Fálkinn - 12.07.1965, Qupperneq 44
5>
<é
&
SVIÐSLJOSINU
-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K*
BtlMEDIKT VIGGOSSON SKRIFAR FYRIR UIMGA FOLKID
Það sér ekki j mðurtroðið grasið á Arnarhóln-
um fyrir mannmergðinni, sem þekur hann eins
og mý á mykjuskán. Landnámsmaðurinn stendur
gneypur og horfir þungbúinn á viðstadda og
honum er það ekki láandi. því þetta velklædda
fólk er ekki komið til að horfa á hann. Nei,
Ingólfur Arnarson stelur ekki senunni frá þeim,
sem skemmta á hinni árlegu kvöldvöku á þjóð-
hátíðardaginn. Að vísu snúa viðstaddir ekki óvirðu-
legri endanum í landnámsmanninn, eins og
oftast áður á þessum degi. Það stafar þó ekki af
virðingu fyrir Ingólfi, heldur af því, að það
var kostnaðarminna að láta kvöldvökuna fara fram
þarna hjá styttunni. Það var að sjálfsögðu
aukaatriði, hvort að fólk nyti þess eins vel. Eftir
að lúðrasveitin hafði blásið hvíldarlítið í 30
mín. gátu þeir andað aftur eðlilega og stjórnandinn
hætt að pata út í loftið, eins og ölvaður
lögregluþjónn við umferðarstjórn.
Þegar kvöldvökunni var lokið, streymdi fólkið
niður í bæ, jafnt ungir sem gamlir, allir í
dansinn. Á Lækjartorgi skemmti hin þekkta hljóm-
sveit Svavars Gests ásamt hinum vinsælu
söngvurum, Ellý Vilhjálms og Ragnari Bjarnasyni.
Lúdó og Stefán skemmtu í Aðalstræti, en ósköp
eru þeir illa á svið settir, piltarnir, þarna í
Moggaundirganginum. Það eru ekki nema 20—30
manns, sem sjá þá um leið og þeir flytja lögin,
nema þegar þeir hoppa upp í fjörugustu lögunum,
en það er takmarkað, hvað menn geta hoppað
hátt, jafnvel þó þeir séu í Lúdó. Þjóðhátíðarnefnd
ætti að sjá sóma sinn í því að láta reisa háan
pall þarna á gangstéttinni fyrir næsta 17. júní. 1
Kópavogi léku Sóló.'en frekar var lítið dansað
og ástandið var svipað í Hafnarfirði, en þar
voru J. J. og Einar og vakti það athygli mína,
hvað piltarnir voru smekklega klæddir, í bláum
jökkum og ljósum buxum. Tvímælalaust bezt
klædda hljómsveitin 17. júní 1965.
ROY OG
„HIÐ FRÍÐA SPRLIXID”
Roy Orbison hefur tekið á
móti gullplötu fyrir Iagið „Oh
pretty woman“, en það lag náði
feikna vinsældum hér heima.
Nýjasta Iagið hans heitir „Good
night“. „Hið fríða sprund“ er
langt frá því að vera fyrsta
lagið, sem kemur nafni Roy
Orbison’s á vinsældarlistann.
Ber þar hæst lögin „Only the
Ionely“ og „Dream baby“.
SKLGGALEG SINFÓNÍA
Þið getið verið alveg óhrædd, Shadows eru ekki gengnir
í brezku sinfóníuhljómsveitina. Þetta er einungis atriði úr
nýlegri kvikmynd, sem „Skuggarnir“ koma fram í.
LITFRÍO OG LJÓSHÆRD
Eitt haustkvöld fyrir fimm árum síðan kom 19 ára
stúlka til enska hljómsveitarstjórans Ambrose, og bað
um að fá að syngja með hljómsveitinni til reynslu. Hún
fékk sínu fram og Ambrose hlustaði af athygli. Þegar
laginu var lokið, horfði hún kvíðafull og spyrjandi á
hljómsveitarstjórann og hann brosti við henni og sagði:
,,Þú ert ráðin.“ Og nú er Ambrose orðinn umboðsmaður
hennar. Já, ekki má gleyma nafninu á stúlkunni. Hún
heitir Kathy Kirby. Eitt frægasta lagið hennar er „Let
me go, lover“. Kathy er ljóshærð, skapmikil og ógift.
FALKINN