Fálkinn - 20.09.1965, Blaðsíða 16
ÞAÐ RÍKTI HIIKIL SORG
um viða veröld, þegar Kennedy Bandaríkjaforseti varð fyrir skoti
ofstækismanns í Dallas 22. nóvember 1963. Heimurinn var lengi á
eftir í sárum, enda var Kennedy einhver mikilhæfasti leiðtogi, sem
heimurinn hefur átt.
Og ekkja Kennedys átti ríka samúð, því þótt fráfall hans hefði
snortið alla djúpt, þá var missir hennar og barnanna auðvitað mestur.
En margt er í heiminum hverfult og margt er auvirðilegt í
henni veröld. Og nú er svo komið, að fóik er farið að smjatta á því,
hvort Jacquline giftist aftur. Sögusagnir eru um einhverja fimm menn,
sem allir eiga að elska hana, og sem allir hafa orðið fúlir, þegar
Kennedy heitinn kvæntist henni, og nú eiga þeir að vera komnir á
stúfana og hún á að vera í miklum vafa! Því þótt tvö ár séu liðin
frá dauða Kennedys, þá er lífið ennþá erfitt fyrir hana, og ekki
bætir slíkt sorptal það. Nei, oft er fólk fljótt að gleyma ...
i TÍZ.KU
K'ÆRt) liMOif-itúf*. ,4
Erlend vikublöð gera talsvert að því að setja texta inn
á ljósmyndir, og verða kunnir stjórnmálamenn oftast fyrir
barðinu á sniðugum blaðamönnum, en í þetta sinn hefur
ágæt fíiamynd þótt tiivalin fyrir þennan saklausa leik.
Ef þú ert orðinn
leiður á gamla
Fólksvagninum þínum,
þá skaltu panta þér
nýja yfirbyggingu
úr svonefndu Aztec
gerviefni og henda
þeirri gömlu. Aztec
VW vegur um 600 kg,
eða um 160 kg
minna en venjulegur
VW, og hæðin er 1,06
m á móti 1,50 m á
venjulegum VW. Og
til að gera þetta að
virkilegum sportbíl, þá
er ekki annað en
skipta á venjulegum
VW hreyfli og Porsche-
eða Corvairhreyfli.
Myndirnar sýna
hvernig gamli VW
getur breytzt, ef pen-
ingar og áhugi er
fyrir hendi.
SAGA AF LÖGREGLUIMNI
Eitt sinn varð það slys fyrir utan verkstæði líkkistusmiðs
eins í bænum, að ekið var yfir kött með þeim afleiðingum,
að hann andaðist.
Líkkistusmiðurinn var áhorfandi að slysinu, og hringdi
því þegar til lögreglunnar, kynnti sig og bað þá vinsamlegast
að koma og hirða köttinn.
Lögreglumaðurinn eygði þarna tækifæri til þess að vera
fyndinn, og spurði hvort hann gæti ekki smíðað utan um
köttinn fyrst.
— Jú, ég ætlaði einmitt að fara að gera það, en ég kunni
betur við að láta ættingjana vita áður.
Sumir vilja halda því fram, að konan sé furðulegasta
fyrirbæri, sem guð almáttugur hefur sk?"^ð. Enginn ev kom-
inn til með að segja hvað rétt er eða ra: því sambandi. en
vissulega hefur konan marga eiginleika marga galla, sem
önnur börn jarðar hafa ekki.
Þessar sex samanburðarmyndir eiga að sýna þróunarstig
konunnar, allt frá æskunni og sakleysinu til ellinnar og ...
En hvað um það, myndirnar eru góðar, og hver má dæma,
sem vill.
13
FALKINN