Verkalýðsblaðið - 01.07.1976, Qupperneq 2
AHÐRÆNDIR OGKÚGAÐIR ALLRA LANDA SAMEINIST l
vmmímim
málgagn einingarsamtaka kommúnista imarx-leníhistai
RITSTJ. OG ABM.ALBERT EINARSSON.
Z VERKA
|M mi ■ mm Mlnim
VERKALÝÐSBLAÐIÐ
BARATTA EÐA UPPGJÖF
EIK(m-l) fordæmir samn-
inga þá sem íslenska ríkis-
stjórnin og tiresku heims-
valdasinnarnir gerðu sín í
milli um veiðar Bresta inn-
an 200 mílna fiskveiðilög-
sögu Islands.
Samningarnir hljóða uppá
áframhaldandi veiðar Breta
þegar ljóst er að um eins
mánaðar veiðar fylla endan-
lega kvótann sem íslenskir
fiskifræðingar töldu leyfi-
.legt að taka af íslenskum
miðum allt árið 1976.
LEIÐARI
Með íslenskri rányrkju og
hreskum veiðum er því ljóst
að rányrkja á Islandsmiðum
vex fremur en minnkar.
Gegn þessu standa kröfur
verkalýðs og vinnandi al-
þýðu:
- að varinn sé réttur Is-
lands til nýtingar eigin
náttúruauðlinda og honum
heitt í J)águ alþýðu.
- raunverul-ega fiskverndun
og baráttu gegn rányrkju
erlendra stórvelda jafnt
sem rányrkju íslenskrar
stórútgerðar.
- að engir samningar um
veiðiheimildir séu gerðir
við erlend ríki og full
yfirráð verði yfir 200
mílum í verki.
- barist sé fyrir fiskvernd-
un - gegn rányrkju erlendra
stórvelda jafnt sem rán- .
yrkju ísl. stórútgerðar.
En engin ríkisstjórn getur
bari-st fyrir þessum kröfum -
aðeins alþýðufjöldinn.
EIK(m-l) hefur gert margar
tilraunir til skipulagningar
fjöldabaráttu og stofnunar
virkrar baráttufylkingar £
þessu máli. Það starf mun
halda áfram eftir svika-
samningana. Baráttan er
rétt hafin.
Meginorsök stefnu ísl.
ríkisstjórnarmnar og hús-
bóndanna úr hópi einokunar-
auðvaldsins er að finna í
gróðasókn auðvaldsins og
útþenslu þess. Ríkisstjóm-
in vildi að bókun 6 í tolla-
samningi Efnahagsbandalags-
ins og Islands tæki gildi.
Samningurinn hljóðar upp á
vænleg kjör fyrir útflutn-
ingsaðila, svo sem auðhring-
ana SH, SIS og íslenska
ríkisauðvaldið. Bókun 6
átti ekki að taka gildi fyrr
en "viðunandi"lausn fengist
í fiskveiðideilunni. Síðan
ætlar EBE-auðvaldið að gæta
hagsmuna breskra stéttar-
bræðra við nýja samninga
um næstu áramót. Þannig
seldi íslenskt auðvald hluta
af lifibrauði alþýðu fyrir
hag arðræningjanna og út-
flutningsbraskaranna. Að
auki er svo borgarastéttin
og ríkisvaldið lafhrætt við
vaxandi. baráttu og andstöðu
verkalýðs og vinnandi alþýðu,
Vaxandi andstaða við HATO
og bandaríska herinn er
þeim þyrnir í augum. Samn-
ingana varð því að gera til
að bjarga því sem bjargað
varð-um stund. Allar blekk-
ingar um "sigur Islendinga"
og viðurkenningu Breta á
200 mílna - lögsögunni
hrökkva þó skammt.
Stefna stjórnarandstöðu-
flokkannar er stefna upp-
gjafar og þingsalagaspurs.
Þeir hafa kæft allar fjölda-
skipulagningu og baráttu I
pappírs og nefndarfargani.
Þeir hafa dregið fólk á
asnaeyrum, hvatt til and-
stöðu en setið aðgerðar-
lausir með hrópum um nýja
"vinstri" stjórn. En sú
síðasta slíka stóð einmitt
í samningamakki við Breta.
