Fréttablaðið - 29.10.2009, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 29.10.2009, Blaðsíða 30
 29. OKTÓBER 2009 FIMMTUDAGUR ● KÚLULAMPI GEORGE NELSON Bubble-lampinn var hannaður af George Nelson árið 1947 og framleiddur af Howard Miller í upphafi sjötta áratug- arins og fram til 1979. Bubble var gríðarlega vinsæll og er í dag einn af mununum á nýlistasafninu í New York. Enn er hægt að kaupa slíka lampa sem hafa verið end- urframleiddir í upphaflegri mynd. Í ljósadeild Ilvu á Korputorgi er líflegt um að litast því innan um hvítt, svart og silfrað sjást nú orðið skærir litir. Fjólublár er vinsæll og guli liturinn kem- ur líka sterkur inn enda minnir hann á sólina sjálfa. „Sterkir litir eru áberandi í því sem er að detta inn,“ segir Tinna Guð- mundsdóttir, svæðisstjóri ljósa- deildar ILVA. „Auðvitað fáum við svart og hvítt eins og áður, þetta klassíska sem alltaf gengur en það er greinilegt að meiri litafjöl- breytni er að ryðja sér til rúms því við eigum von á að fá skrif- borðs lampa í sjö mismunandi litum.“ Tinna kveðst alltaf vera að taka upp eitthvað nýtt og segir gaman að stilla upp nýju litaglöðu línunni en hvernig taka viðskiptavinirnir henni? „Þeir taka þessu vel enda er deildin glaðleg á að líta. Auðvit- að velur fólk ekki marga liti í einu en nú er búið að vera hvítt og svart svo lengi að mörgum finnst kom- inn tími til að blanda einhverjum einum lit inn í. Það lífgar upp á og flestum finnst gaman að því.“ Rúmt ár er frá því að ILVA var opnuð. Hún var ein af fyrstu búð- unum á Korputorgi og hefur gert sig gildandi á húsgagna- og heim- ilisvörumarkaðinum. Spurð hvort eitthvað í ljósadeildinni hafi verið tekið fram yfir annað bendir Tinna á borðlampa úr kristal. „Þessi hefur selst mjög vel alveg frá opnun og við vorum að fá aðra týpu af honum, mjög flotta. Flestir borð- lampar koma án skerma og það á líka við þessa. Þá velur fólk hvort það vill hvíta, svarta, silfraða eða í lit. Skermur getur breytt útliti á lampa og lýsingu heilmikið.“ Annar lampi í ILVA hefur líka átt miklum vinsældum að fagna að sögn Tinnu, hann er til í þrem- ur stærðum, er í enn rómantískari stíl en kristalslampinn og hentar hvort sem er í nútímalegt húsnæði eða eldra. „Hingað kemur fólk á öllum aldri enda reynum að hafa vöruúrvalið þannig að allir finni eitthvað við sitt hæfi. Við erum með mikið af lampaskermum og stundum kemur fólk með lampa- fætur að heiman til að máta skerm- ana við sem er bara skemmtilegt. Það getur breytt allri stemningu á heimilinu mikið að skipta einfald- lega bara um skerma.“ Litirnir aftur inn á heimilið „Hingað kemur fólk á öllum aldri enda reynum við að hafa vöruúrvalið þannig að allir finni eitthvað við sitt hæfi,“ segir Tinna Guðmundsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 l Umsjónarmaður auglýsinga: Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is s. 512 5439 Bandaríkjamaðurinn Thomas Alva Edison (1847-1931) er jafnan nefndur þegar einum er eignuð upp- finning ljósaperunn- ar en Bretinn Sir Humphry Davy var sá sem prófaði fyrst- ur ljósboga þar sem rafstraumur hleyp- ur milli skauta. Glóðar- lampar svokallaðir þar sem þessi frumtækni var notuð voru nokkrir en í lít- illi notkun allt þar til Edison bjó til ljósaperu með lýsandi kolefnaþræði. Þetta var árið 1879 en 24 árum síðar, 1913, fóru menn að nota þungstein (wolfram) í stað kolefnisins. Edison er talinn aðalfrumkvöðullinn í tækniþróun nútímans enda er honum ekki aðeins eignuð þróun ljósaperunnar heldur líka rafhlöðunnar og kvik- myndavélarinnar. Hann er einnig maðurinn sem stóð fyrir raflýsingu New York- borgar. Maðurinn sem fann upp ljósaperuna, Thomas Alva Edison, lýsti einnig upp New York-borg. Ljósaperan fundin upp Joker. Loftljós. Ýmsir litir. Ummál 15 cm. 8.995,- Ummál 28 cm. 19.995,- Emma. Lampi. Antíkhvítur. einnig til hvítur. H 23 cm. 4.995,- H36 cm. 5.995,- H53 cm. 6.995,- Skermur seldur sér. Empire skermur, ummál 24 cm. 2.495,- Tea House. Lampi. Málmur m/skerm. H 50 cm. 7.995,- Crystal. Borðlampi glær. H 44 cm. 24.995,- Skermur seldur sér. Fussy. Silfurlitaður skermur, ummál 35 cm. 4.990,- Crystal. Borðlampi glær. H 44 cm. 29.995,- Skermur seldur sér. Clear. Svartur skermur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.