Fréttablaðið - 26.10.2009, Síða 17
fasteignir
26. OKTÓBER 2009
Fasteignasalan Valhöll hefur til sölu vel staðsett
einbýlishús á Skjólbraut í Kópavogi.
H úsið stendur nærri sundlaug Kópavogs í vest-urbæ Kópavogs. Húsið er alls 250 fermetrar með bílskúrnum, það er á tveimur hæðum og
gengið er inn á neðri hæðina.
Neðri hæðin skiptist í góða flísalagða forstofu,
rúmgott svefnherbergi með fataherbergi og snyrt-
ingu innaf. Gott flísalagt hol, vel innréttað þvottahús
með góðri flíslagðri sturtu og saunaklefa. Gott vinnu-
herbergi er innaf þvottahúsi. Góð gestasnyrting er
einnig á hæðinni.
Upp á efri hæðina er léttur stigi með tréþrepum.
Þar er rúmgóð stofa með útgengi út á góðar suður-
svalir og glæsilegu útsýni. Þrjú svefnherbergi eru
á efri hæðinni. Rúmgott baðherbergi með máluðum
veggjum. Eldhús er rúmgott með upprunalegri inn-
réttingu, góðum borðkrók og flísum á gólfi. Að öðru
leyti er beykiparket á gólfum. Bílskúr er með hita og
rafmagni. Garðurinn hefur verið endurgerður með
jarðvegsdúk og snýr mót suðri.
Húsið er vel staðsett sunnan við menningarreit
Kópavogs með alla hugsanlega þjónustu í göngufæri:
Göngustígar meðfram sjávarströnd, íþróttasvæði,
leikskólar, sundlaug, grunnskóli, menntaskóli, tón-
listarskóli, náttúrugripasafn, listasafn, tónlistarhús,
verslanir af öllu tagi og svo mætti lengi telja.
Stutt í alla þjónustu
Húsið við Skjólbraut í vesturbæ Kópavogs er mjög nálægt sundlauginni, skóla, listasafni og miðbæ Kópavogs.
Bogi
Pétursson
lögg. fasteignasali
Finnbogi
Hilmarsson
lögg. fasteignasali