Fréttablaðið - 26.10.2009, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 26.10.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI MÁNUDAGUR 26. október 2009 — 253. tölublað — 9. árgangur VEÐRIÐ Í DAG HÍBÝLI OG VIÐHALD Með réttri lýsingu og litum má létta lundina sérblað um híbýli og viðhald FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG Mikilvæg hvatning Þórdís Gísladóttir var verðlaunuð fyrir framlag sitt til frjálsíþrótta á ársþingi Frjálsíþróttasambands Evrópu. TÍMAMÓT 14 híbýli og viðhald MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 2009 Kaffirjómi í nýjum umbúðum Frábær út í kaffið og til matargerðar. Geymsluþolin mjólkurvara ms.is Skeifan 11B • 108 Reykjavík • Sími 511-3080 isoft@isoft.is • www.isoft.is NÝ NÁMSKEIÐ sjá heilsíðu bls. 9 ÞURA STEFÁNSDÓTTIR Er með aldargamalt buffet heima í stofu heimili Í MIÐJU BLAÐSINS Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Snyrti- og förðunarfræðingurinn Þura Stefánsdóttir er ekki lengi að hugsa sig um þegar hún er beðin um að benda á eftirlætishlut sinn á heimilinu. „Það er aldargam-alt buffet sem ég erfði eftir lang-ömmu mína Sigurjónu Eina dóur Þ ð og öðru fíneríi.“ Ofan á buffet-inu er mynd af móðurömmu Þuru ásamt kertastjökum og blómavasa. „Ég er mikil kertakona og kveiki nánast daglega á kertum.“Þó að Buff og vill hafa umhverfið persónu-legt. „Ég vil ekki búa í sýningar-stofu og legg frekar upp úr því aðskapa umhverfi þarÉ Dóttirin mun erfa gripinn Aldargamalt buffet á sér heiðurssess í stofunni hjá Þuru Stefánsdóttur en það er ættargripur frá lang- ömmu hennar. Buffetið er ætlað Sigurjónu dóttur Þuru sem ber sama nafn og langalangamman. Buffetið er frá því um aldamótin 1900. FRÉTTABLAÐÐ/GVA ÞORPIÐ – skapandi samfélag á Austurlandi er hönnunar- og nýsköpunarverkefni sem kynnt verður formlega á tveimur kynningarkvöldum í Sláturhúsinu á Egilsstöðum á þriðjudag og miðvikudag. Blásið verður til málþings um verkefnið á Eiðum á fimmtudagskvöld. www.honnunarmidstod.is Viðhaldsfríar ÞAKRENNUR Smiðjuvegi 4C Box 281 202 KópavogurSími 587 2202 Fax 587 2203hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is Varmaskiptasamstæðurloftræstistokkar og tengistykki Hágæða Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur. Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun. Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar. A u g l. Þ ó rh il d a r 1 4 6 0 .2 4 Lím og þéttiefni í úrvali Tré & gifsskrúfur. Baðherbergisvörur og höldur. Glerjunarefni. Hurðarhúnar og skrár. Rennihurðajárn. Hurðarpumpur. Rafdrifnir hurðaropnarar. Hert gler eftir máli. Járn & Gler hf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin. 104 Reykjavík S: 58 58 900. - www.jarngler.is Hringdu í síma Djúpa laugin snýr aftur Aftur stefnu- mót í beinni útsendingu á Skjá einum. FÓLK 22 Fór einn í bíó Páll Óskar sá Jackson-mynd- ina aleinn í lúxussal. FÓLK 22 Liverpool lagði United Liverpool vann gríð- arlega mikilvægan sigur á Man. Utd í gær. ÍÞRÓTTIR 17 5 3 2 2 5 Hægviðri Það verður lítils háttar úrkoma sunnanlands í dag en ann- ars úrkomulítið. Hiti breytist lítið. VEÐUR 4 ÍÞRÓTTIR Suður-afrískir trúarleið- togar ætla að fórna kú í von um að blessa þá leikvanga sem verða not- aðir í heimsmeistarakeppninni í fótbolta næsta sumar. Zolani Mkiva, formaður Mak- honya-samtakanna sem starfa að menningarmálum, segir að nauð- synlegt sé að blessa keppnina upp á gamla mátann. „Við munum fórna kúnni af þessu tilefni og við ætlum að biðja forfeður okkar um að blessa keppnina og sjá til þess að allt gangi vel. Þetta snýst um að biðja hið guðlega um að sjá til þess að andrúmsloftið verði frábært,“ sagði hann við Reuters-frétta- stofuna. Keppnin hefst í júní á næsta ári, eða eftir innan við átta mánuði. Þetta er í fyrsta skipti sem heimsmeistaramótið í knattspyrnu er haldið í Afríku.Talið er að um fimmhundruð þúsund ferðamenn muni sækja Suður-Afríku vegna keppninnar. - fb Suður-afrískir trúarleiðtogar: Fórna dýri til að blessa HM Í ÞUNGUM