Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.10.2009, Qupperneq 25

Fréttablaðið - 26.10.2009, Qupperneq 25
 26. OKTÓBER 2009 MÁNUDAGUR13 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald farið á fjöll ● fréttablaðið ● Franski tískuhönnuðurinn Rick Owens hefur sett á markað nýja húsgagnalínu, Evolution, sem hefur verið til sýnis í Sebastian + Barquet’s gallery í London. Segja má að Owens feti þar svipaðar slóðir og hann hefur gert í tískuhönnun sinni, enda segir hann vilja skapa heildstæðan heim. Húsgögnin eru velflest hrá, í grófara lagi og drungaleg, gerð úr krossviði, marmara og skreytt hjartarhornum og loðfeldum, en Owens er mikill aðdáandi loð- skinna. Sjálfur hefur hann lýst því yfir að hönnunin sé undir vissum áhrifum frá Jacques- Emile Ruhlmann, Le Cor- busier og Robert Mallet-Ste- vens. Evolution fæst í takmörkuðu upplagi og er eingöngu seld í galleríium erlendis. - rve Hönnunardagar voru haldnir með pompi og prakt í Eindhoven í Hollandi á dögunum. Yfir 700 ein- staklingar og fyrirtæki tóku þátt og 74 kepptu til úr- slita um bestu hönnunina. Hönnunarfyrirtækið Studio Wieki Somers bar sigur úr býtum fyrir svo- kallaðan hringekjufatastand. Alþjóð- leg dómnefnd afhenti forsvarsmönn- um fyrirtækisins verðlaunagripinn eftirsótta, Golden Eye, við hátíðlega athöfn. Á meðfylgjandi myndum má sjá fatastandinn, auk nokkurra gripa sem hollenskur almenningur útnefndi bestu hönnunina 2009. Það besta frá Hollendingum Firma Rieks Swarte vann til verðlauna fyrir bestu myndskreyttu bókina, L’en- fant et les sortilèges. Owens snýr sér að húsgagnahönnun Rick Owens er þekktur og vinsæll tískuhönnuður. Hrátt og drungalegt að hætti meist ar ans. Real Time eftir Maarten Baas þótti heppnast vel en þrjár útgáfur af klukk- unni voru til sýnis. Auglýsingasími – Mest lesið Postulín-sett frá Aldo Bakker. Hringekjufatastandurinn frá Studio Wieki Somers.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.