og í Bandaríkjun-
um, þar sem menn eru að
jafnaði taldir fá um og
rúmlega 40 prósent af hita-
einingum fæðunnar úr fitu,
og kransæðastíflan er held-
ur hvergi algengari en þar.
Samkvæmt rannsóknum í
Bandaríkjunum er manni
sem hefur kólesterolmagn-
ið 240 (milligrömm í hundr-
að teningssentimetrum af
blóði) þrisvar sinnum hætt-
ara við kransæðastíflu en
þeim sem hefur undir 200.
Reyki hann líka einn pakka
af sígarettum á dag og hafi
þar að auki háan blóðþrýst-
ing er honum tíu sinnum
hættara en hinum. Þetta
sýnir að kólesterolmagnið er
ekki eina atriðið sem til
greina kemur við kransæða-
stíflu, og var það reyndar
vitað áður.
En hvað sem því líður eru
vísindamenn flestir á eitt
sáttir um það að draga
mætti úr kransæðastíflu
með því að minnka kóle-
sterolmagnið í blóðinu, það
er með breyttu mataræði
Og svo vel vill til að það
er hægðarleikur að minnka
kólesterolið með því að
breyta um mataræði, ef
menn hafa aðeins viljastyrk.
Mettaðar fitusýrur sem er
að finna í kjöti, mjólk og
mjólkurafurðum auka kóle-
sterolmagnið, en ómettaðar,
sem eru í fiski og jurtafeiti,
minnka það. Menn eiga sem
sagt að eta fisk en ekki
kjöt, jurtafeiti í stað smjörs.
Það er þó hætt við að mörg-
um, já flestum, muni reynast
erfitt að breyta mataræðinu,
og miklum matmönnum má
segja það til huggunar, að
ekki eru allir vísindamenn
sammála um að mataræðið
skipti höfuðmáli varðandi
kransæðastíflu.
Athugun sem gerð var í
bæ einum í Pennsylvaníu í
Bandaríkjunum bendir ekki
til þess. Því var veitt athygli
að í bæ þessum, Roseto, var
óvenjulega mikið af öldruð-
um karlmönnum. Það kom í
ljós að manndauði af völd-
um hjartalömunar varþarna
aðeins helmingur meðaltals-
ins í öllum Bandaríkjunum
og minna en helmingur þess
sem var í næstu bæjum.
Bæjarbúar, af ítölsku bergi
brotnir, voru þó gildvaxnari
en gengur og gerist, flestir
sílspikaðir, miklir matmenn
sem ekki fúlsuðu við neinu
feitmeti.
SPAIR
i stjornurnar
Kæri Astró,
Ég hef mikinn áhuga á framtíðinni. Hvernig er með skóla-
mál og fleira?
Ég hef ferðazt víða erlendis. Á það eftir að liggja fyrir
mér að ferðast meira erlendis?
Hvernig er með ástamálin? Ég er fædd kl. 10.45 að morgni.
Rabbý G.
Svar til Rabbýar G.:
Þú hefur ágætar námsgáfur,
en þér mun hætta nokkuð til
að fara úr einu í annað, bæði
hvað nám og starf áhrærir. Þú
ert mikið fyrir tilbreytni, en
þú ættir að tileinka þér meiri
.staðfestu í hugsun og athöfn
og ekki breyta um markmið
án þess að hafa til þess gilda
ástæðu. Þú býrð yfir mikilli
getu til að hugsa og skilja hlut-
ina, og með réttri þjálfun gæt-
irðu tjáð hugmyndir þínar í
ræðu og riti.
Síðastliðin tvö ár hafa verið
mjög hagstæð, hvað utanlanda-
ferðir áhrærir, einnig nám, og
næstu tvö ár ættir þú að nota
til að skapa þér framtíðarstarf,
því þó að þú gerir þér nokkuð
háar hugmyndir um ágæti
hjónabands, þá hefur þú meiri
löngun til að starfa við annað
en heimilisstörf, jafnvel eftir
að þú hefur gift þig. Það væri
mjög ákjósanlegt, að þú þjálf-
aðir þig í starfi, sem gæfi þér
einnig möguleika til að vinna
að eftir að þú hefur gifzt. Árið
1965 er sérstaklega hagstætt í
þessu tilliti. Flest störf varð-
andi skriftir, blaðamennsku og
fleira þess háttar ætti vel við
þig, og ef þú færð rétta þjálfun,
þá ættir þú að geta haft með
höndum mörg þau störf, sem
ekki er á allra færi að leysa.
Þú ert nógu skapmikil til að
drífa þig áfram, bara ef þú ert
ekki alltaf að breyta um held-
ur einbeitir þér af alefli að
einhverju vissu verkefni.
Þú munt að öllum líkindum
giftast fremur seint, og ásta-
málin ganga fremur tregt, þó
þig skorti ekki ástarævintýri,
en það mun verða fremur stutt
í þeim sumum. Þú munt einna
helzt lenda í slíkum ævintýr-
um á ferðalögum.
Það er vel líklegt að þú eigir
eftir að vera búsett erlendis
að meira eða minna leyti, og
hvar sem heimili þitt verður,
má búast við, að heimilslífið
verði ánægjulegt.
Þú verður fær um að berj-
ast á móti þeim erfiðleikum,
sem kunna að mæta þér á lífs-
leiðinni, svo framarlega sem þú
ert laus við alla hleypidóma
og takmarkanir, því að þú
hefur til að bera mikinn dugn-
að og góða hæíileika. Þér hætt-
ir nokkuð mikið til að gagn-
rýna gerðir annarra og ættir
því að temja þér að fara var-
lega í sakirnar, hvað það snert-
ir, því það mun síður en svo
auka vinsældir þínar.
Eins og flestir þeir, sem hafa
Mánann í Sporðdrekamerkinu,
hefur þú mikið aðdráttarafl
fyrir hitt kyniö, og er aðallega
um kynferðislegt aðdráttarafl
að ræða. Þú ættir að forðast
allar blekkingar á sviði ásta-
málanna og taka ástasambönd-
in ekki of alvarlega og gæta
þess ennfremur að leika þér
ekki með tilfinningar annarra.
FÁLKINN
25