Fréttablaðið - 29.10.2009, Síða 34
29. OKTÓBER 2009 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● ljós og lampar
● NÝ NÁLGUN AÐ TELJÓSI Togaðu í tepokann og þá verður
ljós. Þessi skemmtilega ljósakróna er eftir hönnuðinn Jan Bernstein og
fæst hjá fyrirtækinu Das rote Paket í Þýskalandi. Skemmtileg hönnun
þar sem hvunndagslegur hlutur veitir innblástur að bráðsniðugri lausn.
● ÝMIS GRÖS Á EBAY Eins og fyrri daginn gætir ýmissa
stórskemmtilegra grasa á uppboðsvefnum eBay og þá ekki
síst í ljósamálum. Þessa stundina eru til sölu fimm stykki,
hvorki meira né minna en eitt þúsund ára gaml-
ir lampar, ættaðir frá Indlandi. Verðið á slíku góssi
er að sjálf-
sögðu ekki
fyrir meðaljón-
inn, yfir 20.000 dalir. Að-
eins ódýrari, en þó ekki svo
mjög, eru alvöru Art deco-
lampar, meðal annars einn frá
árinu 1905.
Í lampahrúgunni má finna
alls kyns útgáfur, allt frá klass-
ískri hönnun upp í flipp-
aðar týpur og endalaust
gaman að dunda sér við
að skoða góssið. Slóðin
er ebay.com eða ebay.
co.uk fyrir breska svæði vefsins.
Erfitt er að ímynda sér að banki hafi eitt sinn verið rekinn í hinum glæsilegu húsakynnum Boscolo
Exedra-hótelsins í Mílanó. Húsið, byggt árið 1920, var farið að láta á sjá þegar eigendur Boscolo-
hótelkeðjunnar keyptu það fyrir ári. Ekki var annað í stöðunni en að hefja gagngerar endurbætur á
húsinu og þykir útkoman einkar vel heppnuð, þar sem ljós og skærir litir fá að njóta sín til fullnustu.
Skær ljós og litadýrð
Falleg ljós eru áberandi þar sem lýsing
leikur stórt hlutverk í stemningunni.
Arkitektinn Italo
Rota stendur á bak
við hönnunina.
Gestir geta tyllt sér við barinn, sem er
skreyttur skemmtilegum ljósum.
Ljós breyta um lit í takt við árstíðar og ólíkan tíma dags. MYND/ JÜRGEN EHEIM
● LJÓSI BEINT AÐ GULLBYSSU Byssu-
lampinn sem Philippe Starck hannaði árið 2005
þykir allsérstæður. Lampinn er úr áli en brydd-
aður gulli með svörtum skínandi skermi. Flottur lampi fyrir
alla aðdáendur James Bond og Die Hard. Lampinn er fram-
leiddur af ítalska fyrirtækinu Flos.
Philippe Starck hefur skipað sér meðal þekktustu
hönnuða heims. Hann hefur hannað allt frá fatnaði
og veitingastöðum til húsgagna og tannbursta.
Starck er óhræddur við að takast á við ögrandi
verkefni eins og sköpunarverk hans eru til vitnis um.
Heilsulindin er hvorki meira né minna
en 6.000 fermetrar að stærð og búin
öllum helstu nútímaþægindum.
Glæsilegt er umhorfs á Boscolo
Exedra-hótelinu í Mílanó en það
var innréttað fyrir ári.
Á Ebay.com má finna fjöldann
allan af lömpum frá Art deco
tímabilinu.
M
YN
D
/ JÜ
RG
EN
EH
EIM
Auglýsingasími
– Mest lesið