Fréttablaðið - 21.10.2009, Qupperneq 6
6 21. október 2009 MIÐVIKUDAGUR
668 kr.á mánuði
Vefhysing_
Pantaðu núna á www.1984.is
ISLENSK VEFHYSING
= MEIRI HRADI >> MEIRA ÖRYGGI >> MUN ODYRARI
Sími 546 1984 ::: info@1984.is
Ríkisendurskoðun er sjálfstæð eftirlitsstofnun sem starfar á vegum Alþingis. Meginhlutverk hennar er að
endurskoða ríkisreikning og reikninga ríkisaðila, hafa eftirlit með og stuðla að umbótum á fjármálastjórn
ríkisins og nýtingu almannafjár. Megingildi hennar eru óhæði, hlutlægni, hæfni og trúverðugleiki.
Frambjóðendur í prófkjörum vegna
alþingiskosninganna 2009 athugið
Frestur til að skila Ríkisendurskoðun uppgjöri um
kostnað af prófkjörsbaráttu rennur út 25. október nk.
Hafi kostnaður frambjóðanda ekki farið fram úr 300 þús.kr.
nægir að hann skili undirritaðri yfirlýsingu þar um fyrir
sama tímamark.
Nánari upplýsingar og eyðublöð er að finna á heimasíðu
Ríkisendurskoðunar, www.rikisend.is.
Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is
Rafgeymar
Japanskir
ALÞINGI Fjárhagsleg staða Lands-
virkjunar er mjög góð miðað við
íslensk fyrirtæki en fremur veik í
alþjóðlegum samanburði.
Lægra lánshæfismat hjá alþjóð-
legum matsfyrirtækjum hefur
ekki áhrif á lán Landsvirkjunar
þar sem kveðið er á um í samn-
ingum að breytt mat gjaldfelli ekki
lánssamninga.
Þetta sagði Steingrímur J. Sig-
fússon fjármálaráðherra í umræð-
um um Landsvirkjun á Alþingi í
gær.
Vigdís Hauksdóttir, Framsókn-
arflokki, lýsti þungum áhyggjum
af stöðu Landsvirkjunar þar sem
skuldirnar væru miklar, síst minni
en Icesave-skuldirnar. Hafði hún
sérstakar áhyggjur af lækkuðu
lánshæfismati. Þá sagði hún bók-
hald Landsvirkjunar hafa verið
fegrað svo hægt væri að taka meiri
lán og velti meðal annars fyrir sér
í því ljósi hver væri raunverulegur
eigandi Landsvirkjunar: íslenska
ríkið eða kröfuhafar.
Steingrímur sagði áætlanir gera
ráð fyrir að Landsvirkjun gæti
mætt skuldbindingum sínum út
næsta ár og hefði bæði aðgang að
svonefndu veltiláni og ríkisfram-
lögum samkvæmt sérstökum við-
búnaðarsamningi við ríkið. Þá væri
eiginfjárhlutfallið nokkuð sterkt og
engir samningar um ófjármögnuð
verkefni verið gerðir.
Steingrímur sagði að endingu
að óþarfi væri að efast um eign-
arhald Landsvirkjunar. Ríkið eða
öllu heldur þjóðin ætti fyrirtækið.
- bþs
Fjármálaráðherra metur stöðu Landsvirkjunar góða en Framsókn hefur áhyggjur:
Lækkað mat gjaldfellir ekki lánin
VIGDÍS
HAUKSDÓTTIR
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
TÆKNI Nýju stýrikerfi Microsoft,
sem nefnist Windows 7, verður
formlega hleypt af stokkunum á
morgun. Stýrikerfisins er beðið
með eftirvæntingu. Forstjóri Mic-
rosoft, Steve Ballmer, hefur lýst
því yfir að hann leggi framtíð sína
að veði takist ekki vel til. Síðast
sendi hugbúnaðarrisinn frá sér
stýrikerfið Windows Vista fyrir
þremur árum og þótti takast held-
ur hrapallega. Prufu- og þróun-
arútgáfur nýja stýrikerfisins eru
hins vegar sagðar lofa góðu.
Halldór Jörgensson, fram-
kvæmdastjóri Microsoft á
Íslandi, segir fyrirtækið ætla sér
að „bjarga andlitinu“ með Wind-
ows 7 og segir Steve Ballmer hafa
vakað yfir því að ekki yrðu end-
urtekin fyrri mistök í þróunarferl-
inu. „Meira að segja þeir svartsýn-
ustu á að við gætum komið út með
almennilegt stýrikerfi eru farn-
ir að segja að þetta sé gott,“ segir
Hallldór.
Microsoft notaði enda aðra
aðferðafræði en áður við þróun
stýrikerfisins og kallaði að þró-
unarvinnunni fjölda samstarfsað-
ila. Þetta þýðir að eldri hugbúnað-
ur og vélbúnaður á að vinna jafn
vel með nýja stýrikerfinu og með
þeim eldri. Þetta er mikill munur
frá Windows Vista. Þar segir Hall-
dór að 30 til 40 prósent rekla (e.
driver) hafi reynst í ólagi, en sú
tala sé sjaldan yfir fimm prósent-
um þegar Windows 7 er sett upp á
eldri tölvur.