Útifundurinn á Lækjar-
torgi 2.júní, sýndi ljós-
lega að fjöldinn hefur yfir-
gefið sjálfskipaða alþýðu-
vinina , enda fundurinn hald-
inn eftir samningsgerð.
Allt stórskotalið stétta-
samvinnunnar gat dregið
2000-3000 manns á Lækjar-
torg. Þeim mun fækka.
EIK(m-l) hélt innifund
29.maí. Þar mættu um 40-50
manns. Undirbúningsnefnd að
stofnun liðsmannasamtaka í
landhelgismálinu varð til
á þessum fuiidi og hélt
annan fund 3.júní, þar sem
enn bættist við folk. Þetta
er vísir að fjöldabarátt-
unni. Er þess skammt að
bíða að undirbúningi ljúki
- þá sigra framsæknir -ein-
staklingar andstæðinginn
með samfylkingu sinni.
Styðjið fjöldahreyfinguna.
Baráttan á hafréttar-
ráðstefnúnni hefur afhjúpað
drottnunarstefnu heimsveld-
anna og gróðakapphlaup.
Risaveldir., Bandaríkin og
Sovétríkin, eru andstæð
baráttu okkar - óvinir
sjálfræðis, frelsis og
sjálfsbjargar. Þau sækjast
eftir yfirráðum yfir hafinu,
rányrkju náttúruauðæfa,
arðráni á alþýðu og beita
aðferðum styrjalda og undir-
róðurs. Barátta okkar fyrir
200 mílna fiskveiðilögsögu
og landhelgi er því barátta
gegn íslenskri borgarastétt
gegn breskum heimsvalda-
sinnum og gegn risaveldunum.
EIK(m-l) leggja sitt af
mörkum til að sameina verka-
lýð og vinnandi alþýðu á
samfylkingargrunni gegn ó-
vinunum. Undir leiðsögn
marx-lenínismans/ kenninga
Mao Tsetungs og forystu
öreiganna - er fjöldinn
ósigrandi.
- Gegn samningum við Stóra-
Bretland og EBE
- Bresk skip úr fiskveiði-
lögsögunni
- Island úr NAT0 - herinn
burt
- Eining og barátta gegn
heimsvaldastefnu og risa-
veldunum.
Myndin sýnir eina járnblendiverksmiðju ELKEM-SPIGER-
VERKET.Bæði mökkurinn og yfirráð auðhringsins eru
hættuleg verkalýð og vinnandi alþýðu(Klassekampen'76)
ELKEM * STÓRIÐJA
Eitt þeirra einokunar-
fyrirtækja sem boðið er
velkomið til að stunda
rányrkju á íslenskum auð-
æfum er norska auðfyrir-
tækið Elkem-Spigerverket.
Auðhringurinn Union Carb-
ide hefur hætt þátttöku
sinni í fyrirhugaðri
málmbræðslu í Hvalfirði,
vegna slæms útlits á sölu
kísiljárns, að eigin sögn.
1 raun er það vegna þess
að U.C. sér ekki fram á
að geta háfað inn hámarks-
gróða á stuttum tíma,
vegna þess að nægar birgð-
ir eru fyrir hendi á mark-
aðnum, sem afleiðing af
kreppuviðbrögðum auðvald-
sins. Elkem-Spigerverket
er vaxandi auðhringur,
, sem spilar djarft
um leið og hann hefur
baktryggingu I olíuauð-
æfum Noregs,þar sem hann
getur matað krókinn.
Elkem-Spigerverket er
3 stærsti auðhringur
Noregs og ört vaxandi
auðhringur. E-S er hluti
svokallaðs Astrups-hóps
en í honum eru flest
stærstu auðfyrirtæki
Noregs. Umsvif ES eru
mikil og milljarðavelta
árlega. ES rekur fjöl-
mörg dótturfyrirtæki og
er stór hluthafi í enn
fleiri fyrirtækjum bæði
í Noregi og öðrum löndum.
Hvað sækir ES hingað
til lands? ES er boðið
það sama og öðrum erl-
endum auðhringum. Ödýr
orka og ódýrt vinnuafl.
Varla er hægt að tala
um sölu á raforku til
málmbræðslu hérlendis,
nær er að tala um að
orkan sé gefin. Pordæmið
er orkugjöfin til Alvers-
ins. Vinnuafl hérlendis
er með því alódýrasta
sem til er í Evrópu. 1
samanburði við Noreg er
ísl. vinnuafl hrein gjöf
til ES. Stéttasamvinna
ASl-forystunnar er sú
trygging sem ES hefur
gagnvart því að ekki
minnki gróðinn við að
kaupið hækki. Þar hefur
ES langa reynslu til að
dæma um.
