Iðnneminn - 01.05.1977, Page 7
Ljmaí 1977
lönneminn 7.
Lítil stúlka þurfti að ganga undir
skurðaðgerð vegna augnanna í sér.
Þegar sá dagur rann upp, að um-
búðirnar voru teknar af, hrópaði
hún viti sínu fjær: — Læknir, ég sé
ekki neitt. Læknirinn svaraði: — 1.
apríl.
— Pabbi. Hversvegna geng ég allt-
af í hring?
— Þegiðu strákur, eða ég negli líka
niður á þér hina löppina.
— Mamma. Mér finnst systir mín
vond.
— Haltu kjafti og kláraðu af
disknum.
Iðnnemar eflið blaðið ykkar
Iðnnemar skrifið í Iðnnemann
SÁLFRÆÐI
Heyrst hefur að félag sálfræð-
inga hafi áhuga á að fá til athug-
unar þá menn er komu með gagn-
tilboð vinnuveitendasambandsins
við kröfum ASÍ.
TILKYNNING
Heyrst hefur að fyrir dyrum
standi stœkkun á fjölleikahúsi
Geirs Smart's. Núverandi húsrými
mun ekki vera nægilega stórt til
að sviðsetja þá farsa sem eru á
sýningarskrá komandi leikárs.
Einnig hefur það heyrst, að veita
eigi Matta Matt verðlaunaseðil
fyrir bezta gamanþátt ársins.
Nefnd nr. 657849367460901.
ATVINNA ÓSKAST
Get bœtt við mig nokkrum
aukadjobbum. Allt kemur til
greinaþó sérstaklega; dyravarzla,
plötusnúðsstarf, allskonar félags-
störf og umboðsmennska. Einnig
hef ég mikla reynslu í að sitja
veizlur með stórhöfðingjum. Upp-
lýsingar í síma 17290, efég er ekki
þar þá 11322, ef ég er ekki þar
þá 23333, ef ég er ekki þar þá
14410. Og ef ekki næst í mig i
neinu af þessum númerum, þá er
ég ekki við.
H. Hjartar.
TAPAÐ — FUNDIÐ
Hef tapað sparisokkunum min-
um einhversstaðar í námunda við
Sigtún. Finnandi vinsamlegast
bendið á staðinn ef hann ekki
treystir sér til að takaþá upp.
H. Armannsson
Þetta gerist á vorum dögum:
Kona nokkur, austur í sveitum,
sem kominn er til ára sinna, veikt-
ist nú fyrir skömmu og varþví flutt
úr koti sínu og undir lœknishend-
ur. Þótti vissara að hún dveldist
um sinn nálœgt lœkninum og var
henni því komið fyrir hjá kunn-
ingjafólki. Hvemigsem á því stóð,
datt fólkinu í hug að bjóða kon-
unni í bað, sem hún þáði, en gat
þess um leið að hún hefði ekki
komið í bað síðan 1924 og þá var
eins ástatt fyrir henni. Haldiði ad
það sé nú.
BÍLL — BÍLL.
Óskum eftir að taka á leigu,
eða jafnvel kaupa ameríska for-
stjórabifreið, til stuttrar sendiferð-
ar norður í land. Innbyggður bar
er algjört skilyrði. Jafnframt ósk-
um við eftir að ráða einkabíl-
stjóra. Allar frekari upplýsingar
gefur FCLFRSTJ. (Ferðaklúbbur
framkvœmdastjórnar.)
ATHUGIÐ! JEPPAR KOMA
EKKITTL GREINA.
— Við gerum nú ekki miklar kröfur til iðnnemanna. Þeir eiga aó vera
hlýðnir, heiðarlegir, duglegir, nœgjusamir og sanngjamir í launakröf-
um og fýrir alla muhi án alls pólitíks áhuga.
— Já. Leyfum þeim svo að detta íþað einstaka sinnum um helgar.
— Já. Það skaðar ekki að vera svolítið frjálslyndir.
★
— Til hamingju ungj maður. Nú ert þú útlœrður. Þú skalt ekki hafa
áhyggjur afþví þóttþú hafir ekki lœrt neitt hér l fyrirtœkinu, því þú ert
rekinn ogþar með atvinnulaus og hefurþar með engin not fyrir fagið.
Haukur
íhomi