Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.10.2009, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 21.10.2009, Qupperneq 10
10 21. október 2009 MIÐVIKUDAGUR ÞEIR SPARA MEST SEM SKRÁ SIG STRAX -15% Dekkja-, smur- og viðgerðaþjónusta Reiknaðu hvað þú sparar og skráðu þig á N1.is. Skráðu þig í Sparitilboð N1 og lækkaðu rekstrarkostnað bílsins um tugi þúsunda króna á næstu 12 mánuðum. EKKI FYNDIÐ Trúðar frá öllum heimshornum taka þátt í trúðastefnu í Mexíkóborg sem haldin er í þessari viku. NORDICPHOTOS/AFP SVISS Svissneskur dómstóll synj- aði í gær beiðni leikstjórans Rom- ans Polanski um að fá að ganga laus meðan beðið er endan- legs úrskurð- ar um hvort hann verður framseldur til Bandaríkjanna. Í rökstuðn- ingi dómstóls- ins segir að samkvæmt svissneskum lögum sé það reglan að menn séu geymdir í fangelsi þar til fram- salsmál séu til lykta leidd. Auk þess er talin mikil hætta á að Polanski reyni að flýja eins og hann gerði árið 1977 þegar hann beið dóms í Bandaríkjunum fyrir að nauðga þrettán ára telpu. Polanski var handtekinn sam- kvæmt alþjóðlegri handtökuskip- un sem gefin var út í Bandaríkj- unum. - ót Beiðni leikstjóra synjað: Polanski verður áfram í fangelsi ROMAN POLANSKI ÖRYGGISMÁL „Við erum nokkrir starfsmenn Rafiðnaðarsambands Íslands, allir útlærðir fagmenn í faginu, fullkomlega gáttaðir á ábyrgðarlausu svari Jóhanns Ólafssonar, forstöðumanns raf- magnsöryggissviðs Brunamála- stofnunar í Fréttablaðinu í dag“, segir í yfirlýsingu sem barst Fréttablaðinu í gær frá Guðmundi Gunnarssyni, formanni Rafiðnað- arsambands Íslands. Tilefni yfirlýsingar Guðmundar eru orð Jóhanns sem birtust upp- haflega í Fréttablaðinu á föstudag um að þótt heimilistæki úr fórum Bandaríkjahers á Miðnesheiði séu ólögleg til notkunar hér á landi séu þau ekki lífshættuleg. Þessi tæki nota aðra rafspennu en notast er við í íslenska rafkerfinu. Nokk- uð er um að heimilistæki ofan af varnarsvæðinu gamla sem átti að farga séu komin í notkun utan vallarsvæð- isins og þá með spennu- breyti. Guðmundur segir Jóhann gera lítið úr alvarlegum lögbrotum og spyr hvort hann sé fær um að sinna starfi sínu. „Allir fagmenn vita að þessar vélar geta verið undir ákveðnum aðstæðum lífshættulegar og vinna þá á sviði utan lekastraums rofa og eru ekki jarðtengdar. Allir fag- menn vita að lágspennuslys hafa oft mjög alvarlegar og langvar- andi afleiðingar. Þetta virð- ist vera utan fagsviðs forstöðu- manns rafmagnseftirlits,“ segir í yfirlýsingu formanns Raf- iðnaðarsambandsins. - gar Formaður Rafiðnaðarsambandsins kveðst gáttaður á yfirmanni rafmagnseftirlits: Tækin af Vellinum víst lífshættuleg GUÐMUNDUR GUNNARSSON Varar við notkun bandarískra heimilistækja sem ekki eru framleidd fyrir íslenska rafmagnskerf- ið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VIÐSKIPTI „Ef Íslendingar hefðu sótt um aðild að myntbandalagi Evrópusambandsins fyrir tveimur til þremur árum er líklegt að regl- ur um gegnsæi í stjórnum banka og fyrirtækja hefðu svipt hulunni af innbyrðistengslum þeirra við íslensk fyrirtæki mun fyrr en ella. Hugsanlega hefði það getað dregið úr hættunni á hruni þeirra,“ segir Frakkinn Jean-Dominique Rugi- ero, stjórnandi sænska ráðgjafar- fyrirtækisins Daxam Sustainabil- ity