Fálkinn - 20.09.1965, Síða 35
AGFA IJIMBOÐie OG
VIKIJBLAÐIÐ FÁLKINIV
efndu í sctmeiningu til ljósmyndasamkeppni fyrir u. þ. b. mánuði
síðan. —
Keppni þessari er skipt í þrjá flokka: Fyrsti flokkur er lok-
aður. þar glíma fimm þekktir ljósmyndarar við ákveðið verk-
efni. Annar flokkur er opinn, frjálst verkefni, svarthvítar filmur.
Þriðji flokkur er einnig opinn, þar á að nota AGFA COLOR
CT 18 (pósitív) og er verkefnið bundið við landslags- og at-
vinnulífsmyndir.
Skilafrestur er til októberloka, en úrslit verða síðan tilkynnt
í desember eða janúarbyrjun. Glœsileg verðlaun verða veitt
sigurvegurum, en dómnefnd, skipuð þremur mönnum, dœmir
myndirnar.
Allar upplýsingar varðandi þessa keppni eru veittar á rit-
stjórnarskrifstofu FÁLKANS, Grettisgötu 8. Öllum er heimil þátt-
taka, en starfsfólk FÁLKANS og AGFA tekur ekki þátt i henni
Glœsileg verðlaun verða veitt sigurvegurum. Notið þetta
einstœða tœkifœri til þess að reyna hœfni yðar við ljós-
myndun.
FRAMHALDSSAGA SEIII Á EFTIR AD VEKJA IMÍKIÐ liHITAL
Þið munið öll eftir BÚIÐ I BLOCK og RÖNDÓTTA TREFLINUM.
Þessar sögur nutu mikilla vinsœlda og nú hefur Ingibjörg
Jónsdóttir skrifað fyrir okkur bráðskemmtilega framhaldssögu, sem
nefnist KR-ENGAR OG ANNAÐ FÖLK! Við œtlum ekki að rekja
gang sögunnar, en birta í þess stað kaflafyrirsagnirnar, sem gefa
nokkra hugmynd um efni sögunnar: ÞEGAR ÉG VAR UNG —
VINNUKONUR — SKRIFSTOFAN — JÖLIN — EIGINMAÐURINN —
GIFTINGIN — BRÚÐKAUPSVEIZLAN — BARNIÐ — FJÖLSKYLDAN
— TRÚRÆKNI og lokakaflinn nefnist LANDSLEIKURINN.
Sagan hefst 27. september og birtist í níu tölublöðum.
Allir sem hafa ánœgju af knattspyrnu œttu að lesa þessa
sögu, ennfremur þeir sem hafa ýmiskonar óþœgindi af knatt-
spyrnumönnum (eiginkonur og áhugalausir vinir).
FALK.I nim
35