Fálkinn - 09.08.1965, Blaðsíða 43
armobil
ísland hefur löngum þótt stórt land og erfitt yfirferö-
ar. Fyrr á öldum var guðsköpun landsins mikið vanda-
mál fyrir íbúa þess, en þó lausnin ekki nema ein, —
hestarnir. En þegar vélaöldin hélt hér innreið sína,
fóru möguleikarnir að aukast og samfara bættum veg-
um fleygði atvinnulífinu fram. Og með breyttri og
bættri vélatækni hefur bílakosturinn verið mikið þarfa-
þing, ekki sízt fyrir íslenzkan landbúnað.
En þrátt fyrir miklar framfarir eru vegir á íslandi
enn ákaflega slæmir og þá sérstaklega úti á iandi,
enda hafa bændur aldrei gert sérlega mikið að því að
kaupa lúxusbifreiðir, þeir hafa haldið sig við hag-
kvæmari farartæki fyrir íslenzkt hálendi.
Jeppabifreiðir eru einhver heppilegustu tækin, sem
hér eru í notkun fyrir landsbyggðina, enda eru þær
mikið notaðar, en þó hefur aldrei verið mikið úrval af
þeim hérlendis. En þó er úrvalið sífellt að aukast þótt
hægt gangi, og þegar allt kemur til alls, þá fer ástandið
að verða viðunandi.
Jón Loftsson h.f. hefur nýlega fengið umboð fyrir
landbúnaðar og flutningatæki sem kallað er Farmobil,
framleitt af Chrysler verksmiðjunum. Bifreið þessi
er talin mjög hentug fyrir íslenzka staðhætti. Hún
hefur verið þrautreynd við alla vega erfiðar aðstæður
og hefur reynzt mjög vel. Blaðamönnum var fyrir
nokkru boðið út í Örfirisey til að reyna bílinn við erf-
iðar aðstæður, og var nær ótrúlegt að sjá, hversu vel
hann reyndist á ósléttu landi. Það er ekki að efa, að
þetta farartæki hentar mjög landbúnaði, og jafnvel
sem sendiferðabifreið fyrir minni háttar flutninga í
kaupstöðum landsins.
Þegar Jón Loftsson h.f. hafði flutt inn 10 bifreiðir
af þessari gerð til reynslu kom upp vandamál, sem
breytti miklu um gildi bifreiðarinnar. Tollanefnd fyrir-
skipaði að flokka bifreiðina sem vörubifreið undir
þremur tonnum, vegna þess eins, að hún hefur drif
á afturhjólum, þó að búið sé að sýna fram á, að í þessu
tilfelli gerir afturdrifið nákvæmlega sama gagn og
framdrif. Þetta munar því, að bifreiðin á að kosta kr.
170.000.00, en hefði annars kostað kr. 100.000.00. Þetta
munar miklu, og hefur auðvitað mikið að segja um
útbreiðslu tækisins, og væri það slæmt, vegna þess,
hversu heppileg bifreiðin er. En þó, eins og segir í
kynningarplaggi fyrir bifreiðina, er vonandi að tolla-
nefnd endurskoði afstöðu sína.
Vélin í Farmobil er tveggja strokka og benzíneyðslan
sáralítil eða 7 lítrar á hverja 100 kílómetra, og við-
haldskostnaður er yfirleitt lítill. Eins og fyrr segir er
drifið á afturhjólunum og fjaðrir mjög góðar.
Verksmiðjur Farmobil eru í Grikklandi, en þar eru
Chrysler verksmiðjurnar bandarísku, sem framleiða
hann.
Fari svo, að tollanefnd gefi samþykki sitt -og setji
bifreiðina í ,,jeppaflokk“ með Landrover, Willys o. s.
frv., mun hún eflaust ná mikilli útbreiðslu. Og jafn-
vel þótt svo færi, að hún verði seld sem vörubifreið, þá
er alls ekki ólíklega, að hún verði keypt, því það er
víst, að hún er heppileg fyrir vegi okkar og staðhætti.