Fálkinn - 28.03.1966, Qupperneq 42
KYENÞJOÐIN
ltlTSTJÓKl: KUISTJANA STEINGRÍMSDÓTTIII
Gleymið ekki að hafa
fjölbreytni í fiskréttunum
Við skulum vona að farið sé
að rætast úr fiskleysinu, svo
ykkur sé óhætt að líta á nokkr-
ar góðar fiskuppskriftir, sem
matreiddar eru í ofni
FISKUR
MEÐ GRÆNMETI.
1-1 y2 kg þorsk- eða
ýsuflök
3-4 gulrætur
y2 seljurót
2 laukar
Steinselja
1 sítróna
Salt, pipar
Smjör.
Fiskurinn tekinn úr roðinu
og skorinn í hæfileg stykki.
Grænmetið hreinsað og skorið
í sneiðar. % gulrót og selju-
rót sett í botninn á eldföstu
móti, nokkrum lauksneiðum
raðað ofan á, dálitlu af salti
stráð yfir. Fiskstykkjunum rað-
að ofan á saltið og því næst
er afgangurinn af grænmetinu
settur í mótið. Dálitlu af salti
stráð á og 5-6 piparkornum
stungið með. 100 g af bræddu
smjöri hellt yfir, sítrónusneið-
um raðað ofan á og lok sett á
mótið. Sett inn í ofn um 200°
heitan í 30-40 mínútur. Athug-
ið að láta borða soðið úr mót-
inu. Saxaðri steinselju stráð
yfir.
FISKFLÖK
OG GULRÓFUR.
1 kg fiskflök
1 stór rófa
iy2 tsk. salt
Pipar
1 laukur
75-100 g smjörlíki
3 msk. brauð-
mylsna.
Roðið tekið af flakinu og
það skorið í stykki, rófan
hreinsuð og rifin gróft, látin
í smurt eldfast mót, fiskinum
raðað ofan á. Saltað og piprað.
Smáttskornum lauknum stráð
ofan á. Brauðmylsnu stráð yfir,
smjörlíkið í bitum.
Sett inn í 200° heitan ofn í
25-30 mínútur.
Borið fram með hrærðum
kartöflum.
ÞORSKUR STEIKTUR HEILL
MEÐ HASSELBACH-
KARTÖFLUM.
Fiskurinn hreinsaður vel, og
lagður í smurt eldfast mót,
smjörbitar settir á hann nokk-
uð þétt, salti og pipar stráð
yfir og fiskurinn steiktur í ofni
við 175° í 40 mínútur. Ausið
smjörsoðinu yfir við og við.
Þvoið og flysjið stórar kart-
öflur, skerið þær í þunnar
sneiðar, þó þannig, að þær
hangi saman að neðanverðu.
Raðið kartöflunum hlið við
hlið í smurt eldfast mót, hell-
ið bræddu smjöri yfir, krydd-
að með salti og pipar. Einnig
steikt í ofninum í 30-40 mín-
útur. Gott er að bera með
þessu köld soðin hrogn, sem
hrærð hafa verið með majonnes
og krydduð með salti, pipar og
karrý.
höndina?
42
FALKINN