Mjölnir - 01.03.1934, Page 9

Mjölnir - 01.03.1934, Page 9
MJöLNIR 7 jafnréttis- og frelsisátt, sem átt hefur sér stað meðal vestrænna þjóða allt frá fornöld, er kristn- inni að þakka? Veit hann ekki, að með kristninni hefir breiðzt út um heiminn sá skilningur á lífi mannanna, sem borið hefur uppi allar félagslegar umbætur hvítra manna fram á þenna dag? Að við jarðbúar séum allir jafnbornir til að njóta lífsins hefir aldrei neinum manni dottið í hug að neita í trúarbragðanna nafni. En í hvaða merkingu er Lárus Blöndal að tala um »að njóta lífsins«? Af því hann er Kommúnisti, verður ekki hjá því komizt að skilja orð hans í mjög efnahags- legri merkingu. Hann mun þá t. d. eiga við það, að allir hafi jafnan rétt til að drekka eins mikið áfengi og þá langar í, svo eitthvert dæmi sé tekið. — Þarna er lífsskoðun Kommúnista lifandi komin! Um þetta er barizt. Fyrir þetta á að útrýma þjóðskipulaginu, kirkjunni og öllu, sem hvítir menn hafa sett sér til að vernda og efla með sér siðferðilega menningu. — Blindar fýsnir í fánýt- ustu og skaðlegustu stundaránægju heimta yfir- ráðin yfir heiminum. —■ En þó kastar tólfunum, þegar þessi ályktun kemur: »Það þarf auðvitað þroska til að setja óskum sínum takmörk og biðja einungis um það, sem skynsamlegt er að biðja um. Það þarf hófstillingu til að láta sér nægja -eitt líf.« Það er nýstárlegt að heyra talað um hófstill- ingu í þessari merkingu. En þetta er laukrétt kommúnistiskt viðhorf: Mennirnir eiga að hætta að gera andlegar og siðferðilegar kröfur til sjálfra sín. Þeir eiga að setja óskum sínum þau takmörk, að láta sér aðeins nægja að vera dýr í maura- búi þess skiplags, sem viðbjóðslegustu námenni stjórna með harðri hendi (eins og nú er í Rúss- landi). Þeir eiga að velja óskum sínum þau tak- mörk, að hætta að líta á sál sína sem eilífa veru. Þeir eiga að velja óskum sínum þau takmörk, að lífið hafi engan æðra tilgang en þann að þægja frumstæðustu og dýrslegustu þörfum Iíkamans. Þeir eiga að temja sér þá hófstillingu að láta sig hætta að langa til að vaxa upp úr heimsku og skepnuskap og verða andlega frjálsir menn. Hafi einhver efazt um, að kirkjan á Islandi væri öflug og áhrifarík stofnun, þá mætti benda þeim sama á þessa klausu Kommúnistans. Til þess að venja menn á þá hófstillingu að loka augun- um fyrir gildi allra andlegra verðmæta í lífinu, þá einu hófstillingu, sem getur þolað kommúnist- ískt skipulag, þarf að afnema kirkjuna. Kirkjan, vígi kristinnar lífsskoðunar í landinu, frjálslynd og víðsýn menningarstofnun með vak- andi skilning á fjölbreyttum, andlegum þörfum einstaklinganna, er öruggasta vígið gegn villi- mennsku Kommúnistanna, ef hún rækir hlutverk sitt vel. Lictor. [1 næsta blaði verður vikið örfáum orðum að frammi- stöðu Sölva H. Blöndals, hins bróðurins.] Starfsaðferðir Marxista. Stéttabarátta — Alþjóðastefna. Eitt höfuðstefnuskráratriði Marxismans er kenningin um hinar tvær alþjóðlegu stéttir, stétt eignamanna, þ. e. a. s. stétt hinna svokölluðu auð- kýfinga, borgara o. s. frv., og stétt öreiganna, verkamanna. Þessar tvær stéttir eiga svo að vera fullkom- lega andstæðar, og á milli þeirra á að vera stað- fest hið ógurlegasta djúp, sem alltaf sé að dýpka. Ef vér lítum yfir þróunarsögu mannkynsins í stórum dráttum, og athugum, hvernig atvinnulíf- inu er háttað á hinum ýmsu tímum, munum vér fljótt komast að raun um, að hið gagnstæða við framantalda kenningu hlýtur að vera ríkjandi í þi’óuninni. I upphafi mannkynssögunnar, þá er maðurinn eigi hefir nein tæki, lifir hann á jurtum og sein- færum smádýrum, er hann getur náð í. öll fjöl- skyldan flakkar um og stundar þessa söfnunar- atvinnu með honum. Þá lærist manninum að nota tæki, sem gera honum kleift að ráða niðurlögum stærri dýra. Þá kemur fyrsta atvinnuskiftingin fram. Karlmaðurinn, sá sterkari, hæfari, gjörist veiðimaður, en konan heldur hinni fyrri söfnunar- atvinnu áfram. Þá gerist tvennt jafnsnemma: 1. maðurinn fer að ternja dýrin og fylgja þeim eftir haglendinu; hann er orðinn hirðingi. 2. maðurinn fer sjálfur að rækta tré þau og jurtir, er hann þarf að nota, en heldur jafnframt áfram veiðunum. Karlmaður- inn stundar enn veiðarnar, en konan hugsar um akurinn, ásamt heimilinu, því að nú hefir hann fengið fastan bólstað. Heilu kynkvíslirnar eiga akr- ana í sameiningu, vinna að þeim sameiginlega og skifta arðinum hlutfallslega með sér eftir vinnu þeirra hvers um sig. Meðal hirðingjanna aftur á

x

Mjölnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mjölnir
https://timarit.is/publication/353

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.