Fálkinn - 09.08.1965, Síða 38
KYENÞJOÐIN
1UTSTJÓK1: KIIISTJANA STEIAGRÍMSDÓTTIR
VÖFFLUVEIZLA
Fæstir geta staðizt nýbakaðar vöfflur með aldinmauki og
þeyttum rjóma, og þá vill það gleymast, að sú máltíð er nokk-
uð svo fitandi.
Hér eru svo uppskriftir að ýmsum vöfflum: — eggjavöffl-
um og rjómavöfflum — léttum vöfflum og mettandi — dýr-
um vöfflum og ódýrum.
Eggjavöfflur:
2 dl hveiti
1 tsk lyftiduft
2 egg
2V2 dl mjólk
50 brætt smjörlíki
Hveiti og lyftidufti sáldrað í skál,
eggjarauðunum þeytt saman við
mjólkina, hrært út í hveitið. Hrært
þar til deigið er jafnt og kekkja-
laust. Brædda smjörlíkinu og stíf-
þeyttum eggjahvítunum blandað
varlega saman við. Bakað við frekar vægan hita. Dreift úr
vöfflunum á grind, meðan þær kólna, svo að þær linist ekki
upp.
Kartöfluvöfflur:
250 g soðnar, kaldar
kartöflur
% 1 mjólk
250 g hveiti
1 tsk lyftiduft
60 g smjörlíki
2 dl kalt vatn
Kartöflurnar marðar, mjólkinni og
hveitinu hrært saman við. Geym-
ið um V2 dl af hveiti. Deigið látið
bíða um stund. Bræddu smjörlíki
og lyftidufti, sem hrært er út í
hveitið, blandað saman við. Deig-
ið þeytt vel og ísköldu vatninu
hrært saman við.
Vöfflurnar bakaðar gulbrúnar. Bornar fram með sykri, sírópi
eða aldinmauki. Vöfflur þessar eru bæði léttar og stökkar,
sóma sér vel sem eftirréttur.
EINFÖLD - E!V ÞÓ FALLEG
Efni: 400 (450) 450 g meðalgróft ullargarn. Heklunál nr. 3y2
Stærð: 40 (42) 44.
30 1=10 mynstur og 14 raðir= 10X10 sm.
Skammstöfun: 1 = lykkja; 11 = loftlykkja; stl = stuðullykkja! fp
= fastapinni; byr. = byrjun; úrt. = úrtaka.
Mynstrið: (gert ráð fyrir fit) 1. röð: Snúið með 2 11, heklið > 1 stl,
1 11, 1 stl < í 5. 11 frá nálinni ★ hlaupið yfir 2 11, heklið > 1 stl’
1 11, 1 stl < í næstu 11 ★, endurtekið frá ★—★ út röðina. 2. röð:
Snúið með 2 11 og heklið 3 fp í hverja 1 1 (á milli 2 stl) út umf.
3. röð: Snúið með 2 11 og heklið > 1 stl, 1 11, 1 stl < í miðl. af fp 3,
sem heklaðar voru í hvert mynstur frá fyrri röð. Endurtakið 2. og 3.
röð sem mynda mynstrið.
Framstykkið: Fitjið upp 108 (114) 120 1. Heklið mynstrið, en
aukið jafnframt út í byr. og enda 6. hverrar raðar um 1 1 3svar og
í 4. hverri röð 4 sinnum, síðan heklað beint, þar til síddin er 36
(38) 40 cm. Fellt af fyrir handveg beggja vegna 3X1 1 og 2X1 1
x annarri hverri röð. 2 síðustu úrtökurnar eru þó aðeins á stærð
42 og 44. Þegar síddin er 45 (46) cm eru felldar af 14 miðl., þ. e.
a. s. það er ekki heklað 1 þær, og hvor öxl síðan hekluð fyrir sig.
Fellt af við hálsmál 3 1 og 5X1 1 í annarri hverri röð. Þegar hand-
vegurinn er 17 (18) 19 cm, er fellt af fyrir öxl 2X1 1 (11) 12 1 í
hverri röð. Garnið slitið frá.
Bakið: Heklað eins og framstykkið án úrtöku vegna hálsmáls.
Slitið frá, þegar fellt hefur verið af fyrir öxl beggja vegna.
Ermar: Fitjið upp 54 (60) 64 11 og heklið mynstrið, en aukið út
um 1 1 hvoru megin í 4. hverri röð 11 sinnum. Þegar ermin er 31
(32) 33 cm er fellt af beggja vegna 6 1, 4 (5) 6X2 1 og 2X3 1 í
annarri hverri röð. Slitið frá.
Frágangur: Allt pressað mjög lauslega á röngunni. Allir saumar
saumaðir saman með aftursting á röngunni. Saumið ermarnar í á
sama hátt.
Hekluð röð af fp kringum hálsmálið, neðan á bolnum og erm-
unum: ★ Heklið fp í kantinn, stingið nálinni hægra megin við þenn-
an fp og heklið annan fp í kringum hann ★. endurtakið frá ★—★.
Saumar og kantar pressaðir lauslega.