Services. Rugiero er staddur hér á landi í tilefni af ráðstefnu á vegum Fjár- festingarstofu, iðnaðarráðuneyt- is og Útflutningsráðs um bein- ar erlendar fjárfestingar hér á landi auk þess að halda námskeið um sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð í fjárfestingum og fjár- málastjórnun á föstudag. Rugiero hefur um nokkurra ára skeið unnið með stjórnvöldum í Austur-Evrópu um innleiðingu sjálfbærrar hugsunar og samfé- lagslegrar ábyrgðar í stjórnhátt- um og fjármálum. Hann segir margt líkt með örlögum fjármálafyrirtækja þar og íslensku bankanna. „Þegar bankarnir voru einkavæddir í Slóvakíu voru lyklarnir að þeim afhentir nýjum eigendum án mik- illa kvaða. Regluverkið var veikt, bankarnir sprungu út og bilið á milli ríkra og fátækra jókst. Í því felst óréttlæti. Þegar stjórnvöld þar sóttu um aðild að myntbanda- laginu urðu þeir að laga reglu- verk sitt að bandalaginu. Það kom skikki á bankana. Mér sýnist sem því hafi ekki verið að skipta hér,“ segir hann. jonab@frettabladid.is JEAN-DOMINIQUE RUGIERO Fyrirtæki verða að leggja línurnar fyrirfram og sýna fram á hvaða leið þau ætla að fara í fjárfestingum. Það getur skapað sátt um umdeild verkefni á borð við byggingu virkjana, segir sérfræðingur um samfélagslega ábyrgð í fjárfestingum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Bankar hefðu mátt sýna meiri ábyrgð Skortur á regluverki eftir einkavæðingu ríkisfyrir- tækja jók ójöfnuð. Reglur og gegnsæi hefðu dregið úr líkum á hruninu. Þetta segir franskur sérfræð- ingur um samfélagslega ábyrgð í rekstri fyrirtækja. „Úti í heimi er skortur á rafmagni. Á sama tíma sitjið þið á miklum virkjanakostum,“ segir Rugiero. Hann bendir á að aðeins hafi um tuttugu prósent af kostum landsins til raf- magnsframleiðslu verið nýttir. Hann viti að menn deili um framhaldið. Mikilvægt sé að komast að niðurstöðu um það hvort Íslendingar ætli að sitja á ósnertri náttúru eða nýta ávexti jarðar, svo sem jarðvarmann. Ákveða verði hvaða leið eigi að fara. Sátt verði að vera um það í samfélaginu. „Yfir- völd verða að leggja línurnar um það hvernig málum verður háttað og hvert eigi að stefna. Allt verður að vera uppi á borðum og ekkert á að fela. Gangi það eftir eru meiri líkur að sátt náist um flest mál en ella,“ segir Jean-Dom- inique Rugiero. GEGNSÆI SKAPAR SÁTT DANMÖRK Yfir tvö hundruð þús- und Danir eru nú á vanskilaskrá (RKI) og hafa ekki verið fleiri frá árinu 2006. Stöðugt bætist í þennan hóp, að því er segir í frétt um málið í Politiken. Hinn dæmigerði skuldsetti Dani er á aldrinum 21 til 30 ára og býr á Sjálandi samkvæmt nýjum tölum sem RKI hefur tekið saman. Meðalskuldir þeirra sem eru í vanskilum nema 42.000 dönsk- um krónum eða rúmlega millj- ón króna. Heildarskuldir fyrr- greindra 200.000 Dana nema 8,5 milljörðum danskra króna eða um 210 milljörðum króna. Danir skulda mikið: Yfir 200 þúsund á vanskilaskrá Hvalaskoðun slær met Um fimmtíu þúsund ferðamenn sigldu út á Skjálfanda í sumar til að berja hvali augum. Hvalaskoðunar- fyrirtækin Norðursiglingar og Gentle Giands gerðu út átta skip í sumar og fengu upp undir þúsund farþega á dag þegar annirnar voru mestar. Hvalaskoðunartímabilinu lauk í gær. FERÐAMENNSKA

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.