Fálkinn - 09.08.1965, Page 32
Tvikn. Míeir. (*ur)hrrt/ssnn
Kæri Astró.
Mér leikur mikil forvitni á að vita hvað bíður mín í fram-
tíðinni. Ég er fædd 1946. Ég hef mjög mikinn áhuga á að
koma mér áfram í lífinu, en ég get ómögulega ráðið við mig
hvað ég á að taka fyrir. Ég hef áhuga fyrir ýmsu, en það
versta er að ég verð svo fljótt leið á öllu sem ég byrja á og
á þar af leiðandi erfitt með að ná árangri. Ég hef mikinn hug
á að komast til annarra landa, því mér þykir mjög gaman að
ferðast og kynnast nýju fólki og sjá eitthvað nýtt. Ég á ekki
marga vini, því ég verð svo fljótt leið á fólki. Hvernig verð-
ur með hjónabandið, giftist ég seint eða snemma. Eins og
er hef ég ekki áhuga á hjónabandi. Hvernig verða fjármálin?
Ég þckki ungan mann sem er dálítið eldri en ég, verður eitt-
hvað meira með hann?
Með fyrirfram þakklæti, Dagga.
Svar til Döggu:
Flest fólk fætt í Steingeitar-
merkinu hefur hug á að koma
sér áfram í heiminum, og þar
ert þú engin undantekning. Það
eru ýmis störf sem þú getur tek-
ið þér fyrir hendur með góðum
árangri, en það er ávallt hætta
á að þú farir úr einu í annað á
meðan þú hefur ekki fundið það
starf, sem tekur hug þinn all-
an. Það starf sem þú velur þér
verður einnig að vera sérstak-
lega tilbreytingarríkt og vera
að einhverju leyti sjálfstætt.
Þú ert mikið betur til þess fall-
in að stjórna öðrum heldur en
láta stjórna þér. Þú munt aldr-
ei eira lengi á sama stað. Þeg-
ar Úranus er í fjórða húsi
bendir hann til skyndilegra og
óvæntra breytinga á heimilinu
og í fjölskyldunni. Mjög erfitt
verður að skapa öi’yggi í heim-
ilislífinu vegna tíðra aðseturs-
skipta, sem stundum eru nauð-
synleg í sambandi við atvinnu
og ferðalög í sambandi við það.
Þó má búast við að fjölskyldu-
líf þitt verði fjölbreytt og líf-
legt og laust við alla þvingun
og formfestu. Það væri vel til
fallið hjá þér að reyna að skrifa
eitthvað , þú hefur auðugt
ímyndunarafl. Ýmis ritstörf og
önnur störf í sambandi við út-
gáfustarfsemi, fréttasöfnun og
jafnvel fréttaljósmyndun
mundi vera heppilegt starf fyr-
ir þig en þú ættir umfram allt
að reyna að velja þér starf, þar
sem þú gætir unnið sjálfstætt
eða sem einhvers konar yfir-
maður. Ég er anzi hræddur um
að þú hafir aðeins áhuga á að
kynnast fólki með það fvrir
augum að hafa eitthvað gagn af
því og það er nú aldrei vin-
sælt. Á meðan það hefur áhuga
á að tala um þau málefni sem
þú hefur áhuga á, gengur allt
vel, en ætli það að koma áhuga-
málum sínum á framfæri hefur
þú ekki tíma til að sinna því
meira. Ef þú ætlar þér að auka
vinsældir þínar hjá hinu kyn-
inu, þá er ég hræddur um að þú
verðir að læra að hlusta, því
flestir karlmenn eru nú þann-
ig að þeir vilja að á sig sé hlust-
að. Þú munt giftast fremur
seint og þá sennilega af hag-
sýni fremur en af ást. Fjármál-
in verða góð því þú munt senni-
lega alltaf vinna utan heimilis
og það er sjálfsagt heppilegast
fyrir þig því þú hefur ekki á-
huga á heimilisstörfum. Mað-
urinn sem þú giftist verður
sennilega töluvert eldri en þú.