Þá segir hann flestar tölvur
sem notist við Windows XP eiga
að geta keyrt nýja stýrikerfið. Það
sé þó ekki alveg
algilt og vissara
að keyra upp
á eldri tölvum
frítt forrit sem
kallast Wind-
ows 7 Upgrade
Advisor. „En
við heyrum dag-
lega fréttir af
fólki sem hefur
verið með gaml-
ar tölvur eða fartölvur sem öðlast
hafa nýtt líf eftir að Windows 7
var sett upp á þeim.“ Haldór segir
að í samanburði við Windows XP,
Windows Vista og Windows 7 þá sé
það síðastnefnda hraðvirkast.
Í stýrikerfinu er aukinheld-
ur töluvert af nýjungum. Til að
mynda er í því svonefndur BitLock-
er sem geri að verkum að hægt er
að tryggja að óviðkomandi komist
ekki í ákveðin svæði harða drifs-
ins, eða jafnvel gögn sem sett eru
á minnislykil eða geisladisk. Stýri-
kerfið styður svokallaða fjölsner-
titækni á snertiskjám og ending
rafhlaðna fartölva sé mun meiri
vegna fullkomnari orkunotkunar-
stýringar en í eldri stýrikerfum.
„Ég prófaði þetta sjálfur á gam-
alli fartölvu sem var komin niður
í þetta tveggja tíma rafhlöðutíma.
Eftir smá keyrslutíma var hún
komin yfir fjögurra stunda end-
ingu.“
olikr@frettabladid.is
Microsoft segist hafa
lært af mistökunum
Á morgun kemur út nýtt stýrikerfi frá Microsoft sem nefnist Windows 7. Stýri-
kerfið sem tölvurisinn sendi þar áður frá sér, Windows Vista, þótti um margt
misheppnað. Nú eiga tölvur að geta gengið í endurnýjun lífdaga með nýju kerfi.
SKJÁBORÐ TÖLVU MEÐ WINDOWS 7 Tölvusérfræðingar segja útlit fyrir að breytt
aðferðafræði Microsoft í þróun stýrikerfis skili sér á morgun loksins í stýrikerfi sem
vinni vel, sé samhæft eldri tækni og laust við vandamál sem plagað hafa önnur
stýrikerfi hugbúnaðarrisans. MYND/SKJÁSKOT
HALLDÓR
JÖRGENSSON
VIÐSKIPTI Breskur dómstóll komst að þeirri niður-
stöðu í gær að lög hefðu ekki verið brotin þegar
breska fjármálaráðuneytið flutti innstæður af
Edge-reikningum hjá Kaupthing Singer & Fri-
edlander (KSF) til hollenska bankans ING Direct
8. október í fyrra.
KSF var breskur banki í eigu Kaupþings og laut
breskum lögum. Sama dag og innlán bankans voru
send ING Direct tók skilanefnd lyklavöldin hjá
Kaupþingi hér.
Bankinn taldi breska fjármálaráðuneytið hafa
farið út fyrir valdsvið sitt með aðgerðunum og
taldi tilmæli um eignaflutning sett í þeim tilgangi
að verja innstæðueigendur KSF í Bretlandi en ekki
til að viðhalda stöðugleika breska fjármálakerfis-
ins í heild.
Í niðurstöðu dómsins segir að þótt gögn málsað-
ila um afskipti breska ríkisins af rekstri KSF séu
ekki tæmandi þá séu viðbrögðin í samræmi við
ríkjandi viðmið. Ráðuneytið hafi starfað á grund-
velli gildandi laga og engin mistök verið gerð í
ákvörðunarferlinu.
Ekki náðist í Steinar Guðgeirsson, formann
skilanefndar Kaupþings, í gær. Haft er eftir honum
í tilkynningu að nauðsynlegt hafi verið að láta
dómstóla skera úr um hvort aðgerðir breskra yfir-
valda hafi verið sanngjarnar og lögmætar. - jab
BANKASTJÓRINN Ármann Þorvaldsson var bankastjóri KSF
þegar breska fjármálaráðuneytið ákvað að flytja innstæður af
Edge-reikningum bankans til hollenska bankans ING Direct.
Dómur fallinn í máli Kaupþings gegn breska fjármálaráðuneytinu:
Máttu flytja innstæðurnar
Er samningurinn um Icesave
ásættanlegur?
Já 27,8%
Nei 72,2%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Á að setja lög um Vítisengla?
Segðu þína skoðun á vísir.is
ATVINNUMÁL Vinnueftirlitið hefur
veitt fyrirtækjunum Óskalandi og
Eyrarodda viðurkenningar vegna
fyrirmyndar vinnuverndarstarfs.
Óskaland er leikskóli í Hvera-
gerði. Segir Vinnueftirlitið að þar
sé margt gert til að koma í veg
fyrir óþarfa líkamlegt álag, til
dæmis með stólum og borðbúnaði.
Þá hafi starfsfólk verið haft með
í ráðum við skipulag húsnæðisins
þegar leikskólinn var stækkaður
fyrir tveimur árum.
Eyraroddi er sagður fylgja
skýrri stefnu í vinnuverndarmál-
um. Þar hafi verið ráðist í mark-
vissar úrbætur á áhættuþáttum
eftir undangengið áhættumat. - bþs
Óskaland og Eyraroddi:
Vinnuvernd
til fyrirmyndar
KJÖRKASSINN