Ljósberinn - 06.08.1921, Blaðsíða 12
8
LJÓSBERINN
ian lifandi maður fyrir. Hann ætlar að ganga inn í
herbergi þar innar af, en kemur þá auga á körfu,
fulla af eplum í stofuglugganum. Honum verður star-
sýnt á eplin og dettur í hug, að óhætt væri að fá
sér eitt þeirra. Auk þess var enginn f stofunni, sem
gat séð það. En hann áttaði sig skjótt og sagði við
sjálfan sig: »Nei, þótt enginn maður sé hér, sem sér
til mín, þá sér Guð tíl míu. Honum kemur ekkert á
óvart«. Síðan bjóst hann til ferðar og gekk fram að
dyrunum. Þá var kallað á eftir honum: »Bídduvið!
Hvaða asi er á þér, drengur«, sagði rödd fyrir aftan
hann. Hann hrökk við og leit umhverfis sig. Að
baki hans stóð aldraður maður, er leynst hafði í
ofnskotinu og heyrt og séð til hans. »Láttu þér ekki
bilt við verða, drengur minn«, mælti hann vingjarn-
lega, wRú ert vel innrætt barn, það gleður mig að
þú elskar Guð og ferð að hans boðum. Þigðu nú af
mér eins mörg epli og þú vilt, en láttu þér
aldrei úr minni liða þessi orð: »Hvað sem eg geri
og hvar sem eg fer, hvilir Guðs auga á mér«.
SÁLMUR.
O, gef pú raér aö gleðjast,
minn Guð, í dag í þér,
svo aðrir sjái að sumar
og sólskin pitt býr í mér.
Ó, send mjer yl píns anda,
svo ilmur sé eg pinn,
sem laði aðra og leiði
í ljósið pitt, Drottinn minn.
B. J.
Siðprúðir drengir og stúikur getafengiðað selja Ljósberann.
Afgreiðsla Ljósberans er í Bergstaðastræti 27. Afgreiðslu-
maður Helgi Árnason, Njálsgötu 40.
Útgefandi: Jón Helgason, prentari. — Prentsm. Gutenberg.