ÞÖNKUM Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, voru í þungum þönkum á fundi með fulltrúum Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnu- lífsins í gær. Fundað verður aftur í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN EFNAHAGSMÁL „Við erum að skoða fjölmörg mál. Umfangið hefur margfaldast,“ segir Gunnar Andersen, forstjóri Fjármála- eftirlitsins (FME). Þar eru nú í kringum tuttugu mál til skoðunar um hugsanleg brot gegn gjaldeyrislögum. Höft voru sett á utanríkisviðskipti með gjaldeyri fyrir tæpu ári eftir hrun krón- unnar og horft til þess að þau gætu styrkt gengið. Það hefur ekki gengið eftir, svo sem vegna leiða sem fyrirtæki hafa fund- ið framhjá þeim. Þar á meðal eru kaup fyrirtækja á krónum á aflandsmörkuðum fyrir tekjur í erlendri mynt og undanskot frá skilaskyldu á gjaldeyri. Höftin hafa verið hert nokkuð, síðast í september. Margoft hefur komið fram að lágt gengi krónunnar stendur í vegi fyrir lækkun stýrivaxta. - jab / sjá síðu 4 Málum fjölgar þar sem grunur leikur á að farið sé á svig við gjaldeyrishöftin: FME með tuttugu mál í skoðun GUNNAR ANDERSEN VINNUMARKAÐUR Margt þarf að koma til svo að friður haldist á vinnumarkaði. Á þriðjudag tekur stjórn Samtaka atvinnulífsins ákvörðun um hvort kjarasamn- ingar verða framlengdir. Lítil bjartsýni ríkti meðal for- svarsmanna launþega og atvinnu- rekenda eftir að fundi þeirra með stjórnvöldum lauk í gærdag. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra sagði í gærkvöldi að verið væri að vinna úr fundin- um og þoka málum áfram. Hann var frekar bjartsýnn en ekki. „Ég held að allir vilji halda áfram að reyna að koma þessu áfram en auðvitað er það svo í þeirra hönd- um að lokum hver niðurstaðan verður um kjarasamningana.“ Spurður hvort til greina komi allsherjarstefnubreyting stjórn- arinnar, til að friða vinnumarkað- inn, segist Steingrímur ekki telja að málið snúist um það. „Ég held að þetta byggist nú á því hvort menn ná saman á þess- um tímapunkti og glíma við þess- ar aðstæður. Aðalatriðið er að halda þessu áfram í góðri trú og góðum anda,“ segir hann. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að allt sé í óvissu. Allt of langt sé gengið í skattahækk- unum. Heimili og fyrirtæki beri þær ekki. Tekjuforsendur fjárlaga gangi því ekki upp. „Það hefur verið upplýst að það eru ekki áform uppi um að láta persónuafslátt hækka í sam- ræmi við bæði lög og kjarasamn- inga. Það á að auka skattbyrði á þá tekjulægstu og það er alveg í andstöðu við markmið þessa sátt- mála,“ segir hann. Persónuafslátt- ur þurfi að hækka um 6.600 krón- ur til að halda í við verðbólgu og annað. Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, segir að nú sé beðið eftir útspili ríkisstjórnarinnar. Hann vill, eins og Gylfi, að skattaá- form verði endurskoðuð og þeir eru sammála um að fara þurfi í auknar framkvæmdir. „Orkuskattar þurfa að fara út, gjaldeyrishöftin, vextir og sjávarútvegsmál. Við erum ekkert að gefast upp en þar er margt sem þarf að klárast til að við getum haldið þessu áfram,“ segir hann. - kóþ Stöðugleikasáttmáli gæti verið úr sögunni Forsvarsmenn vinnumarkaðarins eru svartsýnir á að stöðugleikasáttmáli haldi, en fjármálaráðherra er bjartsýnni. Forseti ASÍ segir stjórnina ekki ætla að verja kjör hinna lægst launuðu. Framkvæmdastjóri SA bíður eftir ríkisstjórninni. EFNAHAGSMÁL Fjarstæða er að halda því fram að þeir sem veðj- uðu á fall krón- unnar fái skuld- ir sínar felldar niður en hirði gróðann. Þetta segir í tilkynningu frá félags- og trygg- ingamálaráðu- neyti í gær og áhersla lögð á að lög um sértæka skuldaaðlögun sem samþykkt var á Alþingi á föstudag byggist á því að þeir sem eiga í miklum greiðsluerfiðleikum greiði eins stóran hlut af skuldum sínum og geta þeirra leyfi. Þá muni eignir ganga upp í skuldir. Tekið er fram að eignarhaldsfélög sem stofnuð voru um kaup á hluta- bréfum falli ekki undir lögin. - jab Enginn græðir á aðlögun: Skuldir ekki afskrifaðar ÁRNI PÁLL ÁRNASON

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.