Fálkinn - 09.08.1965, Side 39
Sunnudagsvöfflur:
250 g hveiti
2 tsk sykur
% tsk salt
1 dl vatn
1 dl maltöl
4 egg
250 g brætt smjörlíki
■ 2 dl rjómi
Súrmjólkurvöfflur:
5 dl súrmjólk eða áfir
1 msk sykur
' 7% dl hveiti
21/2 dl vatn
150 g smjörlíki
1 egg
Haframjölsvöfflur:
8 dl hafragrjón
2 egg
8 dl mjólk
3 msk kartöflumjöl
1 msk sykur
V2 tsk salt
1 tsk lyftiduft
2 msk brætt smjörlíki
Öllu þurru blandað saman, vatni
og öli hrært saman við . Eggja-
rauðum og smjörlíki þeytt saman
við. Eggjahvíturnar stífþeyttar,
líka rjóminn. Blandið fyrst rjóm-
anum og síðan hvítunum saman
við deigið.
Bakað strax.
Egg, mjólk og sykur þeytt, hveiti
og vatni hrært smátt og smátt
saman við. Síðast er bræddu smjör-
líki hrært saman við. Vöfflurnar
bakaðar við mikinn hita.
Hafragrjónin látin í skál, egg og
mjólk þeytt saman, hellt yfir
grjónin. Látið standa um stund.
Kartöflumjöli, sykri, salti og lyfti-
dufti þeytt saman við. Að síðustu
er bræddu smjörlíki hrært sam-
an við.
Vöflurnar bakaðar við nægan hita.
• Hún sér
Framh. af bls. 5.
þetta kemur ekki til mála. Ég
var sendiráðherra í Rússlandi,
og ég veit ósköp vel, að þar er
ekki verið að gera neinar til-
raunir með geimskot.11
Þegar Jeane rifjar upp þenn-
an dramatíska sjónvarpsþátt
segir hún með andvarpi: „Það
var miklu meira á leiðinni, en
hr. Davies truflaði allt saman
með því að grípa um handlegg-
inn á mér og hrista mig. Hann
sagði, að ég ætti heldur að
lesa bókiná hans og læra þann-
ig eitthvað um Sovétríkin. Ég
var svo niðursokkin að skoða
kúluna, að ég var búin að stein-
gleyma, að þessu var sjón-
varpað. Annars hefði ég ekki
svarað sendiráðherranum eins
og ég gerði.“ Áhorfendurnir
heyrðu hana hrópa upp: „Ó, hr.
sendiráðherra, þér eruð búinn
að eyðileggja allt sambandið
fyrir mér!“
Davies var enn að gera gys
að Jeane þegar þættinum lauk.
En einu ári og níu mánuðum
seinna tók Bulganin marskálk-
ur við af Malenkov sem forsæt-
isráðherra og það án nokkurra
óeirða. Hinn gráhærði græn-
eygi Bulganin samsvaraði lýs-
ingu Jeane fullkomlega, og
§>
OSTALIWSUR •
Deigið:
200 g hveiti
100 g smjör
100 g 40% ostur
rifinn
V2 tsk salt
1 eggjarauða
1-2 msk kalt vatn
Innan í:
30 g smjör
30 g hveiti
4V2dl mjólk
4 msk rjómi
1 msk rifinn ostur
2 egg
salt, muskat.
Deigið hnoðað með léttum handtökum;
deigið geymt nokkrar klst., áður en það er
flatt þunnt út Smyrjið nokkur linsumót, rað-
ið þeim þétt á eldhúsborðið, leggið útflatta
deigið yfir og þrýstið deiginu ofan í mótið
með fingurgómunum. Dragið deigið með
fingrunum upp eftir börmunum. Gatið botn-
ana með gaffli.
Búið til venjylega hvíta sósu úr smjöri,
hveiti og mjólk, kryddið og þeytið eggin vel
saman við. Potturinn tekinn af eldinum og
osturinn og rjóminn látinn út í. Kælt að
mestu, áður en kremið er látið í mótin, sem
á að fylla alveg. Dreiíið dálitlu af rifnum
osti yfir. Bakið ostalinsurnar við 200—225° í
nál. 25 mínútur. Látnar vera í mótunum,
meðan þær kólna, takið þær þá úr, velgið
þær dálítið, áður en þær eru bornar fram.