Fálkinn - 30.08.1965, Síða 36
í SVIÐSLJÓSINIJ *«*«**
BENEDIKT VIGGÖSSON SKRIFAR FYRIR UNGA FÓLKIÐ
Hep Stars. Þeir hafa lagt Stokkhólm að fótum sér.
mmn sænskij hljóiuar
EIN vinsælasta hljómsveitin
í Stokkhólmi, og þá um
leið í Svíþjóð, er um þessar
mundir HEP STARS. Christin
Petersson, stofnandi hljóm-
sveitarinnar, er 22 ára með
þykkt brúnt hár, að sjálfsögðu
ofan á axlir og augun eru blá.
Fyrstu kynni hans af hljóm-
sveit urðu, þegar hann réðist
sem trommuleikari í hljóm-
sveit, sem samanstóð af nokkr-
um ítölskum piltum. Um Þetta
segir Christin:
„Ég átti engar trommur og
þeir höfðu engan trommuleik-
ara. Ég keypti mér trommur
og þeir fengu trommuleikar-
ann.“
í tvö ár lék hann með ítöl-
um, en 1962 var hann orðinn
leiður á þessum „smjörsöng"
þeirra, eins og hann komst að
orði, og fór að safna liði í sína
eigin hljómsveit, sem hlaut
nafnið Hep Stars. Fyrsta árið
léku piltarnir á ýmsum veit-
ingastöðum fyrir lítinn pening.
En nú eru þeir orðnir það vin-
sælir hjá sænskum táningum,
að þeir geta sjálfir ákveðið laun
sín.
„Það myndi ekki freista
mín“, segir Christin, „þó að
Manfred Mann byði mér að
starfa með sinni þekktu hljóm-
sveit, ég myndi aldrei yfirgefa
Hep Stars, ekki einu sinni fyrir
Manfred Mann.“
Christin Petersson.
Vinsælustu lögin
fyrir 10 árum
AÐ getur verið gaman og
fróðlegt að fletta göml-
um músíkblöðum. Þegar ég
var að líta í eitt frá sept-
ember 1953, kom ég auga
á lista yfir vinsælustu lögin
og þótti mér hann all for-
vitnilegur. M. a. voru þarna
lög, sem ég hafði séð á
THE
SCOTTIES
Þetta er Saw
Sandy og Skot-
arnir hennar og
ef að líkum læt-
ur nýtur þessi hljómsveit töluverðra vinsælda í Skotlandi.
Þið hafið kannski tekið eftir því, að ungfrú Saw er töluvert
stuttklæddari en hinir fimm pilsklæddu félagar hennar. Nú,
enda er ólíkt skemmtilegra að virða fyrir sér fallega skapaða
kvenfótleggi heldur en . . . Nú jæja, sleppum því.
DEAN
MARTIN
YNGRI
Pilturinn með gítarinn
er sonur Dean Martin,
en sá litli hefur stofn-
að sína eigin hljóm-
sveit. Hún hefur að
vísu ekki náð neinum
jeysilegum vinsældum,
en það er alla vega
góð auglýsing fyrir
piltana, að hljómsveit-
arstjórinn geti skartað
Dean Martin nafninu.
bandaríska listanum á þessu
ári.
f fimmta sæti var nefni-
lega „Crying in the chapel",
en eins og flestir vita, hefur
lag með þessu nafni, sungið
af Elvis Presley, þotið upp
á vinsældarlistanum, bæði í
U.S.A. og Bretlandi. Á þess-
um gamla lista var hins
vegar Ella Fitzgerald skráð
fyrir umræddu lagi. Það er
ekki víst, að um sama lag
sé að ræða, þó að þau beri
sama heitið. í sjötta sæti var
„P.S. I love“ sungið af ein-
hverjum Hilltoppers. En eins
og þið vitið, þá hafa Beatles
gert lag með sama nafni
geysilega vinsælt og auðvit-
að var það samið af þeim
sjálfum. f fyrsta sæti á þess-
um lista var gamalkunnugt
lag: „Vaya Con Dios“. Nr. 2
var lag með Perry Como,
Framh á bls 42
36
FALKINN