HOLLENSKT EIN0KUNAR-
AUB v ALD 0G BLÖMARÆKT.
Jarðhiti er ein þeirra
orkulinda sem enn hefur
ekki' verið nýtt að ráði
til iðnaðar. Nú eru uppi
áætlanir um að reisa
stóriðju sem byggir á
þessari orkulind. Hér
eru einnig erlendir ein-
okúnarauðhringar á ferð
og hyggjast auka gróða
sinn-á'því að nýtaþessa
orku til blómaræktar.
Hollenskir auðhringir
með einokunarauðhring-
inn Phillips í fararbr-
oddi eru boðnir velkomnir
af íslensku einokunar-
auðvaldi og ríkisvaldi
þess, til þess að færa
sér 1 nyt íslénska orku-
gjafa. - -
Hér er ekki um að ræða
íslenska stóriðju frekar en
fyrirhuguð málmbræðsla
í Hvalfirði eða Álverið
í Straumsvík, heldur
erlenda. stóriðju á
Islahdi. Það eina sem
lagt er af mörkum hér-
lendis er ódýr orka og
ódýrt vinnuafl. Öll full-
vinnsla og þar með stæ-
rsti hluti verðmætasköp-
unarinnar fer fram í
verksmiðjum auðhringanna
erlendis, allur markað-
urinn er erlendis og
honum ráða einokunarauð-
hringirnir. Það verða
því einokunarauðhring-
imir sem hirða gróðan
og íslenska einokunar-
auðvaldið fær að sjálf-
sögðu eitthvað fyrir sinn
snúð - fyrir að selja
landið.
EFLUM BARÁTTUNA GEGN
ERLENDRI STGRIÐJU Á IS-
LANDI - LÁTUM EKKI IS-
LENSKA EINOKUNARAUÐVALD-
IÐ KOMAST UPP MED AD
SELJA LANDIÐ OKKAR.
Á síðustu árum árum
hefur andstaða alþýðunnar
gegn'gegndarlausri rán-
yrkju á fiskistofnunum
magnast svo að nú vantar
aðeins herslumuninn á að
víðtæk baráttusamfylking
alþýðu fari af stað til
verndar gegn allri rán-
yrkju á fiskistofninum.
Þar ber tvennt til. Rán-
yrkjan hefur höggvið mjög
svo nærri rótum sjálfs
tilverugrundvallar íslen-
sku alþýðunnar og and-
stæðingurinn hefur gerst
áleitnari en nokkru sinni
áður og vakið alþýðuna til
baráttu. Við sjáum afrak-
stur rányrkjunnar í horfn-
um síldartórfum án þess
þó að rányrkjan hafi fært
alþýðunni betri kjör,
heldur eru það íslenskt
og erlent auðvald sem
hefur hirt eróðan,
En fiskistofnamir I
hafinu eru ekki einu'
nát túruauð 1 ind imar
sem við íslendingar eigum.
Orkulindir í ám og jarð-
hita eru líka náttúru-
auðæfi. Þegar aúðæfi
hafsins nú þverra óðum
vegna rányrkju auðvalds-
ins, snýr það sér að orku-
auðæfum landsins og ísle-
nska einokunarauðvaldið
er ekki seint að sjá að
þar er opinn möguleiki á
að græða stórfé á að
selja erlendum auðhringj-
um afnot af íslensku
orkulindunum. Þeir er-
lendu auðhringir sem
hingað sækja ódýra orku
og ódýrt vinnuafl gera
það með sama hugarfari
og breskt og v-þýskt út-
gerðarauðvald sækir skjót-
fenginn gróða á fengsæl
fiskimið. Með því að
selja er.lendum auðhringjum
afnot af landi okkar er
íslenska einokunarauðvald-
ið og ríkisvald þess að
selja þeim yfirráð yfir
landinu okkar og yfirráð
yfir íslensku vinnuafli.
