Fálkinn - 09.08.1965, Blaðsíða 31
*]
Winthei* þi*í3i|ól
— margar stærðir og geróir.
matast óreglulega. Ef þér eruð klukkustund of seinn,
verður hún skelfingu lostin. Hún mun gera sér í hugarlund,
að þér hafið orðið fyrir slysi og dáið eða að einhver þokka-
dís hafi hremmt yður.“
„Ég get varla ímyndað mér Díönu þannig!“ æpti Alan
yfir sig kominn af fögnuði.
„Þér munið ekki þurfa á ímyndunarafli yðar að halda,“
sagði gamli maðurinn. „Og, fyrst ég minntist á þokkadísir,
sem eru á hverju strái, — ef svo skyldi fara, seinna, að
yður skrikaði ofurlítið fótur, þá hafið engar áhyggjur. Hún
mun fyrirgefa yður, að lokum. Hún verður auðvitað fyrir
hræðilegu áfalli, en hún mun fyrirgefa yður — að lokum.“
„Það mun ekki eiga sér stað,“ sagði Alan af hita.
„Auðvitað ekki,“ sagði gamli maðurinn. „En þótt svo
kynni að verða, þá þurfið þér engu að kvíða. Hún myndi
aldrei skilja við yður. Ekki aldeilis! Og, að sjálfsögðu
myndi hún sjálf aldrei gefa yður nokkra minnstu ástæðu
til — tortryggni."
„Og hve mikið,“ sagði Alan, „kostar þetta dásamlega
lyf?“
„Það er ekki eins dýrt,“ sagði gamli maðurinn, „og
bletta-hreinsarinn, eða lífhreinsarinn, eins og ég nefni það
stundum. Það kostar fimm þúsund dali, ekki eyri minna.
Menn verða að vera eldri en þér til að geta látið slíkt eftir
sér. Menn verða að safna fyrir því.“
„En ástardrykkurinn?" spurði Alan.
„Ó, hann,“ sagði gamli maðurinn, opnaði skúffu í eld-
húsborðinu og tók upp örlítið, fremur óhreint glas. „Hann
kostar aðeins einn dal.“
>.Ég get ekki þakkað yður nógsamlega,“ sagði Alan og
horfði á hann fylla glasið.
„Mér þykir vænt um að geta orðið að liði,“ sagði gamli
maðurinn. „Þá koma viðskiptavinirnir aftur, seinna á æv-
Framh á bls 42.
□ RNINN
SPÍTALABTÍG B -
SÍMI 14661 —
PáSTHDLF 671.
r\ Ir^íl
SKARTGRIPIR
UV/U^t^L^ li=ili=i
Irúlofunarhringar
HVERFISGÖTU 16
SÍMI 2-1355
TRÚLOFUNAR
ULRICH FALKNER oullsm
LÆKJARGÖTU 2 2. HÆD