Fálkinn - 20.09.1965, Page 32
VINNUSLOPPAR
HNEPPTIR ÓHNEPPTIR
VINNUHEi.'VIIUÐ AÐ REYKJALUNDI
SÍMI UM BRÚARLAND
Lækna \
Hjukrunarkonu
Rakara I
Kæri Astró.
Ég er eins og fleiri að mig langar til að vita eitthvað um
framtíðina. Hvernig starf hentar mér bezt? Á ég eftir að
ferðast til útlanda? Hvenær gifti ég mig, ef einhver vill mig,
og hvernig verður sambúðin og hvort ég á eftir að hafa
saman að sælda við strák sem fæddur er sama ár og ég eða
ekki? Hve mörg börn á ég eftir að eignast, og hvernig verður
heilsan? Ég fer mikið út að skemmta mér og dansa og drekk.
Ég hef helzt áhuga á teikningu og vaxtarlagi karlmanna.
Svar til O. F. P. G.:
Þar sem þú hefur áhuga á
teikningu gefur það auga leið
að þú verður að kunna að meta
gott vaxtarlag bæði karla og
kvenna, frá listrænu sjónar-
miði. Þú ættir endilega að læra
að teikna og mála. Þú hefur
án efa hæfileika og gætir náð
langt á þeirri braut ef þú nennt-
ir að leggja það á þig að vinna
til þess. Það verður ýmislegt
lagt upp í hendurnar á þér á
lífsleiðinni, en það er vafasamt
O. F. P. G.
að þú kunnir að meta það sem
skyldi eða viljir hafa fyrir því
að vinna úr því sem þú hef-
ur hlotið í vöggugjöf. Þú hefur
töluvert mikinn metnað þegar
allt kemur til alls og ætti það
að geta orðið þér til hjálpar.
Það er ýmislegt, sem þú gætir
starfað, t. d. mundu alls konar
kennslustörf fara þér vel úr
hendi. Ég held að þú ættir
einnig að geta leikið ef þú legg-
ur þig fram. Þig skortir sem
sagt ekki hæfileika, og ef þú
tekur iífið réttum tökum hefur
þú möguleika á að ná langt í
því sem þú velur þér og getur
jafnvel öðlazt frægð. En þeirri
afstöðu í stjörnukorti þínu sem
veldur fæðingunni fylgir sá
böggull skammrifi að stundum
er það frægð af endemum sem
um er að ræða. Þú munt ekki
komast hjá því að eftir þér og
gjörðum þínum verður tekið,
þú hefur kannski ekkert á móti
því, og um þig verður talað
og ekki alltaf vel. Þú ættir að
fara gætilega þegar þú velur
þér vini því þeir munu ekki
allir verða hreinlyndir. Ásta-
málin munu ganga nokkuð
skrykkjótt hjá þér, ástarævin-
týrin verða nokkuð mörg en
fá skyndilegan endi. Þú átt
líka eftir að eignast fjöldann
allan af börnum, og þau ættu
eftir að verða þér til ánægju,
ekki sízt þar sem þú hefur
ánægju af börnum og virðist
skilja þau vel. Það gæti orðið
ágætt par úr þér og piltinum,
sem þú minntist á og mun
næsta ár skera úr um það hvort
um frekara samband verður að
ræða. Hann mun þó vera frem-
ur veikur fyrir víni. Þú átt
áreiðanlega eftir að fara utan
og jafnvel á násta ári, en það
væri heppilegur tími til ferða-
laga. Heilsan ætti að geta orð-
ið góð og ég held að þessi veiki
sem þú minntist á muni hverfa
með tímanum þó nokkuð erfitt
verði að finna orsök hennar.
FALKINN
flýgur út á hverjum
mánudegi
UNDRAPÚÐINN
sem festir tanngóminn, dregur úr
eymslum, lim-
ist við góminn,
þarf ekki að
skipta daglega.
S N U G er sérstaklega mjúkur
plastic-púði. sem sýgur góminn
fastan, þannig að þér getið talað,
borðað og hlegið án taugaóstyrks.
S N U G er ætlað bæði efri- og
neðrigóm. — Þér getið auöveld-
lega sjálf sett púðann á, hann
situr fastur og hreinsast um leið
og tennurnar. — S N U G er skað-
laus tannholdi og gómnum. Endist
lengi og þarf ekki að skipta dag-
lega.
Heildsölu-
birgðir:
J. Ö. Möller
& Co.
Kirkjuhvoli,
sími 16845.
Snug
32
FÁLKINN