Hvoiugt nýtist íslenskri
alþýðu til uppbyggingar
sjálfstæðs efnahagsís-
lenska þjóðríkisins, sem
þó er ein forsenda þess
að íslenska alþýðan verði
einhverntíma herra í eigin
húsi. Islenska einokunar-
auðvaldið slær fram tölum
um miljarða hagnað af
landsölunni. Þetta gerir
það til þess að kasta
ryki I augu alþýðunnar,
til þess að telja henni
trú um mikinn hvalreka
fyrir "þjóðarbúið". Þetta
er einber blekking eins
og allir landhelgissamn-
ingar sýna, eins og sam-
ningurinn um Álverið
sýnir. Samt skulum við
ekki loka augunum fyrir
því að hér eru milljarð-
ar á ferð. Islenska ein-
okunarauðvaldið hefur
aldrei þurft að óttast að
tapa á landsölunni, fyrir
hana fær það miljarða.
Samningarnir við breta
og v-þjóðverja, samningar-
nir við erlendu áuðhring-
ana um afnot af náttúru<-
auðlindum okkar, lýsa ekki
undirlægjuhætti íslensku
ríkisstjórnarinnar né ís-
lenska einokunarauðvald-
sins, heldur eru þessir
samningar gerðir I fullri
vissu um vænlegan gróða.
Þetta segir okkur að í
baráttunni gegn rányrkju,
hvort sem er á fiskistofn-
unum eða öðrum náttúruauð-
lindum, eigum við ekki í
höggi við lyddur sem
lyppast niður sé á þær ýtt
heldur hagsmunahóp sem sér
sér hag í að selja erlend-
um auðhringjum afnot af
náttúruauðlindum okkar.
Þessi hagsmunahópur er
fyrst og fremst íslenska
einokunarauðvaldið og
bandamenn þess I ríkis-
valdinu íslenska. Gegn
þeim verðum við að beina
spjótum okkar.
ÞAD VERDUR AÐ STÖÐVA
landssöluna;
1
★ ARÐRÆNDIR OG KtíGAOIR ALLRA LANDA SAMEINIST!
MÁLGAGN EININGARSAMTAKA KOMIVIÚNISTA IMARX-LENÍNISTAI
ÁSKRIFTARVERD ER: Heilt ár - 6oo kr. 1/2 ár - 3co kr.
LAUSASALA: 100 kr.
UTGEFANDI: Einingarsamtök kommúnista(marx-lenínista)
PÖSTFANG: Pósthólf 5186 - Reykjavík
AÐSETUR: Laugavegur 178 - 2.hæð sími 8421o/359o4
frhafblsl. VERKFALL.. .
almennra launavinnumanna.
Utkoma síðustu kjarasamn-
inga þýddi fyrir þá kyrr-
stöðu í krðnutölu að
meðaltall og stórfelldar
krónulækkanir fyrstu 2
árinT Þessu veldur það
algjöra neyðarástand sem
er á samningsmálum iðn-
nema, en þau eru falin -
ASl - VSI til einhliða
ráðstöfunar, án fyrirvara
um samþykki iðnnemafél-
aganna. Samningsréttur
iðnnema er núll komma
enginn.
Ástandið breytist ekki nema
með eigin baráttu iðn-
nema - í einstökum fél-
ögum og á einstökum
vinnustöðum.
EIKCm-l) ÖKRIFSTOFA SAMTAKANNA ER . NU AÐ LAUGAVEGI 178,2.hæð.
SlMINN ER: — 84210 —
★★★★★★★★★ I SUMAR VERÐA OPNUNAR-
Námsstarf EIK(m-l) í TlMAR SEM HER SEGIR:
marx-lenínismanum er Föstudagar: kl.17 - 19.
undirstaða undir bar- áttu.' SKRÁIÐ YKKUR .' Laugardaga: kl.14 - 16
LESENDUR: ARIÐANDI ■..
TILKYNNÍNG FRÁ VERKALtDSBLAÐINU:
Þetta tbl.VERKALTDSBIoAÐSINS er tvöfaltjþ^e. júni og
júll-blöðin saman.Orsökin fyrir þessu er tvíþætt,að-
setursskipti og sumarleyfi starfsmanna.Blaðið biðuí'
lesendur og áskrifendur velvirðingar og vonar að
dráttur á útkoinu sé bættur með fjölbreyttu og miklu
efni.Við minnum ákrifendur á að greiða áskrift,ef
. þeir skuldá'hana,með. póstávisun eða á gíró 12200.